Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 14

Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 14
Árið 1998 kom á markað hér á landi mjólkurafurð sem strax vakti athygli og hefur notið vin- sælda frá fyrsta degi, LGG+. Smá- skammtaflöskurnar sem lands- menn þekkja mætavel mörkuðu reyndar nokkur tímamót í mark- aðssetningu á matvælamarkaði; MS var eitt allra fyrsta fyrirtæk- ið í heiminum sem kynnti þessa nýju umbúðategund til sögunnar. Fyrir skemmstu fjölgaði í LGG+- fjölskyldunni þegar LGG+ jógúrt kom á markað. Styrkur LGG+ felst í LGG-gerlin- um, sem tveir bandarískir háskóla- prófessorar einangruðu snemma á níunda áratug síðustu aldar. Finnski mjólkurframleiðandinn Valio fékk einkaleyfi á notkun ger- ilsins árið 1990 og átta árum síðar samdi MS við Valio og tryggði sér þar með notkunarleyfi. Jákvæð áhrif „Fjölmargar vísindalegar rann- sóknir hafa verið gerðar á LGG-gerl- inum og virkni hans”, segir Björn S. Gunnarsson matvæla- og nær- ingafræðingur hjá MS. „Sýnt hefur verið fram á margvísleg jákvæð áhrif hans, t.d. á meltingarstarf- semi. LGG hefur bæði fyrirbyggj- andi áhrif og getur komið í veg fyrir kvilla af ýmsum toga og hann eflir mótstöðuafl líkamans og stuðlar þar með að vellíðan og hreysti.” Margar rannsókn- ir á LGG-gerlinum benda til þess að hann geti haft jákvæð áhrif á ónæmiskerf- ið, fæðuofnæmi og kveftíðni, svo fátt eitt sé nefnt. „LGG- gerillinn, sem o g re y n d a r aðrir mjólkur- sýrugerlar, eru einnig taldir hafa góð áhrif á mjólkursyk- ursóþol,” segir Björn ennfrem- ur. „Það ger- ist þannig að gerlarnir sjálfir brjóta niður mjólkursykur- inn í vörunni við sýringu, sem er ferlið þegar mjólkur- varan er sýrð og verður t.d. að jógúrt eða skyri.” Skammta- stærðin er engin tilviljun LGG+ fæst í 65 ml smáflösk- um og þessi skammtastærð hefur va f is t fyrir sumum. Þær tröllasög- ur gengu fjöllunum hærra á sín- um tíma að óhollt væri að drekka meira en eina smáflösku á dag. „Í 65 ml smáflöskunni af LGG+ er hæfilegur dagskammtur af LGG- mjólkursýrugerlum, a- og b-gerlum og heilsutrefjum til að ná hámarks- áhrifum” segir Björn. “Hins vegar er hættulaust með öllu að drekka fleiri en eina smáflösku á dag, enda er LGG+ matvara en ekki lyf. Sama gildir um nýju jógúrtdósirnar, hæfi- legur dagskammtur er ein dós, en óhætt að borða fleiri yfir daginn. Dagleg neysla LGG+ tryggir fulla virkni gegn fjölmörgum neikvæð- um áhrifum og byggir upp varnir líkamans, því hver smáflaska eða jógúrtdós inniheldur það magn af LGG sem stuðlar að hámarks áhrifum.” 14 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2007 Ý M I S Þ J Ó N U S T A Hreinsum allan fatnað, sængur, millidýnur og gardínur á athyglisverðu verði. EFNALAUGIN DRÍFA Hringbraut 119 • Rvk. ÖLL ALMENN PRENTUN SÍMI 561 1594 895 8298 HRÓLFSSKÁLAVÖR 14 NETFANG: NES@ISHOLF.IS AUGL†SINGASÍMI 511 1188 895 8298 Netfang: borgarblod@simnet.is LGG hefur fyrirbyggjandi og jákvæð áhrif „ N ý v e r i ð gaf Mjólkur- samsalan út uppskriftabæk- ling, þann 114. í ritröðinni. Bæklingurinn, Sælkeraréttir með Delfí, inni- heldur 12 upp- skriftir sem að þessu sinni eru tileinkaðar Delfí ostinum sem kom á markað fyrir nokkrum mánuðum. Delfí er fersk- ur