Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 15

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2007 KR-SÍÐAN“Hörð deild sem ég hef fundið fyrir í leikjunum” Rúnar Kristinsson kom til liðs við KR í sumar en hann hefur leik- ið undanfarin ár erlendis, nú síðast í Belgíu. Rúnar lék sem kunnugt er með KR sumarið 1994 áður en hann hélt utan til að spila fótbolta. Rúnar segir að það hafi komið til greina að hætta alveg knattspyrnu- iðkun þegar hann hætti að spila í Belgíu, en fyrst og fremst hafi hann verið að einbeita sér að því verk- efni sem hann hafði í Belgíu, þ.e. að sjá til þess að það lið sem hann var að spila með þar héldi sínu sæti í deildinni, og það tókst. “Það er ljóst að ef ég hefði ekki fundið mig vel í síðustu leikjunum í Belgíu og fundið til löngunar að halda áfram að spila fótbolta, hefði ég einfaldlega hætt en ekki komið hingað heim til Íslands til að spila fótbolta, heldur taka mér eitthvað annað fyrir hendur hér heima. Ég velti hins vegar aldrei vöngum yfir því að spila með einhverju öðru liði en KR hér heima, það var bara KR í dæminu.” - Hvernig hefurðu fundið þig í þess- um leikjum sem þú ert búinn að spila með KR? “Þetta eru allt nýir félagar fyrir mig, nema kannski Pétur Marteins- son og Kristján markmaður, með öðr- um hef ég nánast ekkert spilað með nema aðeins lítilsháttar með Gunn- laugi Jónssyni. Maður þarf alltaf að venjast nýjum leikmönnum, nýrri taktík og aðstæðum, en til þessa hef ég ekki verið upp á mitt allra besta. En vonandi get ég bætt mig og spil- að betur fyrir KR. Liðið ætti að vera búið að ná vel saman þar sem það hefur verið saman í allan vetur að mér undanskildum, og það er ekki afsökun fyrir slöku gengi. Hins vegar er mótið mjög stutt og það eru gerð- ar miklar kröfur til KR, eins og reynd- ar löngum áður, og fyrstu tveir leik- irnir fóru ekki eins og menn héldu, þ.e. gegn Keflavík og Breiðablik. Þar vorum við strax búnir að tapa fimm stigum af sex mögulegum og þá fara leikmenn kannski að efast svolítið um eigin getu og getu liðsins. Þá geta menn orðið smeykir og misst eitthvað að því sjálfstrausti sem nauðsynlega þarf. Ef KR hefði unnið fyrsta leikinn gegn Keflavík væri allt annað uppi á teningunum nú hvað varðar stöðu KR í Landsbankadeild- inni, önnur úrslit mun hagstæðari. Við þurfum kannski að vera svo- lítið brosmildari og glaðari en við erum þegar við erum að spila fót- bolta, þetta er jú það skemmtileg- asta sem við leikmennirnir gerum. Við verðum að njóta leiksins betur og ekki hræðast tap og að gera mis- tök. En ef ég og aðrir vissum eitt rétt í þessu sambandi væri ekki erfitt að laga hlutina.” - Þú ert að spila hér aftur eftir 13 ára hlé.Hefur íslenska úrvalsdeildin breyst mikið á þessum árum að þínu mati? “Ég held alveg heilmikið, og til þess betra. Það er mikið af flínkum strákum að spila í deildinni og tækn- inni hefur fleygt fram. En aðstaðan hér, t.d. vallarskilyrðin sums staðar, leyfa ekki alltaf þann hraða sem æski- legt væri að ná í leiknum. En það veldur því að þú hefur minni tíma með boltann og það er auðveldra að pressa andstæðingana, einnig að pressa þá til að gera mistök. Þess vegna er mikil barátta hér í deild- inni, þetta er mjög hörð deild, og ég hef fundið fyrir því í leikjunum hér. En fótboltinn í Belgíu er miklu betri en hér, enda er þar fín aðstaða og fín- ir vellir sem veita möguleika á betri fótbolta. Þar vita menn að ef bolt- inn kemur fastrúllandi til þín hratt á hann ekki eftir að skoppa í þúfu í leiðinni eða ofan í holu. Það hefur auðvitað mjög mikið að segja.” - Eru áhangendur KR óþolinmóðari en stuðningsmenn annara liða hvað varðar árangur, ætlast þeir til meira af sínu liði en áhangendur annara íslenskra liða? “Ég held að áhangendur KR séu ekkert óþolinmóðir, það eru frekar fjölmiðlar sem gera sér mat úr því ef miður gengur, og svo auðvitað stuðn- ingsmenn annara liða. Þegar við töpuðum upp á Skaga kom hálfsíðu frásögn um það á baksíðu Morgun- blaðsins, en ef við ynnum leik fengj- um við ekki hálfsíðu á baksíðu Morg- unblaðsins. Nú er það fréttnæmt að okkur hefur gengið illa, en ef okkur fer að ganga vel, þá er það ekki eins fréttnæmt, kannski vegna þess að fjölmiðlum finnst það eðlilegt. Mat mitt á öðrum liðum í deildinni er það að FH sé með besta liðið enda með marga leikreynda leikmenn, og staða þeirra staðfestir það. En Vals- menn eru að byggja upp skemmti- legt lið og það er gaman að horfa á þá. En ég vona fyrir alla knattspyrnu- unnendur í landinu að þetta verði jöfn deild í sumar og spenna fram í síðustu umferð, og að FH stingi ekki af,” segir Rúnar