Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 8

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 8
8 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2007 Ufsaklettur og Selsvör 2. maí 2007 var kynnt í Skúla- túni 2, á vegum framkvæmda- sviðs Reykjavíkurborgar, fyrir- huguð stækkun sjóvarnargarðs við Ánanaust. Þar kom fram að hann á að hækka nokkuð og breikka um fjóra metra, víst eink- um inn á land (www. reykjavik. is; „Ánanaust” sem leitarorð). Þetta veldur því væntanlega að göngu- og hjólastígurinn, sem liggur núna meðfram garðinum, verði undir nýrri uppfyllingu og nýr stígur verði lagður innar, nær götunni Ánanaustum. Með endurbættum garði skal brugð- ist við ágangi sjávar sem hefur spillt stígnum og splundrað hon- um víða og ítrekað borið sjávar- gróður, sand, möl og hnullunga á land. Þessar framkvæmdir vekja spurningar um hvað verði um staka klettinn sem hefur verið komið fyrir nærri brún uppfylling- ar þar sem eru stígamót, beint fyrir enda Sólvallagötu. Kletturinn er norðvestur af torginu sem er fyrir fram JL-húsið við Hringbraut 121 og hann á sér merka sögu. Hún verðu reifuð stuttlega í eftir- farandi samantekt. Þegar talað er um „norðvestur af torginu” er mið- að við að Vesturgata vísi í vestur, sem er ekki kórrétt. Esja telst þá vera í norður, samkvæmt þessari gömlu áttaviðmiðun, þótt áttaviti samþykki það ekki alveg. Fyrir hálfri öld var fjaran við götuna Ánanaust eitt helsta athafnasvæði æskufólks vestast í Vesturbænum og hafði verið lengi; krossfiskar og ígulker voru algeng leikföng barna, steinum og glerbrotum, sem sjórinn hafði núið og nuggað, var safnað, kerl- ingum var fleytt, hlaupið undan öldunni, færi rennt, stálpaðir strákar fóru í þönglastríð eða lögðu í ævintýraferðir á prömm- um, og fleira var sér til gamans gert. Margir minnast ljúfra æsku- ára í fjörunni við Ánanaust, td. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sem átti heima á Ásvalla- götu og kallaði sig „fjörubarn” í útvarpsviðtali við Jökul Jakobs- son, muni ég rétt. Merkilegt vitni um bjartar bernskuminningar er Ufsaklettur sem stóð einu sinni í fjörunni skammt fyrir norðan Selsvör, þegar hún var og hét, við enda Hringbrautar. Meðfylgjandi mynd sýnir afstöðuna milli var- arinnar og klettsins, eins og hún var (1. mynd). Á sínum tíma var mæld staða Ufsakletts áður en hann lenti í uppfyllingu. Sá sem mun einkum hafa beitt sér fyrir þessu var Grétar Jónsson, fyrrum starfsmaður Reykjavíkurhafnar, og átti heima á Vesturvallagötu 7 í æsku sinni. Hann vildi ekki týna Ufsakletti með öllu og hafði í huga að síðar mætti grafa hann upp og koma fyrir varanlega aftur. Tuttugu strákar taka sig saman Grétar fékk hóp stráka úr Vest- urbænum til að styðja þá viðleitni að láta grafa klettinn upp og úr því varð árið 1993, með tilstuðlan borgarverkfræðings. Þá voru. í forystu fyrir strákahópnum með Grétari þeir Sigurður Þ. Árnason, fyrrum skipherra hjá Landhelgis- gæslunni, og Rafn Sigurðsson, fyrr- um framhaldsskólakennari, báðir úr Lautinni, en svo nefnist svæðið milli Holtsgötu og Bráðræðisholts. Við þá hef ég báða rætt og þeir hafa lesið þessa samantekt mína í drögum og gert athugasemdir. Þremenningarnir fengu strák af Ásvallagötunni, Guðmund J. Guð- mundsson, formann Dagsbrúnar, til að styðja við málefnið, og sam- an sendu þeir borgaryfirvöldum bréf árið 1993 og aftur 1994 og báðu í seinna bréfinu um að hlað- ið yrði undir klettinn og komið fyrir merkingu. Þeir töluðu í nafni 20 manna hóps og vildu að fram kæmu á skilti þessi orð um Ufsa- klett, „Hann tengist manndóms- vígslu stráka í Vesturbænum”. Hin- um nýuppgrafna kletti var í fyrstu komið fyrir á torginu framan við