Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 7

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 7
7VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2007 Vegna fréttar í síðasta tölu- blaði Vesturbæjarblaðsins um að styrkur til Vesturgötu 26b hafi verið afturkallaður að geðþótta undirritaðs þótt teikningum hafi verið fylgt í hvívetna, er rétt að eftirfarandi komi fram: Styrkurinn hefur ekki endan- lega verið afturkallaður heldur hefur húseigendum verið boðin ráðgjöf við lagfæringar á glugg- um hússins til að milda útlits- galla þeirra þannig að hægt sé að greiða styrkinn. Allir styrkir eru háðir því að farið sé eftir verklagsreglum Húsa- friðunarnefndar sem eru afar einfaldar: Þegar um glugga er að ræða sé farið eftir upphaflegri gerð glugganna hvað varðar efnis- þykktir og hefilstrik, en um leið er fallist á að setja tvöfalt gler þeirr- ar gerðar að með það sé hægt að fara eins og gamalt einfalt gler. Um þetta geta allir fengið upplýs- ingar hjá Húsafriðunarnefnd. Við styrkúthlutanir eru oft lagð- ar fram útlitsteikningar í litlum mælikvarða (t.d. 1:100) sem ekki sýna útfærslu byggingarhluta. Er þá ætlast til að leitað sé ráð- gjafar um framhaldið. Vandinn er hins vegar of sá að verktaki sem tekur að sér verk eins og þetta, tjáir húseigendum að allt muni gert í upphaflegum stíl og gerð en reyndin verður svo önnur. T.d. að keyptir séu gluggar innanlands eða utanlands “einhvern veginn smíðaðir” með digrum sprossum og annarlegu útliti eins og í þessu tilviki. Það hlýtur að vera deginum ljós- ara að Húsafriðunarnefnd styrkir ekki hvaða sem er heldur reynir að stuðla að því að nokkurn veg- inn rétt og fallega sé staðið að verki. Það er alltaf leiðinlegt þegar fólk gerir við hús sín og er í góðri trú um að vel hafi tekist en reynd- in er svo önnur. Húsið Vesturgata 26b á svo sannarlega skilið að fá andlitslyftingu eftir áratugalanga niðurlægingu. Magnús Skúlason forstöðumaður Um afturkallaðan styrk Húsafriðunarnefndar P IP A R • S ÍA • 7 0 9 94 Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000 „Hvað er með Ásum?“ Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal Orka í iðrum jarðar! Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit List í eigu Landsvirkjunar Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn- ingssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Ljósafossstöð við Sog Kynnist Kárahnjúkavirkjun! Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal Líf í Þjórsárdal Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals Heimsókn í Húnaþing Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöð, Húnaþingi Kynnist okkur af eigin raun Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Komdu í heimsókn í sumar! Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu. Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum Fyrstu sýningar op na 9. júní Eðlilega smíðaður gluggi í Fischer- sundi. Gluggi að Vesturgötu 26b. S u m a r i ð er t íminn þegar börn eiga frí og geta hlaðið “ r a f h l ö ð - urnar” eftir a n n a s a m - a n v e t u r. Til að njóta fr ísins og efla félags- f æ r n i e r fátt betra en frístundaiðkun í tryggu umhverfi undir góðri handleiðslu fagfólks. Framboð viðfangsefna í Vesturbæ er fjöl- breytt í sumar eins og mörg undanfarin ár og geta börn á aldrinum 6 - 16 ára fengist við verkefni af margvíslegu tagi. Skátafélagið Ægisbúar, Nes- kirkja, Frístundamiðstöðin Frostaskjól, Myndlistarskóli Reykjavíkur við Hringbraut og íþróttafélagið KR reyna að mæta ólíkum þörfum og sjá til þess að sem flestir fái verk- efni við hæfi. Einnig er hægt að sækja námskeið út fyrir hverfið í sértækari viðfangsefni eins og söngmennt, leiklist, siglingar- námskeið ofl. Dreift hefur verið upplýs- ingariti “Sumar 2007” þar sem ítarlega er gerð grein fyrir frí- stundatilboðum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Ef þú lesandi góður vilt frek- ari upplýsingar eða ráðgjöf get- urðu alltaf leitað til frístunda- ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar að Hjarðarhaga 45 - 47 eða sent tölvupóst á póst- fangið trausti.jonsson@reykja- vik.is Gleðileg sumarkveðja! Trausti Jónsson frístundaráðgjafi Þjónustumið- stöðvar Vesturbæjar Frístundir sumarið 2007 í Vesturbæ Trausti Jónsson.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.