Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Síða 1
6. tbl. 10. árg.
JÚNÍ 2007Dreift frítt í öll hús í Vesturbæ og Mi›borg
Nægilegt framboð leikskóla-
pláss í Vesturbæ og Miðborg
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjórn Reykjavíkur
og formaður leikskólaráðs borg-
arinnar. Þorbjörg Helga var
innt svara við því hvort nýtt fyr-
irkomulag um sumarlokun leik-
skóla Reykjavíkurborgar væri
gert í góðu samkomulagi við
foreldra og starfsmenn leikskól-
anna og hvort það samræmdist
áætlun allflestra foreldra um
sumarfrí.
“Síðan 2004 hefur fyrirkomulag
um tveggja vikna sumarlokun leik-
skóla verið við lýði. Til grundvall-
ar ákvörðun um hvaða tímabil
lokað er, liggur könnun meðal for-
eldra barna í leikskólum. Gert er
ráð fyrir því að barn taki fjögurra
vikna samfellt sumarleyfi.”
- Í hverju er þetta nýja fyrirkomu-
lag aðallega fólgið?
“Í vetur var tekin sú ákvörðun
að geti foreldrar ekki tekið sumar-
leyfi á lokunartíma leikskóla eða
ekki tekið samfelldar fjórar vikur
er einn leikskóli í hverju hverfi
opinn og er sveigjanleiki í leikskól-
anum ef því verður við komið. Í
einhverjum tilvikum þarf að loka
leikskólum lengur en í tvær vikur
t.d. vegna framkvæmda við leik-
skólann og liggur sú ákvörðun þá
fyrir í mars.”
- Fá öll börn í Vesturbæ og Mið-
bæ Reykjavíkur, þ.e. þau sem búa
í hverfum 101 og 107, leikskóla-
pláss í dag ef foreldrar þeirra
æskja þess? Er eitthvað um það að
börn í Vesturbæ séu í leikskólum
í öðrum hverfum bæjarins, jafn-
vel öðrum sveitarfélögum, allfjarri
sínu heimili?
“Nær öll börn sem voru á skrá
eftir leikskóla í mars þegar úthlut-
un hófst, með lögheimili í Reykja-
vík og tilheyra þeim hópi barna
sem verða orðin 18 mánaða fyrir
fyrsta september hafa fengið boð
í leikskóla.
Eftir er að bjóða 5 börnum í
Vesturbæ og 8 börnum í Miðborg.
Þar sem framboð af leikskólarým-
um er nægilegt í þessum hverfum
til að anna þörf fyrir 18 mánaða
og eldri er ekki ástæða til að ætla
að fjöldi barna úr þessum hverf-
um séu í leikskólum í öðrum hverf-
um, nema að vali foreldra.”
- Leikskólaráð hefur samþykkt
samning við Hjallastefnuna ehf.
um að hún taki við rekstri leikskól-
ans Laufásborgar. Er þetta tíma-
bundinn samningur og má t.d.
búast við samningi við leikskóla í
Vesturbænum?
“Um er að ræða samning við
Hjallastefnuna um að reka Laufás-
borg enda hafa foreldrar og kenn-
arar óskað lengi eftir að skólinn
fái að vera sjálfstætt rekinn til að
auka sveigjanleika og hugmynda-
fræðilega þróun. Engin sérstök
áform eru uppi um fleiri skóla á
þessum tímapunkti,” segir Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir, formaður
leikskólaráðs Reykjavíkurborgar.
Vinnuskólinn hóf starfsemi sína 11. júní sl. Heldur færri krakkar sóttu um nú en í fyrra, sem bendir til þess
að atvinnulífið sé í blóma. Krakkar í 10. bekk fá 402 krónur á tímann og vinna i 7 tíma á dag alla virka
daga í allt að 6 vikur. Góða veðrið lék við alla á geysistóru starfssvæði Vinnuskólans sl. föstudag sem
nær frá Kjalarnesi til Bláfjalla að Vegamótum á Seltjarnarnesi. Á slíkum degi eru forréttindi að vinna í
útiskóla! Þessir krakkar voru í Hljómskálagarðinum og sögðust taka þetta langt fram yfir það að vera t.d.
lokaður inni á grillstað.
Forréttindi að vera í útiskóla!