Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 5

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 5
5VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2007 Viðburðaríku 110 ára afmæl- isári Landakotsskóla lauk í vor sem bar augljós merki sam- heldni nemenda, starfsmanna, foreldra og velunnara skólans. Á afmælisárinu voru uppákomur í skólanum, með þátttöku núver- andi og eldri nemenda og bárust skólanum ýmsar gjafir á afmælis- daginn. Árlegur leikjadagur var haldinn í Landakotsskóla síðasta kennslu- daginn, og var hann þrunginn fjöri. Nemendur kunna vel að meta frelsið sem sumarið færir þeim. Á sama tíma fengu foreldrar tækifæri til að sjá afrakstur vetrar- ins í handmennt og myndlist. Landakotsskóli er brautryðj- andi í tungumálakennslu þar sem nemendur hefja tungumálanám strax í 5 ára bekk með ensku og frönsku. Enn frekari efling tungu- málakennslu er framundan þar sem ráðnir hafa verið kennarar til stuðnings tvítengdum nemendum sem hafa pólsku eða frönsku sem sitt móðurmál. Skólagjöld stórlega lækkuð Skólagjöld eru í skólanum en þau hafa verið lækkuð stórlega í kjölfar þess að Menntaráð Reykja- víkurborgar hefur hækkað veru- lega framlag til einkareknu grunn- skólanna. Vonast er til að þessi þróun stuðli að fjölgun nemenda í skólanum og að aðstaða skól- ans verði fullnýtt. Á nýafstöðnu skólaári voru 144 nemendur, von- ir standa til að 170 nemendur verði við skólann næsta skólaár. Einstaka bekkjadeildir eru fullar, eins og verðandi 5 ára bekkur. Námsárangur nemenda í Landa- kotsskóla er framúrskarandi, þar sem nemendur liggja langt yfir meðaltali jafnaldra sinna, sé tek- ið mið af samræmdum prófum. Einkunnir segja ekki nema hluta af sögunni, ef ekki fer saman góð- ur félagsandi og gott félagslíf þá eru þær til lítils. Öflugt félagslíf sérstaklega unglingadeildar er áherslusvið skólastjórnenda og foreldra. Skólinn er í afar sérstöku og vinalegu umhverfi, umhverfi með sögu og sál, skapandi umhverfi. Umhverfið mótar alla, það á ekki síst við um nemendur í Landakots- skóla, það sýnir sig að einstaka nemendur eiga foreldra, afar og ömmur sem hafa sótt skólann, betri meðmæli fást varla. Öflugt foreldrastarf Framtíðin í Landakotsskóla byrjar alltaf núna, sama á hvaða tíma staðan er tekin. Skóli eins og Landakotsskóli þarf að vera í stöðugri endurnýjun, sem þrýstir á nýsköpun í skólastarf- inu. Framundan er stefnt að því að nýta betur upplýsingatækni í námi, þegar nemendur mæta í haust verður búið að uppfæra alla tölvuaðstöðu í skólanum og tengja skólann með ljósleiðara við háhraðanet grunnskóla Reykja- víkur. Upplýsingatæknin gefur ómæld tækifæri og möguleika, það er svo undir starfsmönnum skólans og foreldrum að nýta tæknina og skapa tækifærin til efl- ingar kennslu. Það er athyglisvert til þess að hugsa að nemendur og foreldrar í Landakotsskóla velja sjálf í sam- einingu skólann og eru tilbúin að greiða skólagjöld. Þessi þróun hef- ur það í för með sér að í skólann koma foreldrar sem hafa mótað sér skoðun á skólanum, og fara þangað með ákveðin markmið í huga. Það er þessi hugur sem stuðlar að því að í skólanum er afar öflugt foreldrastarf, foreldra- starf sem á einungis eftir að styrkj- ast enn frekar í framtíðinni. Í for- eldrafélagi Landakotsskóla leggja foreldrar fram fórnfúst starf til stuðnings nemendum, kennurum og skólastjórnendum. Starf foreldrafélags og starfs- manna tekur engan endi og er unnið að því á hverju ári að skapa sem öflugast umhverfi fyrir nem- endur, umhverfi sem gagnast öll- um innan skólans. Laun erfiðisins eru glaðir nemendur, nemendur sem eru að gera sitt besta, í félags- lega vinveittu umhverfi. Skólagjöld stórlega lækkuð í Landakotsskóla Frá leikjadegi 4. júní sl. Hraustlega tekið á!

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.