Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Page 2
Upp á Snorrabraut
VESTURBÆJARBLAÐIÐ fer með
þessu tölublaði í öll hús og heimili í
póstnúmerinu 101 og 107, þ.e. blað-
inu er dreift allt upp á Snorrabraut.
Þetta er gert m.a. til að mæta ósk-
um lesenda á þessu svæði en til
þessa hefur blaðið aðeins farið í
miðborgina.
Hugmyndasamkeppni
við Vesturbæjarlaug
Á síðasta fundi Framkvæmdaráðs
borgarinnar var lagt fram bréf hjúkr-
unarforstjóra heilsugæslu miðbæj-
ar varðandi ósk um viðbótarbíla-
stæði merkt fötluðum framan við
heilsugæslu miðbæjar. Samþykkt að
vísa málinu til Framkvæmdasviðs
þar sem skoðaðar verði aðgerðir
til úrbóta fyrir fatlaða í bílageymslu-
húsinu að Vesturgötu 2. Lagt var
fram bréf sviðstjóra Framkvæmda-
sviðs, Íþrótta og tómstundarsviðs
og skrifstofustjóra Innkaupa og
rekstrarskrifstofu , varðandi þró-
unar og hugmyndarsamkeppni við
Vesturbæjarlaug. Lagt var fram
bréf fulltrúa húsfélagsins við Hjarð-
arhaga 54-58 varðandi ósk um girð-
ingu að lóðarmörkum o.fl. úrbætur
við lóðarmörk Hjarðarhaga 54-58.
Samþykkt var að vísa málinu til
skrifstofu gatna og eignaumsýslu
Framkvæmdasviðs. Sviðstjóri Fram-
kvæmdasviðs kynnti drög af tillög-
um um tímabundna lokun Pósthús-
strætis í samræmi við framkvæmd-
aráætlun Umhverfissviðs “ Grænu
skrefin”. Samþykkt var að vinna
frekari tillögu að útfærslu málsins
og kynna í framhaldinu fyrir fram-
kvæmdaráði.
Óheimilt að falast
eftir konu
Á fundi Hverfisráðs Vesturbæj-
ar nýverið var lögð fram bókun
um auglýsingar í hverfisblöðum
er brjóta í bága við jafnréttislög.
Þar segir:
“Áheyrnarfulltrúi Vinstri græn-
na í hverfisráði Vesturbæjar furð-
ar sig á að Vesturbæjarblaðið hafi
birt auglýsingu frá Fatahreinsun-
inni Hraða, þar sem sérstaklega
var auglýst eftir konu til starfa.
Þessi auglýsing brýtur í bága við
1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 96/2000
um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla, en þar segir í 1.
mgr. Atvinnurekendum er óheim-
ilt að mismuna umsækjendum um
starf á grundvelli kynferðis, og í 2.
mgr.: Óheimilt er að auglýsa eða
birta auglýsingu um laust starf
þar sem gefið er í skyn að frem-
ur sé óskað starfsmanns af öðru
kyninu en hinu. Hér bera því bæði
atvinnurekandinn og útgefandi
blaðsins ábyrgð. Þar sem hverfis-
ráð Vesturbæjar styrkir Vesturbæj-
arblaðið fer fulltrúi Vinstrihreyfing-
arinnar - græns framboðs fram á
það að gerðar verði athugasemdir
við þessa birtingu og þess óskað
að Borgarblöð fylgi jafnréttislög-
um, sem og öðrum gildandi lögum
í framtíðinni.” Hér voru gerð mis-
tök sem VESTURBÆJARBLAÐIÐ
biðst afsökunar á.
Ferðir frá félagsmið-
stöðinni Aflagranda 40
Í sumar hafa verið farnar dags-
ferðir frá félagsmiðstöðunum Afla-
granda 40 og Hraunbæ. Næstu
ferðir eru 4. júlí nk. að Skógum, Vík
í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustri og
verður hádegisverður snæddur að
Skógum.
