Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 11

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 11
Starf Leynileikhússins í leiklistar- starfi fyrir börn er nú komið inn í valda skóla á höfuðborgarsvæðinu. Í vor voru námskeið í fimm skólum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og voru nám- skeiðin í tengslum við stundartöflu barnanna til að mynda samfelldan skóladag. Það má taka fram að þetta er hugmynd frá foreldrum sem eiga framtakssöm börn og eru að verða langþreyttir á því að skutla börnun- um sínum um víðan völl á þessum örfáu mínútum sólarhringsins sem til aflögu eru. Þetta mældist vel fyrir og verður áframhald á því í haust. Námskeiðin sem fóru fram í vor enduðu með sýningum á leikritum barnanna og unglinganna í Austurbæ við Snorrabraut og í Tjarnarbíó við Reykjavíkurtjörn svo allir nemendurn- ir fengu að leika í alvöru leikhúsum við frábærar undirtektir áhorfenda. Drekaskógur í leikferð til Finnlands Vorið 2007 Krakkarnir í Barna- og unglingaleik- húsinu hittust fyrst á námskeiðum á vegum Leynileikhússins. Barna og unglingaleikhúsið setur svo upp leik- rit nú í sumar í samstarfi við Leynileik- húsið og verða prufur fyrir hlutverk í boði fyrir þátttakendur á námskeiðum Leynileikhússins. Námskeiðin byrjuðu 18. júní sl. í Tjarnarbíói. Þetta eru viku- námskeið fyrir unga leikarara á aldr- inum 9-15 ára. Allar upplýsingar og skráning fer fram á leynileikhusid.is. Á menningarnótt Reykjavíkur í fyrra frumsýndi nýstofnað Barna- og ung- lingaleikhús barnaleikritið Drekaskóg eftir Agnar Jón Egilsson. Þetta var fyrsta uppsetning Barna- og unglinga- leikhússins en síðan þá hefur Barna og unglingaleikhúsið sýnt leikritið Jólafár eftir Kikku. Bæði verkin voru í leikstjórn Agnars Jóns Egilssonar. Leikendur eru á aldrinum 9-17 ára og listrænir stjórnendur sýningarinnar allir fagmenn úr leikhúsheiminum. Drekaskógur er sígilt ævintýr. Góð og ill öfl takast á um framtíð alheims- ins. Skógardísir og svartálfar berjast um yfirráð yfir uppsprettu alls sakleys- is og mannabörnin villast inn í hring- iðuna. Hróður Drekaskógs hefur náð út fyrir landssteinana því 20 manna hópur á vegum Barna- og unglingaleik- hússins lagði upp í ferð til Finnlands á 20 ára afmæli barnaleikhúshátíðar- innar í Kuusankoski í Finnlandi í maí- mánuði sl. Með leikmynd og búninga í farteskinu byrjaði ævintýrið í helli- rigningu í Kaupmannahöfn, þar sem var millilent og tekið forskot á sæluna með tívolískemmtun í millilending- unni. Í Kuusankoski var æft undir ber- um himni í 25 stiga hita og síðan tóku við tvær sýningar sem uppselt var á, og vöktu mikla hrifningu. Undirbúningurinn féllst meðal ann- ars í því að einfalda sögusögn leik- ritssins með því að leika meira með látbragði fremur en með tungumálinu og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Skemmtilegast fannst finnsku áhorf- endunum sem sátu og nutu ævintýr- insins, sem fram fór á íslensku, þegar leikararnir brugðu fyrir sig kunnáttu sinni í finnsku. Þá var mikið hlegið. Barna og unglingaleikhúsið er sjálf- stætt starfandi leikfélag sem setur upp sýningar fyrir yngri áhorfendur. Félagið naut engra opinberra styrkja við undirbúning sinn undir ferð sína til útlanda, heldur var sameinast í fjár- öflun með dyggri aðstoð foreldra. 11VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2007 Sýningar barnanna eru bæði lifandi og litskrúðugar. Hollusta og ham- ingja í Skólastræti Hollustu- og hamingjumarkaður hefur verið opnaður í Skólastræti en til stendur að starfrækja markaðinn þar um helgar í sumar. Opið verð- ur laugardaga og sunnudaga frá kl. 12.00 til 18.00. Þar verður hægt að krækja sér í lífrænt grænmeti, krydd- jurtir, Hollustu úr hafinu, orkusteina og blóm svo eitthvað sé nefnt. Ekki er ólíklegt að talsverð umferð verður á þennan markað í sumar, en hann er góð viðbót við annars ágæta flóru verslana í miðborginni. Segja má að í sumar gildi í Skóla- strætinu eitt boðorð: BLÓMSTRUM! Leiklistarnámskeið fyrir börn í Tjarnarbíói Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.