JL-húsið við Hringbraut en þetta torg mætti nefna Selstorg. Um aldamótin síðustu skyldi torgið svo endurhannað og hækk- að. Áhyggjur vakti að erfitt yrði áhugasömum að komast að klett- inum úti á torginu, vegna mikill- ar umferðar, og var þá rædd hug- mynd um að koma honum fyrir þar sem hann hafði staðið áður, eða sem næst því, en að vísu ofan á uppfyllingunni. Umrædd- ur hópur Vesturbæjarstráka sam- þykkti þetta á fundi og forkólfarn- ir sendu borgaryfirvöldum bréf um málið í árslok 1999 og lögðu jafnframt til að torgið yrði nefnt Selstorg. Kjartan Mogensen lands- lagsarkitekt, sem ráðamenn borg- arinnar fólu að skipuleggja torgið, sat fundinn og var með í ráðum um frágang við Ufsaklett. Hann var síðan settur ofan á uppfylling- una, sem næst sínum gamla stað, öllum aðgengilegur. Hörður Ósk- arsson prentari, þekktur á sjötta áratuga 20. aldar sem miðvörður í meistaraflokki KR í knattspyrnu, hafði meðferðis ljósmynd af klett- inum þar sem hann stóð á upp- runalegum stað og gat ekki verið vafa undirorpið að klettur sá sem komið var fyrir norðvestan við torgið, var hinn eini sanni Ufsa- klettur og snýr eins og hann gerði á gamla staðnum. Mikilvægi Ufsakletts Sá sem þetta ritar, mun yngri en umræddir Vesturbæjarstrák- ar, man vel hversu mikið aðdrátt- arafl kletturinn hafði snemma á sjötta áratug síðustu aldar þar sem hann stóð allhátt norðan Selsvarar. Hann dró til sín krakka, kannski helst stráka, sem stóðust ekki mátið að klifra upp á hann, til dæmis til að renna þaðan færi og veiða þyrskling eða ufsa. Stund- um fréttist að sumir fengju lax, eftir því sem hermt er. Mest þótti varið í að klífa klettinn þegar gætti öldugangs, leita þá lags til að kom- ast upp og stökkva síðan niður áður en næsta holskefla riði yfir. Þarna stendur hann, nánast í beinu framhaldi af Sólvallagöt- unni, kletturinn sem nefndur var í upphafi þessarar samantektar. Þetta er sjálfur Ufsaklettur, en fáir munu þekkja sögu hans. Hún er vel þess virði að halda henni til haga, vekur ljúfar minningar um liðna tíð og björgunarsagan er merkur vitnisburður um þörf manna fyrir að leggja rækt við sameiginlegar minningar. Slíkar minningar tengjast mikilvægri vit- und um sameiginlegan uppruna og stuðla að samsemd. Þeir sem stóðu fyrir að bjarga Ufsakletti voru æskufélagar úr Vesturbæn- um og þegar klettinum var komið fyrir á gamla staðnum voru þeir líklega flestir við lok starfsferils, hver á sínu sviði. Þeir áttu með sér fundi og sögðu sögur um lífið í gamla Vesturbænum. Kletturinn var miðlægur í minningum þeirra og þeir tengdu hann manndóms- vígslu. Ég undirritaður gerðist afskipta- samur sumarið 1999, skrifaði borg- arverkfræðingi bréf og vildi láta flytja Ufsaklett af torginu yfir á sjávarkambinn, sem næst gamla staðnum, og lagði jafnframt til að torgið yrði nefnt Selstorg. Mér var þá sagt frá strákahópnum, sem ég vissi ekki um, og Sigurður Þ. Árnason bauð mér að vera með á fundi þeirra, sem ég gerði, mér til mikillar ánægju. Gagnlegt að merkja Þetta er rifjað upp hérna ma. af því að fyrirhuguð stækkun sjóvarnargarðs við Ánanaust og færsla göngustígs, og framkvæmd- ir sem þessu fylgja, gæti vakið þá hugmynd að best væri að færa klettinn, svo að um muni, eða jafnvel flytja brott. Sú saga sem hér hefur verið rakin sýnir að það væri synd og skömm og lausleg könnun mín bendir til að unnt eigi að vera að leggja nýjan stíg í fullri breidd án þess að færa klettinn. Ástæða er til að merkja Ufsaklett í von um að það gæti orðið hon- um til nokkurrar varnar og haldið lífinu í sögu hans. Og takist vel til um sjóvarnir væri kjörið að koma fyrir bekk hjá klettinum og stuðla að því að hér á stígamótum geti verið áningarstaður