Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 10

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 10
Útilífsskóli skátafélagsins Ægis- búa í Vesturbænum er starfrækt- ur í samvinnu við ÍTR og Banda- lag íslenskra skáta. Á námskeið- unum er lögð áhersla á útivist, náttúrafræðslu og sjálfsbjargar- viðleitni. Í sumar er tíunda starfs- ár Útilífsskólans sem hefur not- ið mikilla vinsælda frá upphafi. Eins og í öllu skátastarfi er mark- mið Útilífsskólans m.a. að kynna þátttakendum náttúru landsins og jafnframt fræða þá um hvern- ig beri að umgangast hana að virðingu. Skátafélagið Ægisbúar býður í sumar upp á spennandi útilífs- námskeið fyrir krakka á aldrinum 8 til 10 ára, þ.e. börn fædd fædd 1997 til 1999. Meðal viðfangsefna á námskeiðunum er sund, stang- veiði, náttúruskoðun, hópeflisleik- ir, skátaleikir, hellaskoðun, heim- sóknir á söfn og siglingar. Hvert námskeið er sérstakt og því getur dagskrá þeirra verið mismunandi. Í upphafi námskeiðs fá allir þátt- takendur með sér heim ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðs- ins. Athyglisvert er að dagskrá námskeiðanna er mismunandi og því er tilvalið að skrá sig á fleiri en eitt námskeið. Það er hægt að gera á vef Ægisbúa, www.skati.is eða í síma 552-3565. Reynslumiklir leiðbeinendur Allir leiðbeinendur Útilífsskóla Ægisbúar hafa starfað um árabil með börnum og unglingum í skáta- starfi. Leiðbeinendur eru af báð- um kynjum, hafa hlotið viðeigandi þjálfun hjá Bandalagi íslenskra skáta og sótt sérstök námskeið fyrir starfsfólk sumarnámskeiða hjá ÍTR. Næstu námskeið eru frá 25. júní til 29. júní og frá 13. ágúst til 17. ágúst nk. 10 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2007 Sumarfrístund í Selinu Gert er ráð fyrir að hefðbund- in leikjanámskeið ÍTR fyrir 6-7 ára börn verði lögð niður og í staðin boðið upp á áfram- hald í starfi frístundaheimil- ina, kallað Sumarfrístund. Í sumar ríður Frostaskjól á vað- ið með þessa nýbreyttni fyrst frístundamiðstöðva. Ótvíræðir kostir við þetta fyrirkomulag eru að auðveldara er að halda í reynt starfólk og börnin eru í umhverfi sem þau þekkja. Þeir sem eru hjá Frostaskjóli í sumar eru öllum hnútum kunnug og þekkja starfið, aðstæður og börnin vel úr starfi vetrarins og því eru börn eru öruggari og líð- ur betur. Foreldrar virðast líka ánægðir með þetta fyrirkomulag og í Selinu, frístundaheimilinu í Melaskóla og komust færri að en vildu í júní. Í Selinu er mikil dagskrá flesta daga og mikið verið á ferðinni. Sem dæmi um dagskrárliði í fyrstu viku í Selinu var farið tvisvar í sundkennslu, hannaðir flugdrek- ar, fengin glímukennsla frá félög- um úr Glímusambandi Íslands, farið í Laugardalslaugina, könnuð fjaran á Gróttu, og einnig var heil- mikið af frjálsum leik heima fyrir. Vikan endaði svo með í grillveislu í Hljómskálagarðinum svo þetta var frábær byrjun á góðu sumri. Starfsemi skáta er bæði uppbyggjandi og skemmtileg sem allir geta notið. Útilífsskóli Ægisbúa leggur áherslu á sjálfsbjargarviðleitni www.blomalfur.is kíktu á nýju heimasíðuna.... góða skemmtun.. Nú er sumarið gengið í garð og hefðbundnu vetrarstarfi hjá unglingum að ljúka. Sumrinu fylgir tilhlökkun, skólunum lýk- ur og eitthvað nýtt og spenn- andi tekur við hjá flestum. Sum- arið er líka sá tími sem ungling- ar upplifa meira frjálsræði og því geta fylgt ákveðnar hættur. Sumarið á að vera skemmtilegt og unglingar eiga að upplifa nýja og spennandi hluti, en sú upplifun verður að vera jákvæð og það er á ábyrgð okkar full- orðna fólksins og passa upp á að svo verði. Unglingar taka áhættu