léttur rjómaostur með aðeins 15% fituinnihald. Osturinn er mjög skemmtilegur í matargerð þar sem hann er fersk- ur og gefur skemmtilegt rjóma- bragð. Lágt fituinnihaldið veldur því að osturinn heldur sér betur en fitumeiri rjómaostar, þannig lekur hann ekki þegar hann hitn- ar og því klessist maturinn ekki" segir Guðbjörg Helga Jónsdóttir markaðstjóri osta- og smjörvara. Signý Jóna Hreinsdóttir mat- gæðingur þróaði uppskriftirnar og fór hún þá leið að nota ákveð- na grunnuppskrift í nokkrar upp- skriftirnar til að sýna ólíka notkun- armöguleika á sama hlutnum. Hér er ein uppskrift úr bæk- lingnum sem gefur smá innsýn í það sem þar er að finna: Delfí-tortillur með mangó chutney og salsasósu FYRIR FJÓRA 1 pakki tortillur (8 stk.) 600 g kjöt, t.d eldaður, kaldur kjúklingur í bitum eða steikt nauta- hakk. 1 avókadó, skorið í litla bita 1 askja kirsuberjatómar, skornir í tvennt 1 dós maísbaunir og/eða nýrna- baunir 1 dós Delfí 4-6 msk. mangó chutney 200 g rifinn Gratínostur 1 krukka salsasósa (u.þ.b. 200 ml) Hitið ofn í 180 °C. Delfí-osti og mangó chutney er blandað saman í skál. Á miðju hverrar tortillu, eftir henni endilangri, er sett Delfí-mangómauk, kjöt, avo- cado, baunir og tómatar. Tortillunum er rúllað upp og þeim raðað í eldfast mót. Salsasó- su dreift langsum yfir hverja tor- tillu og síðan rifnum osti. Bakað í ofni í 20 mín. Berið fram með fersku salati. Sælkeraréttir með 114 Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir Markaðsstjóri osta- og smjörvara. Björn S. Gunnarsson, matvæla- og næringafræðingur MS Björn S. Gunnarsson. Sigurbjörg Halldórs- dóttir í verðlaunasæti Um mánaðmótin apríl/maí tók Sigurbjörg Halldórsdóttir (Silla) þátt í alþjóðlegri nemakeppni hárgreiðslunema í Gautaborg. Árangur Sillu var frábær því hún varð í þriðja sæti. En í keppninni tóku þátt um 50 nemar frá öllum heimshornum. Greiðsla Sillu var einstaklega falleg og glæsileg galahárgreiðsla. Silla, sem er tvítug, hefur unnið á stofunni hjá Arnari í þrjú ár, eða síðan árið 2004. Hún útskrifaðist úr Iðnskólanum í Reykjavík í des- ember s.l. Henni finnst skemmti- legast að klippa og lita, en er greinilega mjög fjölhæf eins og árangur hennar í keppninni sýnir. Arnar er mjög ánægður með flutninginn á Grandann og finnst hann hálft í hvoru kominn heim. “Hverfið er mjög lifandi” segir hann. Enda mikill uppgangur á svæðinu og ný fyrirtæki spretta þar upp eins og gorkúlur allt í kringum stofuna hans. Arnar vildi taka fram hve vel viðskiptavinirn- ir kunna að meta ný húsakynni og ekki síst hvað Vesturbæingar hafa tekið vel á móti honum og hans starfsfólki. Arnar og stofan hans Salon Reykjavík er komin í Vestur- bæinn til að vera. Vesturbæjarblaðið óskar Sillu til hamingju með árangurinn og samgleðst Arnari með velgengni hans og ánægju með flutninginn í Vesturbæinn. Sigurbjörg Halldórsdóttir ásamt Arnari eigenda Salon Reykjavík. Salon Reykjavík á Granda: KR-sport rekur Nike verslun í Frostaskjólinu en allir keppendur KR klæðast nú NIKE vörum. Á myndinni er Guðjón Kristinsson, fram- kvæmdastjóri KR-sports, sem segist ánægður með þær viðtökur sem verslunin hafi fengið það sem af er sumri.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.