Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 3

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 3
3VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2007 AUGL†SINGASÍMI 511 1188 - 895 8298 Skrúður / Radisson SAS Hótel Saga / Sími: 525 9900 / www.skrudur.is Fjölbreyttur og girnilegur Skrúður Nýr matseðill Fjölbreyttir og spennandi réttir. Komdu og njóttu góðrar stundar yfir góðum mat. Brunch í hádeginu á sunnudögum Frábært fyrir alla fjölskylduna. Frítt fyrir börn yngri en 6 ára, 50 % afsláttur fyrir börn 6 -12 ára. P IP A R • S ÍA • 70765 Hús ferðaðist um Vesturbæinn að næturlagi Liðlega 100 ára gamalt hús tók sig nýlega upp og ferðast vestur á Grandagarð. Þetta hús hefur stað- ið að Laugavegi 74, en eigendur, Arnór Heiðar Arnórsson og Emil Emilsson, hafa fengið leyfi til að byggja nær 1.200 fermetra hús á lóðinni þar sem verða bæði versl- anir og íbúðir. Leið hússins á tengi- vagni sem dráttarbíll dró lá um Barónsstíg, Skúlagötu, Geirsgötu, Mýrargötu og Fiskislóð vestur á Granda. Húsinu er ætlaður staður í framtíðinni á Nýlendugötunni en það hafa keypt Sigurður Örlygs- son listmálari og Ingibjörg Einars- dóttir. Húsið er friðað. Það verður flutt á Nýlendugötuna þegar sam- þykkt þess efnis liggur fyrir. Laugavegur 74 kominn vestur á Mýrargötu að leið vestur á Grandagarð. Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er að Skúlagötu 21 en félags- miðstöðvarnar eru að Vestur - götu 7, Lindargötu 59 (Vitatorgi), Lönguhlíð 3 og að Bólstaðarhlíð 43. Unglingasmiðjan Stígur er að Amtmannsstíg 5a. Í samstarfi við Svæðisskrifstofu heldur þjónustu- miðstöðin utan um rekstur íbúða- kjarnans að Skúlagötu 46. Á svæð- inu eru auk þess 3 grunnskólar og 15 leikskólar. Á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða starfa u.þ.b. 260 manns við að veita þjónustu. Um er að ræða félagslega þjónustu og sérfræði- þjónustu á sviði skóla- og uppeldis- mála allra aldurshópa, ýmiss konar stuðningsþjónustu, heimaþjónustu, aksturs- og búsetuþjónustu ásamt þjónustu við mismunandi hópa af fólki. Þjónustumiðstöðin er í sam- starfi við hagsmunahópa eins og foreldra- og íbúasamtök, en einnig við hverfisráðin. Til þjónustumið- stöðvarinnar leitar fólk yfirleitt af fyrra bragði, en einnig á starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar frum- kvæði að því að leita til annarra um samstarf að uppbyggilegu og fögru mannlífi í hjarta Reykjavíkur. Sigtryggur Jónsson er fram- kvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar- innar. Hann segir að í þjónustumið- stöðinni við Skúlagötu sé sérhæfing í fjölmenningu og fjölbreytileikinn því mikill enda leiti margir nýbú- ar til þeirra og málefni minnihluta- hópa því þeim hugstæð, enda búi margir þeirra á svæðinu. Sigtrygg- ur segir þjónustumiðstöðina vera stefnumótandi fyrir Reykjavíkur- borg í málefnum þessa fólks og þar sé t.d. starfsmaður sem sér fyrst og fremst um málefni Víetnama og einnig verður þar starfsmaður sem sérhæfir sig í málefnum heyrnar- lausra. Sérþekking og sérhæfing starfsmanna sé beggja hagur. Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða þjónar auk þess velferðar- sviði sem var formlega stofnað 1. febrúar 2005. Stefnumótun í velferðarmálum er á ábyrgð Velferðarsviðs í umboði Velferðarráðs. Sviðið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og sam- þættingu verkefna á sviði velferð- arþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, þróun vel- ferðarþjónustu og gerð þjónustu- samninga um framkvæmd þjónust- unnar.Velferðarsvið býr Reykjavík- urborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum, s.s. í málefnum fatlaðra, öldrunarþjón- ustu og heilsugæslu. Sviðsstjóri vel- ferðarsviðs er Stella K.Víðisdóttir. Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er stefnumótandi í málefnum minnihlutahópa Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.