og er það mikilvæg leið í sjálfsskoðun þeirra og þroska. Áhættuhegð- un þeirra beinist oft að þeim hlutum sem þau hafa litla eða enga þekkingu á og þess vegna er mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir að unglingar leiðist út í óæskilega hegðun. Það er ýmislegt sem foreldrar og for- ráðamenn geta gert til að reyna að koma í veg fyrir að unglingar fari út af sporinu. Mikilvægt er að foreldrar þekki vini barna sinna og að foreldrar tali sam- an. Foreldrar þurfa að vera samstíga um að fara eftir úti- vistarreglunum og leyfa ekki eft- irlitslaus partý og útilegur. Vina- hópur er uppbyggður af einstak- lingum sem leita sér stuðnings, öryggis og samkenndar innan hópsins.Oft kemur þessi hópur í staðin fyrir fjölskyldu unglings- ins og þess vegna er mikilvægt að foreldrar þekki þennan vina- hóp og sé í góðum tengslum við aðra foreldra. Unglingar sem leiðast út af beinu bautinni geta lent í mikl- um vanda og það reynist flest- um unglingum og fjölskyldum þeirra afar erfitt. Ef hægt er að koma í veg fyrir þá þróun í ein- hverjum tilvikum er hægt að spara unglingnum, fjölskyldu hans og vinum ómælda erfið- leika og sorg, svo ekki sé talað um hvað samfélagið sparar í ýmsum kostnaði sem fylgir þess- um málaflokki. Öll höfum við miklar vænting- ar til barnanna okkar og viljum koma þeim til manns. Rannsóknir hafa sýnt að ken- nsla í því að styrkja ungmenni í að taka eigin ákvarðanir, kenna þeim félagslega færni og trúa á sjálfan sig, eflir þau og styrkir til þess að verða góðir og gildir þjóðfélagsþegnar. Skilningur á frávikshegðun unglinga er nauðsynlegur og það þarf að setja hana í sam- hengi við áhrif vina, fjölskyldu og samfélagsins almennt. Ung- lingar sýna ekki frávikshegðun af því þau vilja taka áhættu, þau gera það einnig af því að þau sjá aðra unglinga og fullorðna hegða sér á ákveðinn hátt. Þau vilja lifa eins og fullorðna fólkið og þau verða fyrir ýmsum áhrif- um frá samfélaginu og þeirri ung- lingamenningu sem haldið er að þeim í gegnum t.d. fjölmiðla, tón- list og internetið. Rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum vina á frávikshegðun unglinga og m.a. hefur verið sýnt fram á að þátttaka í skipulögðu tómstunda- starfi, íþróttastarfi og góð tengsl við fjölskyldu draga úr neikvæð- um áhrifum sem unglingar geta orðið fyrir af jafnöldrum sínum. Þessir þættir hafa fyrirbyggj- andi áhrif á frávikshegðun ung- linga og byggja á því sjónarmiði að því minni tíma sem unglingar verja utan skipulagðs starfs, því minni tíma hafa þau til þess að tileinka sér frávikshegðun. Höfum þetta í huga núna þeg- ar sumarið er gengið í garð. Reynum að verja sem mestum tíma með börnunum okkar, fylgj- umst með því hvað þau eru að gera og með hverjum þau eru. Við eigum að vera góðar fyrir- myndir, vera í góðu sambandi við aðra foreldra og leyfum ekki eftirlitslaus partý og úilegur. Gleðilegt sumar ! SUMARTÍMINN Frá Höllu Björk Marteinsdóttur Félagsfræðingi og verkefnisstjóra Þjónustumiðstöð Vesturbæjar Greinin byggir á meistaraprófsritgerð í félagsfræði HÍ (2004) Sumarstarfið er byrjað á fullu í Frostaskjólinu. Fjöllistahópur Frosta er tilraunarverkefni á vegum Vinnuskólans og Frosta- skjóls. Hópurinn er skipaður unglingum úr 9. bekk Hagaskóla og mun hópurinn vera með ýmiskonar listræna viðburði fjöl- förnum stöðum í Vesturbænum í sumar. Má þar nefna gjörninga og annarskonar listsköpun. Starfsmenn Frostaskjóls hvetja þá sem áhuga hafa að fylgjast vel með. Atriði frá fjöllistahópnum. Blómlegt sumarstarf í Frostaskjóli

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.