25. júlí verður farið til Vest-
mannaeyja og er innifalið í ferð-
inni rútuferð til Þorlákshafnar, ferð
með Herjólfi til Eyja, gisting í eina
nótt á gistiheimili, kvöldmatur og
morgunverður. Einnig er innfalin
skoðunarferð um Heimaey og báts-
ferð.Óhætt er að hvetja eldri borg-
ara til þátttöku í þessum ferðum.
Nýir skólastjórar og
leikskólastjóri
Á fundi menntaráðs 11. júní sl.
var samþykkt að ráða Sesselju Ingi-
björgu Jósefsdóttur skólastjóra
Hagaskóla frá og með 1. ágúst.
Sesselja Ingibjörg hefur starfað
sem kennari og stjórnandi í 8 ár,
síðast sem aðstoðarskólastjóri í
Réttarholtsskóla
Sex umsækjendur voru um
stöðuna. Réttarholtsskóli er eins
konar systurskóli Hagaskóla því
báðir skólarnir eru einungis með
nemendur í 8. - 10. bekk. Auk þess
eru skólarnir byggðir eftir sömu
teikningunni, en Réttarholtsskóli
hefur starfað tveimur árum lengur
en Hagaskóli, eða frá árinu 1956.
Á fundi menntaráðs 4. júní sl. var
samþykkt samhljóða að ráða Björn
Ottesen Pétursson sem skólastjóra
Melaskóla. Átta umsóknir bárust
um stöðuna. Ein umsókn var dreg-
in til baka. Nýir leikskólastjórar
hafa verið ráðnir við þrjá leikskóla
í Reykjavík, þ.á.m. við Ægisborg
við Ægisíðu þar sem leikskólaráð
ákvað að ráða Sigrúnu Birgisdótt-
ur. Jafnframt var gengið frá ráðn-
ingu Ásmundar Örnólfssonar sem
aðstoðarleikskólastjóra í Ægisborg.
VESTURBÆJARBLAÐIÐ óskar nýj-
um skólastjórum og leikskólastjóra
velfarnaðar í Vesturbænum.
Efasemdir um ágæti
Miðborgarfélags
Á fundi borgarráðs nýverið lét
borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna
bóka:
“Fulltrúi Vinstri grænna telur
stofnun Miðborgarfélags jákvæða
en varar hins vegar við því að
hverfisráð Miðborgar sé samhliða
lagt niður. Með því munu íbúar
Miðborgar ekki sitja við sama borð
og íbúar annarra hverfa. Þá orkar
mjög tvímælis að frjáls félagasam-
tök geti átt raunverulega möguleika
á aðild að félaginu þar sem áhrif inn-
an félagsins eru veltutengd. Heppi-
legra hefði verið að halda starfsemi
hverfisráðs Miðborgar óbreyttri,
um sinn a.m.k., meðan reynsla fæst
af hinu nýja félagi. VG hefði stutt
stofnun félagsins ef meirihlutinn
hefði komið til móts við þessar
athugasemdir.” Í framhaldi létu borg-
arráðsfulltrúar Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks bóka:
“Hagsmunir íbúa jafnt sem fyr-
irtækja í Miðborginni eru tryggðir
í hinu nýja félagi Miðborgar. Góð-
ar vonir eru um að félagið verði
Miðborginni lyftistöng. Það verður
öllum til hagsbóta, íbúum og öllum
fyrirtækjum.”
Hvatningarverðlaun
til Dvergasteins
Í athöfn í Höfða um miðjan maí-
mánuð var sex leikskólum veitt
hvatningarverðlaun leikskólaráðs.
Leikskólinn Dvergasteinn að Selja-
vegi 12 fékk verðlaun fyrir verkefn-
ið “Ótrúleg eru ævintýrin” og fyrir
samstarf myndlistaskólans og leik-
skólans.
