Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 13

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 13
13VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2007 Tólf ára C í Melaskóla 1957 Þegar 12 ára C í Melaskóla var útskrifaður árið 1957, eða fyrir sléttum 50 árum, voru 32 nemendur í bek- knum. Til þess að minnast þess að hálf öldin var liðin hittust bekkjarsystkinin aftur, og auðvitað fyrst í Melas- kólanum þar sem núverandi skólastjóri tók á móti þeim. Fjórir úr hópnum eru látnir og nokkrir voru fjarverandi. Það vakti líka almenna ánægju í hópn- um að báðir þeir kennarar sem leiddu þennan hóp gegnum barnaskóla, voru viðstaddir. Það eru þeir Sveinn Víkingur Þórarinsson og Hróðmar Margeirs- son. Á myndinni til að ofan er hópurinn fyrir 50 árum en að neðan hópurinn í sömu stofu 50 árum síðar. Kennararnir standa aftan við hópinn, leiðandi sem fyrr. Þeir sem lagt hafa leið sína um Grand ann hafa tek ið eft ir stór- hýsi sem er í bygg ingu við Fiski- slóð 15 - 21. Þarna er Krón an að byggja 2000 fer metra versl un sem ráð gert er að opna seinni- part sum ars. Krist inn Skúla son rekstr ar- stjóri nýja versl un ar hús ins segir að stefna Krón unn ar felist í nýrri kyn slóð lág vöru versl ana þar sem áhersla væri lögð á stór ar og rúm góð ar versl an ir þar sem vöru úr val væri snið ið að þörf um nú tíma fólks með fjöl breyttu kjöt- borði og verð um sem væru fylli- lega sam bæri leg eða lægri en hjá sam keppn is að il um. Brauð bök uð á staðn um og líf ræn ar vör ur Nýja versl un in mun gefa mun meiri rekstr ar hag kvæmni en eldri búð irn ar, þar verð ur meira vöru- úr val, breið ir og bjart ir gang ar, þægi legri inn kaup og hrein lega skemmti leg upp lif un fyr ir við skipta- vin ina að versla. Með al nýj unga í Krón unni má nefna að í nýju versl- un inni á Fiski slóð verð ur á boðstól- um brauð bök uð á staðn um, til bú- inn mat ur, sal at b ar, fersk ur fisk ur og mik ið úr val af líf ræn um vör um. Krón an hef ur nú þeg ar opn að þrjár glæsi leg ar lág vöru versl anir fram tíð ar inn ar, en þær eru í Mos- fells bæ, Akra nesi og á Bílds höfða. Stað setn ing versl un ar inn ar við Fiski slóð er mið uð við að í mesta lagi taki 5 mín út ur fyr ir við skipta- vini að aka þang að úr Mið bæ, Skerja firði, Vest ur bæ og af Sel tjarn- ar nesi. Næg bíla stæði verða við versl un ina og hægt að gera öll inn- kaup á ein um stað. Krón an með nýja 2000 fer metra versl un við Fiski slóð Verslun Krónunnar verður hin nýtískulegasta. Það er rúm fyr ir helga stund Kert in loga í glugga syll un um, úti- hurð in er opin þrátt fyr ir að kvöld sé kom ið og kerta ljós eru á tröpp- un um. Sami andi og hug ur tek ur á móti þér og mér, all ir eru vel komn- ir. Það er kyrrð, það er ein hvern veg inn ann ar takt ur í þessu helga rými en ann ars stað ar sem við kom um. Þetta er eitt elsta hús Reykja vík ur og það stend ur þér opið. Mynd irn ar og tákn in öll sem mæta okk ur segja mikla sögu og geta snert við strengj um í sál inni sem óma á slíkri stund. Inni er rökkvað, en Krist ur upp ris inn gríp- ur aug að um leið og inn er kom- ið. Bæna ljós er hægt að tendra á ljósastand inn og bæn ir get um við skrif að sem verð ur beð ið fyr ir upp hátt á helg um stað í sam fé- lagi og á bæna stund. Sam fé lag get- ur þú átt á slík um stund um, við sjálf boða liða, starfs fólk og aðra, en fyrst og fremst við Guð, föð- ur son og heilag an anda í kyrrð, orði og bæn. Þú stjórn ar þín um tíma, staldr ar stutt eða lengi, allt kvöld ið eða í nokkr ar mín út ur. Dag skrá kvölds ins stend ur skrif- uð í forkirkj unni. Kvöld kirkj an í Dóm kirkj unni stend ur öll um opin á fimmtu dags kvöld um og er vett- vang ur fyr ir þig. Sr. Þor vald ur Víð is son Mið borgar prest ur Dóm kirkj unn ar Þessum bíl var lagt á gangbraut við Vesturgötu og hann stóð svo langt inn á gangstéttina að með naumindum var hægt að troðast fram hjá honum. Sumir bera greinilega enga virðingu fyrir umferðar- lögum eða réttindum gangandi fólks. engin takmÖrk? Jupiter frá Royal Teak: Sólbekkir, stækkanl.borð og stólar, sólhlífar. Scalamonti frá Sun Furniture: borð; ryðfrítt stál með granítplötu, Stólar og sólbekkir; ryðfrítt stál með svörtu textilene. Stílhrein hönnun og glæsileiki. Fiskislóð 45 • 101 Reykjavík • S-565 3399 • www.signature.is

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.