Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 66
 Rennsli sýningarinnar gekk vel og allt löðrandi í sköpunarkrafti. FRéttablaðið/ERniR Ungleikur  var haldinn í þriðja skiptið  nú í ár.  Tilgangur  hans er að mæta þörfinni  fyrir að viðhalda virku leikhúslífi meðal unga fólksins, og er leitast við að sinna þeirri þörf óháð menntaskólunum.  „Fólk  á aldrinum sextán til tuttugu og fimm getur verið með, en reyndar er einn svindlari í ár, hann er tuttugu og sex,“ segir Alma Mjöll, leikstjóri verksins Austurgluggans  sem frumsýnt var á þriðjudaginn, þegar  Fréttablaðið gægðist á rennsli. Eiga þátttakendur Ungleiks það sameiginlegt að vera að feta sig áfram í bransanum svo hæg- lega má segja að ferskleikinn svífi yfir vötnum.  „Þetta er gríðarlega mikil- vægt tækifæri fyrir ungt fólk sem er að feta brautina í leikhúsunum,“ segir Alma.   „Við erum búin að vera að æfa í tvo mánuði og vera á bólakafi í því, bara þetta og skólinn. Það koma margir að hverri sýningu, svo sem leik- stjórar, leikskáld, búningahönnuðir, sviðsmyndahönnuðir og fleiri,“ bendir hún á. „Ég meina, hvenær getur tuttugu og eins árs gömul stelpa sett upp verk í Borgarleikhúsinu í samvinnu við aðra unga og óreynda í þessum bransa? Þetta er frábært tækifæri.“ – ga Borgarleikhúsið fylltist af næstu kynslóðinni „Þetta er mjög skemmtilegt, annars væri maður ekki að þessu, þetta er góður húmor og maður reynir að vanda sig,“ segir tónlistarmaðurinn Bragi Valdimar Skúlason. Hann sendi á dögunum frá sér sína þriðju plötu í samstarfi við Memfismafíuna en platan er í raun barnaplötubók og nefnist Karnivalía. Um er að ræða bók þar sem í er að finna ellefu laga plötu ásamt söng- textum og litlum hugvekjum og smásögum sem fylgja hverju lagi. „Við ákváðum að gefa þetta út sem bók með plötu til þess að hressa upp á „formattið“ og það er líka auðveld- ara að senda þetta út í formi bókar þar sem þetta eru stuttar sögur við hvert lag og þá njóta myndirnar sín enn betur,“ segir Bragi Valdimar. Verkefnið ætti einnig að falla full- orðnum vel í geð og er ekkert síður fyrir þá þar sem text- arnir eru hnyttnir og sumt af húmornum þannig að einungis full- orðnir skilja það. Karnivalía er þriðja platan í barnaplötu- röðinni því áður hafa komið út plöturnar Gilli- gill sem kom út árið 2008 og Diskóeyjan sem kom út árið 2010 og innihélt meðal annars smellinn Það geta ekki allir verið gordjöss. Bragi Valdimar segir efnið á plötunni fjölbreytt. „Þetta er allt frá diskói og furðu- fönki yfir í vögguvísur.“ Á Karnivalíu syngur fjöldi söngv- ara en Sigríður Thorlacius, Egill Ólafsson, Sigurður Guðmundsson og Magga Stína eru í stórum hlut- verkum. Þingmaðurinn og fönk- prófessorinn Óttarr Proppé þylur stafrófsvísur og sjálfur Páll Óskar birtist í sérlega hoppvænu stuðlagi, Húba Húba. Þá segir Jón Gnarr sína meiningu um mannanafnanefnd í samnefndu lagi. Upptökustjórn er í höndum Guðmundar Kristins Jóns- sonar, sem er betur þekktur sem Kiddi í Hjálmum. – glp Góður húmor og menn vanda sig bragi Valdimar Skúlason, höfundur Karnivalíu, segir einungis full- orðna skilja sumt af húmornum. FRéttablaðið/StEFán 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r54 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð 0 6 -1 1 -2 0 1 5 0 9 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 D 6 -5 5 2 C 1 6 D 6 -5 3 F 0 1 6 D 6 -5 2 B 4 1 6 D 6 -5 1 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 4 1 1 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.