Nýbygging að
Skildinganesi 44
Ingvar Vilhjálmsson og Helga
María Garðarsdóttir að Skildinga-
nesi 25 og Birna Geirsdóttir, Skild-
inganes 42, hafa sótt um leyfi til
þess að byggja tvílyft steinsteypt
einbýlishús með innbyggðri tvö-
faldri bílgeymslu á lóð nr. 44 við
Skildinganes. Stærð: Íbúð kjallari
205,3 ferm., 1. hæð 194,5 ferm., bíl-
geymsla 47,8 ferm., samtals 447,6
ferm., 1917,1 rúmm. Skipulags-
ráð Reykjavíkurborgar gerir ekki
athugasemd við að veitt verði bygg-
ingarleyfi þegar teikningar hafa ver-
ið lagfærðar í samræmi við athuga-
semdir á umsóknareyðublaði. Mál-
inu var vísað til afgreiðslu bygging-
arfulltrúa.
Breyting á
aðalskipulagi vegna
Keilugranda 1
Á fundi skipulagsráðs var lögð
fram tillaga skipulags- og byggingar-
sviðs breyting á aðalskipulagi vegna
Keilugranda 1, en næstu nágrannar
hafa mjög lagst gegn áformum um
byggingu þar, þó sérstaklega nýtingar-
hlutfalli og bent á skort á bílastæðum
o.fl. M.a. er um að ræða breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Í tillögunni felst að skilgreina nýjan
þéttingarreit við Keilugranda þar sem
gert er ráð fyrir allt að 130 íbúðum.
Samþykkt að kynna framlagða tillögu
að breytingu á aðalskipulagi með vís-
an til 17. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 á vef skipulags- og
byggingarsviðs. Fulltrúar Samfylk-
ingarinnar; Stefán Benediktsson og
Heiða Björg Pálmadóttir, fulltrúi Vin-
stri hreyfingarinnar Græns framboðs;
Svandís Svavarsdóttir og áheyrnar-
fulltrúi Frjálslyndra og óháðra; Ásta
Þorleifsdóttir, greiddu atkvæði gegn
tillögunni og óskuðu bókað: “Við
leggjumst eindregið gegn framlagðri
tillögu að breytingu á aðalskipulagi
þar sem lögð er til fjölgun íbúða, auk
þess sem reiturinn er skilgreindur
sem þéttingareitur. Ekki verður séð
að breytingin þjóni íbúum í nágrenn-
inu eða hagsmunum grenndarsam-
félgsins. Svo virðist sem hér sé verið
að þjóna hagsmunum eigenda lóðar-
innar, verktökum og þeim sem hafa
vætingar um hagnað undir yfirskini
þéttingar byggðar.”
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933
Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dreifing: Íslandspóstur
6. tbl. 10. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í Vesturbæ og Miðborg.
S T U T T A R
B O R G A R F R É T T I R
F jöldi unglinga hefur á sl. 50 árum notið þess að geta farið erlendis sem skipinemar á vegum AFS, Alþjóðlegrar fræðslu og samskipta. AFS eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðslusamtök sem starfa í yfir 50 þjóðlönd-
um, óháð stjórnvöldum, trúfélögum, sem og hagsmunasamtökum og eru
ekki rekin í hagnaðarskini. Þeir unglingar sem fara út til ársdvalar á vegum
AFS fá að kynnast ólíkum menningarheimum af eigin raun. Þetta þroskar
hæfileika þeirra og skilning á því að nauðsynlegt er að auka réttlæti og frið í
heiminum. Fjöldi íslenskra unglinga hefur farið erlendis sem skiptinemi, m.a.
úr Vesturbænum, en skiptinemadvöl kostar hálfa milljón króna, en flestir
telja þó þeim peningum vel varið, heim koma unglingarnir með mikla reyn-
slu og þroska. Það er full ástæða til að hvetja unglinga í Vesturbænum, sem
og annars staðar, til að kynna sér hvað er í boði á skrifstofu AFS. Það er þess
virði. AFS-samtökunum er óskað til hamingju með afmælið og velfarnaðar í
framtíðinni.
Hvað er að?
