Vesturbæjarblaðið - 01.06.2007, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2007
Tóku upp hanskan fyrir Vesturbæ
Hreinsunarátak borgarstjóra
“Taktu upp hanskan fyrir Reykja-
vík” hófst í Vesturbæ Reykjavíkur
laugardaginn 2. júní sl. Komu íbú-
ar saman á fjórum stöðum í hverf-
inu til að skipuleggja aðgerðir. Síð-
an hófst tiltekt með borgarstjóra
í broddi fylkingar. Deginum lauk
með fjölskyldusamkomu við þjón-
ustumiðstöð Vesturbæjar.
Margt var um manninn og ljóst
er að Vesturbæingar voru dugleg-
ir við hreinsunina. Að lokinni fjöl-
skylduskemmtun með hoppukast-
ala frá skátunum í Ægisbúum,
pylsum frá 10-11 og harmoniku-
leik bauð starfsfólk Guðrúnar
Örnu í Vesturbæjarlaug öllum þátt-
takendum frítt í sund. Þykir dagur-
inn hafa tekist sérlega vel og og
naut fólk ómælt útiverunnar og
þess að hreinsa í kringum sig.
Benda má á að þótt hér hafi
verið gert átak má halda áfram
að fegra Vesturbæinn, einn eða í
hópi annara.
Hópurinn sem tók til á leikvellinum við Melhaga.
Nýtt deiliskipulag
Kvosarinnar tilbúið
í haust
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt að að leita eftir hug-
myndum vegna enduruppbygg-
ingar í Kvosinni eftir bruna
húsanna að Austurstræti 22 og
Lækjargötu 2. Skipulagssvæðið
er tvískipt; meginsvæði og jaðar-
svæði. Meginsvæðið er Lækjar-
torg og byggðin umhverfis það
en afmörkun jaðarsvæðisins mið-
ast við Pósthússtræti, suðurhlið
Hótel Borgar, Skólastræti, Stjórn-
arráðið, suðurhlið TRH-reitsins
og Tryggvagötu.
Markmiðið með að kalla eftir
hugmyndum nú, er að fá tillög-
ur að því hvernig styrkja megi
enn frekar helstu hluta svæðis-
ins. Gera skal tillögur að við- og
nýbyggingum þar sem það er
talið verða svæðinu til framdrátt-
ar. Með þessu er ætlunin að auka
enn frekar á aðdráttarafl miðborg-
arinnar og styrkja hana sem þann
drifkraft auðugs mannlífs sem
henni ber að vera.
Auglýst verður eftir arkitekta-
stofum sem hafa áhuga á að taka
þátt í verkefninu og veittur 14
daga frestur til að skila inn upp-
lýsingum um stofu, starfsmenn
og fyrri verkefni. Sjö manna dóm-
nefnd, skipuð fulltrúum frá Reykja-
víkurborg, hagsmunaaðilum og
Arkitektafélagi Íslands, mun síð-
an velja 5-6 arkitektastofur til
verksins. Þessum arkitektastofum
verður greitt sérstaklega fyrir sitt
framlag.
Að auki verður auglýst eftir til-
lögum frá öllum þeim sem áhuga
hafa á að koma sínum hugmynd-
um/skoðunum á framfæri við
borgaryfirvöld, sem dómnefndin
mun einnig yfirfara og meta. Gæta
skal nafnleyndar og skulu allir
sem skila inn tillögum hafa jafnan
rétt til verðlauna.
Áætlað er að tillögur liggi fyrir
í byrjun ágúst nk. Í kjölfar þess
mun dómnefnd velja bestu hug-
myndirnar sem verða síðan inn-
legg í áframhaldandi deiliskipu-
lagsvinnu á svæðinu. Stefnt er
að því að deiliskipulag svæðisins
verði fullmótað á komandi hausti.
Svæðið í Kvosinni sem um ræðir og leitað er eftir hugmyndum um.
1
3
24
Jaðarsvæði
Meginsvæði
Kvosin
F:/Bskip/Bjorne/annad/starfsmenn_bs/Ulli/samkeppni.mxd
“Það er nú einn það mesti heið-
ur sem manni hlotnast í lífinu að
starfa í sóknarnefnd!” sagði Mar-
grét Sigurðardóttir þegar hún var
spurð hvort hún gæfi kost á sér
til starfa í þágu Neskirkju. “Já,
já, ég er til sagði hún og svo var
hún kosin sem varamaður sókn-
arnefndar Neskirkju á aðalfundi
10. júní sl.
Sóknarnefnd Nessóknar er ábyrg
fyrir mikilvægu starfi fyrir fólk á
öllum aldri. Kirkjustarfið er ekki
aðeins milli 11.00 og 12.00 á sunnu-
dagsmorgnum heldur alla daga
vikunnar og frá morgni til kvölds.
Vegna umfangs verður umsýsla æ
meiri. Mikill fjöldi starfar og kemur
í safnaðarheimilið og kirkjuna og
mikilvægt að í sóknarnefnd starfi
fólk með fjölbreytilega reynslu,
menntun og hæfni til að stýra rek-
stri sóknar, sem veltir á sjöunda
tug milljóna á ári.
Mikil endurnýjun hefur orðið í
sóknarnefnd síðasta árið. Í fyrra
urðu formannaskipti og í ár voru
fimm nýir sóknarnefndarmenn
kjörnir. Auk Margrétar voru kjör-
in Auður Styrkársdóttir, Pétur Pét-
ursson, Ragnheiður Margrét Guð-
mundsdóttir og Þórdís Ívarsdóttir.
Kristinn Jónsson, oft kenndur
við KR, Sveinn Þorgrímsson, Thom-
as Möller og Inga J. Backmann
létu af störfum og er þeim þökkuð
margvísleg og góð störf í þágu safn-
aðarstarfsins. Inga heldur reyndar
áfram að stýra röggsamlega kór
eldri borgara, Litla kórnum, enda
þurfa menn ekki að sitja í sóknar-
nefnd til að syngja!
Það er af sem áður var að karlar
réðu öllu alls staðar. Í sóknarnefnd
Neskirkju eru konur í meirihluta
og líka í varanefnd. Fjöldi í sókn-
arnefndum fer eftir stærð sókna
og Nessókn er sú næstfjölmenn-
asta á Reykjavíkursvæðinu. Fjórt-
án manns eru aðal- og varamenn í
sóknarnefnd.
Formaður er Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir og varaformaður
Hanna Johannessen. Benedikt Sig-
urðsson gegnir ritarastörfum en
Gríma Huld Blængsdóttir er gjald-
keri. Ný í aðalnefnd er Droplaug
Guðnadóttir.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson,
prestur í Neskirkju, segir það heið-
ur að fá að fá að starfa í sóknar-
nefnd. Og það sé heiður fyrir Nes-
sókn að njóta góðs fólks, góðs safn-
aðarstarfs og blómstrandi mann-
lífs. Sigurður Árni biður Guð að
gæta Vesturbæinga á sóknar- og
sumarvegum.
Heiður í lífinu
Neskirkja.