Kristinsson knatt- spyrnumaður. Fannar Ólafsson íþróttamaður KR Á aðalfundi KR sem haldinn var í sl. mánuði var Fannar Ólafs- son, fyrirliði Íslandsmeistara KR í körfuknattleik, valinn íþrótta- maður ársins hjá KR. Nafnbót- in er æðsti heiður sem íþrótta- manni innan KR er sýndur og Fannar svo sannarlega vel að þessu kominn, en fjölmargir afburðaríþróttamenn voru til- nefndir og því valið erfitt. Síð- ustu tvö ár hefur Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning hampað þessum titli. Fannar hefur leikið með KR und- anfarin tvö ár og var fyrir tímabil- ið gerður að fyrirliða liðsins. Bar- áttuandi og sigurvilji Fannars átti ekki síst þátt í að KR-ingar unnu Íslandsmeistaratitilinn í magnaðri úrslitarimmu við Njarðvíkinga. Margir frábærir íþróttamenn inn- an raða KR sem náð hafa frábær- um árangri komu til greina við valið, s.s. Pétur Eyþórsson glímu- kóngur, Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning og Björgólfur Take- fusa knattspyrnumaður. Rúnar Kristinsson knattspyrnumaður, á KR-vellinum. Joshua Helm til KR Í s l andsmeis tarar KR í körfuknattleik hafa fengið góðan liðsstyrk þar sem Joshua Helm hefur gengið til liðs við KR. Jos- hua var valinn besti erlendi leik- maður úrvalsdeildarinnar þeg- ar hann lék með liði Ísfirðinga fyrir tveimur árum. Þá skoraði hann að meðaltali 37,2 stig í leik. Jovan Zadravevski hefur einnig samið við KR og leikur með þeim næsta vetur. Nokkrar vangaveltur hafa verið um það hvort Tyson Patt- erson verði áfram með KR, en Böðvar Eggert Guðmundsson, formaður körfuknattleiksdeild- ar KR segir að ljóst sé að hann verði ekki með, og það sé skarð fyrir skildi. Fannar Ólafsson, íþróttamaður KR, með verðlaunagripinn sem Guðjón Guðmundsson, formaður KR, afhenti honum á aðalfundinum. KR-kreditkort tryggir afslátt hjá fjölda fyrirtækja Þessa dagana er verið að kynna KR-kreditkortið sem á að nýtast öllum KR-ingum vel, ekki síst í formi afsláttar á vörum og þjón- ustu. Það er von KR-inga að sem flestir fái sér KR-kort og beini viðskiptum sínum til þeirra fyr- irtækja sem þar um ræðir. Með notkun þess tryggja korthafar auk þess innviði KR og auka möguleik- ana á að bæta enn frekar þjónust- una við iðkendur innan KR sem og foreldra. Auk þessa er KR-kortið félagskort KR, og með því að nota það er viðkomandi einfaldlega að sýna öllum, ég er KR-ingur! Um er að ræða fjórar gerðir korta; gráa kortið sem m.a. gildir á heimaleiki KR og veitir aðgang að styrktarmannaklúbbinum, KR-klúbbnum. Hvíta kortið gild- ir fyrir tvo á heimaleiki í fótbolt- anum og svarta kortið fyrir þrjá, en öll kortin gilda veita aðgang að KR-klúbbnum. Fjórða kortið er hvíta kortið fyrir körfuboltann og gildir á heimaleiki í körfunni auk aðgangs að styrktarmannaklúbbi körfuboltans, 6-maðurinn! Kortin verða seld á næstu heimaleikjum KR í Frostaskjólinu. Knattspyrnuskóli KR er nú í full- um gangi frá kl. 08.30 á morgnanna til kl. 12.00, og tekur fjöldi barna þátt í honum, en hann er ætlaður börnum á aldrinum 6 til 12 ára. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur. Þetta starf er mjög mikil- vægt, bæði fyrir börnin og félagið, þarna læra þau að vinna saman, fara með bolta og svo er útiveran svo skemmtileg. Einnig er í gangi körfuboltaskóli á vegum KR, og þar er áhugi barnanna ekki síðri. Körfu- boltaskólinn er frá kl. 12.30 til 16.00. Allar upplýsingar um námskeiðin er að fá á skrifstofu KR eða á www. kr.is/ithrottaskoli Miklar framkvæmdir Nú stendur fyrir dyrum að leggja parketgólf á íþróttasal KR, en á síðasta ársþingi Körfuknattleiks- sambands Íslands var samþykkt að allir leikir í úrvalsdeild körfuboltans færu fram á parketi. Rífa þarf dúkin af og tekur þetta ferli allt um tvo mánuði og verður því lokið um 20. ágúst nk. Kostnaður er áæltlaður um 22 milljónir króna. Einnig verður farið í að skipta um gervigras á gervigrasvelli KR sem var vígður árið 2005. Hann hefur reynst gallaður, en gúmmíkúlurnar sem áttu að ganga niður í hann hafa ekki gert það. Reykjavíkurborg kost- ar þessa framkvæmd, en sami galli mun hafa komið upp á tveimur öðr- um gervigrasvöllum í borginni. Mikill áhugi á knattspyrnu- skóla og körfuboltaskóla KR Við leitum að samviskusömum og jákvæðum starfskrafti til starfa í íþróttahúsi KR. Um er að ræða almenna húsvörslu, þrif, þvott og baðvörslu í búningsklefum stúlkna. Nánari upplýsingar um starfið í síma 898-3148. Egill Orri Árnason með boltann í knattspyrnuskóla KR. Áhuginn er alveg augljós en þarna voru þeir yngstu í boðhlaupi með bolta. - segir Rúnar Kristinsson

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.