Þ egar þetta er ritað hefur KR aðeins hlotið eitt stig í Landsbankadeild karla, jafntefli við Breiðablik, en í gærkvöldi léku þeir við HK á Kópa-vogsvelli. Gengi liðsins hefur verið firnaslakt, liðinu vantar einhvern
neista, einhverja leikgleði til þess að geta náð árangri. Ef ekki fylgir ánægja
því sem tekið er sér fyrir hendur, t.d. í fótbolta, er ekki hægt að búast við
árangri. Liðið náði góðum árangri á undirbúningstímanum, t.d. á La Manga
á Spáni þar sem það lagði mörg af bestu liðum Noregs, en svo virðist sem
tapleikur gegn Sandgerðingum skömmu fyrir mót hafi verið fyrstur tapleikja
í röð allt of margra, því í KR-liðinu eru margir snjallir knattspyrnumenn og
gengi liðsins því ekki í neinu samræmi við það. En hvað veldur?
Liðið er með fínan þjálfara, Teit Þórðarson og umgjörðin er fín, eða hvað?
Sumir aðilar utan KR, og jafnvel fyrrum þjálfarar félagsins hafa sagt að þeir
mundu ekki koma aftur til starfa hjá félaginu ef þeim yrði boðið það meðan
núverandi stjórnarmenn KR-sports væru við völd! Þetta eru hörð gagnrýn-
isorð, en kannski ættu stjórnarmenn KR að fara í ákveðna naflaskoðun nú
þegar þessi staða er uppi, það skaðar engan, heldur er félaginu eingöngu til
góðs. Metnaður KR-inga er mikill og krafan um gengi og titla jafnvel meiri en
hjá mörgum öðrum félögum. Það á því hver og einn KR-ingur að skoða þessi
mál af einlægni og hreinskilni. Stuðnings er aldrei meira þörf en þegar á móti
blæs.
Framtíð byggðar í Örfirisey
R áðstefnan “Ný Örfirisey - framtíðarnotkun og skipulag byggðar í Örfirisey” var haldin nýverið að að tilhlutan Faxaflóahafna og Reykja-víkurborgar. Markmiðið með ráðstefnunni var að meta hugmyndir um
íbúabyggð á landfyllingum vestan við Örfirisey og einnig sambúð hafnarstarf-
semi og íbúabyggðar. Meðal annars kom fram að í vinnu við að endurgera
aðalskipulag Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir þessu landsvæði sem íbúa-
byggð. Ráðstefnan var liður í vinnu starfshóps sem fjallar um framtíðarnotk-
un og skipulag byggðar í Örfirisey og mun hópurinn skila tillögum í lok þessa
árs. Það eru mörg ár í það að byggð fari að rísa á uppfyllingu í Örfirisey og
telja margir að borgarstjórn ætti að líta sér nær og skipuleggja t.d. byggð á
svæðum við Ánanaust sem eru mjög ljót í dag, hrein sjónmengnum. Þar má
t.d. nefna svæðið sem afmarkast af Mýrargötu, Ánanausti, Vesturgötu og
Seljavegi og einnig svæði sem afmarkast af Vesturgötu, Ánanausti, Holtsgötu
og Seljavegi. Líklega væri snjallast að leyfa byggingarverktaka að skipuleggja
þessi svæði frá grunni, byggja á þeim og selja síðan íbúðirnar almenningi
eða leigja út. Sums staðar fer fram þétting byggðar í Vesturbænum, og ekki
alltaf í sátt við nágranna, en um þessar framkvæmdir hljýtur að nást góð sátt
um. Ekki ætti útsýni úr húsum semþarna risu að draga úr vinsældunum. Þeg-
ar olíubirgðarstöðvarnar í Örfirisey verða horfnar verður svæðið meðfram
strandlengjunni við Ánanaust eitt vinsælasta hverfi Reykjavíkur.
Geir A. Guðsteinsson
AFS skapar reynslu
og víðsýni
Vesturbæingar
Þarf ekki að styrkja verslunar-
rekstur í Vesturbænum rétt
eins og í miðborginni?
JÚNÍ 2007