fyrir hina fjöl- mörgu sem njóta útivistar á stíg- unum við sjóinn. Það er annað sem mætti líka merkja. Eins og fleiri á höfundur þessa pistils góðar minningar tengdar Selsvör, bátum, hrogn- kelsum og grásleppukörlum. Áður var stunduð sókn frá Selsvör á djúpmið en Rafn Sigurðsson telur að slíkir róðrar hafi verið hættir á þriðja áratug síðustu aldar. Eftir það voru aðeins stundaðar hrogn- kelsaveiðar úr vörinni, sumir höfðu þær sem aukavinnu og svo reru líka gamlir sjómenn sem voru komnir í land en áttu erfitt með að slíta sig frá sjónum, eftir því sem Rafn hermir. Af grásleppukörlum þarna var kannski þekktastur á sjötta áratug síðustu aldar Pétur Hoffmann eða öðru nafni Pétur H. Salómonsson sem átti heima við vörina, og var reyndar ekki einn um það. Pétur segir af sér sögur í bókinni “Þér að segja”, veraldar- saga Péturs Hoffmanns Salómons- sonar sem Stefán Jónsson færði í letur. Núna mun fólk af yngri kynslóðum kannski helst kannast við Pétur af því að til er um hann söngurinn Hoffmannshnefar, við texta Jónasar Árnasonar. Margir komu við í Selsvör fyrir ríflega hálfri öld til að kaupa sér í soðið og þar gat verið líflegt. Strák- ar hjálpuðu til við að setja fram báta eða ráða þeim til hlunns og fengu stundum að fljóta með þeg- ar vitjað var um. Eftir að fyllt var upp í Selsvör ofanverða, trúlega árið 1959, hef- ur hún smám saman verið að hverfa með auknum uppfyllingum og niðurbroti sjávar. Ég tel þó að á mikilli fjöru megi greina síðustu leifar hennar og vísa á meðfylgj- andi mynd því til staðfestingar (2. mynd). Milli vararinnar, sem ég þykist greina, og Ufsakletts, þar sem hann er að finna á uppfylling- unni fyrir norðan hana, eru um 30 metrar. Ég legg til að Selsvör verði líka merkt og tilgreini frekari ástæður þess hér á eftir. Sorpa, Selsvör og Öskuhaugar í einni bendu Svo mjög er farið að fyrnast yfir hvar Selsvör er að í sérstakri grein um hana í alfræðisafninu Wikipedia, sem finna má á netinu (www.juugle.info/is/Selsvör), seg- ir að hún hafi verið þar sem núna er endurvinnslustöð Sorpu og að áður hafi verið urðunarstaður á sama stað, þe. ruslahaugar. Þessi endurvinnslustöð er fyrir vestan Mýrargötu og æðispöl frá Selsvör þar sem hún er við enda Hring- brautar. Þessi ónákvæmni á sér líklega þá skýringu að skammt frá endurvinnslustöðinni var Litla- Selsvör, fyrir neðan núverandi Vesturgötu, kennd við Litla-Sel, og munu hafa verið ruslahaugar hjá vörinni í eina tíð. Önnur ranghug- mynd er sú að ruslahaugar hafi verið við Selsvör sjálfa (Stóra-Sels vör), umrædda vör við enda Hring- brautar, en það mun aldrei hafa verið. Haugarnir þar sem Pétur Hoffmann fann dýrgripi voru kall- aðir Öskuhaugarnir eða Haugarnir og voru í fjörunni við Eiðsgranda, fyrir sunnan Grandaveg. Ég þykist muna að um miðbik sjötta áratug- ar síðustu aldar hafi rusli einkum verið ekið á svæðið svo að segja beint þar fyrir framan sem síðar varð til gatan Rekagrandi. Athygli vekur hve fjaran þar sem haugarnir voru er orðin hrein og fjörusandurinn freistandi til athafna. En erfitt er að klöngrast ofan í fjöruna hér við Eiðsgranda og væri eðlilegt að gera tröpp- ur til að auðvelda fólki, ungu og gömlu, að komast hérna að sjón- um, svo sem til að vaða, fleyta kerlingar eða skoða fjörulífið eða bara til að spígspora í sandinum. Þarna gæti líka verið gaman að koma fyrir upplýsingum um sögu og náttúru. Ufsaklettur við Ánanaust í dag. Selsvör (Stóra-Sels vör) um 1950. Hægra megin við miðja mynd sést Ufsaklettur á sínum gamla stað en nokkurn veginn beint fyrir aftan má sjá hús Járnsteypunnar við Ánanaust, nú horfið, og í fjarska eru Móskarðshnjúkar.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.