Fréttablaðið - 05.11.2015, Side 64
Við Viljum fá fólk
til að koma og ég
Vil hVetja fólk til að kíkja
eitthVað á þetta þVí þetta
er dýrmætt fræðsluefni
fyrir músíkbransann.
Í fyrsta sinn í sögu Iceland Airwaves-
hátíðarinnar fer nú fram svokölluð
fræðsludagskrá meðfram hátíðinni,
sem er hugsað fyrir tónlistarmenn
sem vilja kynna sér hinar ýmsu hlið-
ar tónlistargeirans. „Þetta er í fyrsta
sinn sem boðið er upp á svona. Við
verðum í Petersen-svítunni sem er
efsta hæðin í Gamla bíói og verður
það svæði hugsað fyrir þá listamenn
sem koma fram á hátíðinni, fjölmiðla-
fólkið og allt bransafólkið, þar sem
allt þetta fólk getur hangið saman
og blandað geði,“ segir Sigtryggur
Baldursson, tónlistarmaður og fram-
kvæmdastjóri Útóns.
Á þessu sama svæði fer einnig fram
fræðsludagskrá um hin ýmsu málefni
tengd tónlistarbransanum og segir
Sigtryggur þessa fræðsludagskrá geta
verið einkar mikilvæga fyrir lista-
menn sem vilja koma sköpun sinni
á framfæri. „Þetta er í raun eingöngu
fyrir þá sem eru með listamannsarm-
band og pressuarmband og darling-
armband en við ætlum samt að gefa
armbönd á þessa fræðslufundi því
við viljum fá fólk til að koma og ég vil
hvetja fólk til að kíkja eitthvað á þetta
því þetta er dýrmætt fræðsluefni fyrir
músíkbransann,“ segir Sigtryggur.
Fræðslufundirnir hefjast í dag og
verða fram á laugardag. Á meðal fyrir-
lesara eru Heather Kolker, umboðs-
maður Of Monsters and Men, Simon
Raymonde, eigandi plötufyrirtækis-
ins Bella Union, María Rut Reynis-
dóttir, umboðsmaður Ásgeirs, og
fjöldinn allur af fólki frá hinum ýmsu
stöðum í tónlistarbransanum. „Þetta
verða fyrirlestrar, pallborðsumræður
og spjall, þannig að fólk getur spurt
spurninga og fræðst um hvað allt
þetta fólk er að gera.“
Þeir sem hafa áhuga á þessari
fræðslu en eru ekki með armband
sem gefur aðgang geta fengið arm-
band með því að hafa samband við
Útón. – glp
fræðsludagskrá fyrir listamenn á
airwaves-hátíðinni í fyrsta sinn
Búið er að gera Petersen-svítuna í Gamla bíói að eins konar samkomustað fyrir listamenn, fjölmiðla og áhugafólk
um tónlist. Þar fer fram fræðsludagskrá um allt sem tengist tónlistargeiranum á meðan á hátíðinni stendur.
Sigtryggur Baldursson segir fræðsludagskrána geta verið ákaflega mikilvæga fyrir listamenn. fréttaBlaðið/gva
5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r52 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
_
N
ÝT
T
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
D
6
-6
8
E
C
1
6
D
6
-6
7
B
0
1
6
D
6
-6
6
7
4
1
6
D
6
-6
5
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K