Vesturbæjarblaðið - 01.08.2007, Blaðsíða 14
14 Vesturbæjarblaðið ÁGÚST 2007
Frábær ferðadragt
Þær einfaldlega
krumpast ekki
Mörg snið
stærðir 36-48
Verslaðu glæsilegan
fatnað þar sem
gæði og þjónusta
skipta máli.
Laugavegi 63 • Sími 5514422
BASIC DRAGTIN
ALLTAF KLASSÍSK, ALLTAF FLOTT
Skoðið Basic bæklingin á Laxdal.isSkoðið Basic bæklinginn á Laxdal.is
Sjúkraliðar
Fjölbreytt og sjálfstætt starf! Hvernig væri að prófa?
Sjúkraliðar starfa sem hópstjórar, það býður upp á
mikið sjálfstæði og góða reynslu. Starfshlutfall og
vinnutími samkomulagsatriði.
Starfsfólk í aðhlynningu
Starfsfólk óskast í aðhlynningu, um er að ræða fram-
tíðarstarf og einnig tímabundnar afleysingar, um er
að ræða vaktavinnu á morgun- kvöld- og næturvaktir
bæði heilsdags- og hlutastörf í boði.
Endilega hafið samband við okkur til að athuga hvort
leiðir okkar gætu legið saman.
Við tökum vel á móti nýju
starfsfólki.
Nánari upplýsingar veitir Helga J. Karlsd.
starfsmannastjóri virka daga milli 8-15
í síma 530-6165 eða helga@grund.is.
Grund, dvalar-og hjúkrunarheimili
Hringbraut 50 s: 530-6100
www.grund.is
Sól og stuð í vesturbænum
Fjöllistahópur Frostaskjóls er
samansettur af unglingum í 9
bekk Hagaskóla. Þessir hressu
krakkar vinna á vegum vinnu-
skólans og Frístundamiðstöðvar-
innar Frostaskjóls í því að lífga
upp á mannlífið í Vesturbænum
með skemmtilegum uppákom-
um.
Hópurinn byrjaði á því að taka
ljósmyndir af fallegum og áhuga-
verðum stöðum í Vesturbænum
og setti upp ljósmyndasýningu í
Melabúðinni og í Kjötborg. Auk
þess hefur hópurinn verið með
gjörninga á hringtorgum og fjöl-
förnum stöðum í Vesturbænum.
Má þar nefna sólböð í rigningu,
myndastyttur, Rokk &Ról- trylling
og blóð heitan tangódans. Verk-
efnið hefur tekist mjög vel ,en
þetta er í fyrsta sinn sem hópur
sem þessi þeysist um götur Vest-
urbæjar í þeim eina tilgangi að
gleðja vegfarendur.
Ungmenni í svaðilför
til Englands
Í byrjun ágústmánaðar hélt
frískur 10 manna hópur í ferð til
flóðasvæðanna í Englandi. Farið
var til Stoke-On-Trent. Ferðin var
þriðji og síðasti hluti samstarfs-
verkefnis Frostaskjóls og Evrópu
Unga Fólksins, en það eru sam-
tök innan Evrópusambandsins
sem styrkir ungt fólk til að taka
þátt í lýðræðislegum verkefnum
innan Evrópu. Farið var í vatns-
leikjagarð, tívoli og enska þingið
heimsótt, svo eitthvað sé nefnt.
Sterk tengsl hafa myndast á milli
íslensku og erlendu krakkanna á
þessu ári sem er liðið síðan þau
hittust í fyrsta skipti.
Verkefni þetta byggist upp á
þriggja landa ungmennaskiptum
sem ungmenni frá Íslandi, Finn-
landi og Englandi taka þátt í. Mark-
mið verkefnisins er að auka skiln-
ing ungs fólks á ólíkum aðstæðum
og menningarmismun milli landa
en vonast er til að kveikja áhuga
ungs fólks á frekari þátttöku í lýð-
ræðislegum verkefnum í framtíð-
inni. Fyrir hverja heimsókn söfn-
uðu ungmennin sér fyrir ferðun-
um með alls kyns fjáröflunum og
vinnu á viðburðum og uppákom-
um í félagsmiðstöðinni.
Fyrsti hluti verkefnisins fór
fram fyrir rétt rúmi ári síðan þeg-
ar hópur ungmenna ásamt leið-
beinendum fór í heimsókn til Kon-
tula í Finnlandi. Hópurinn dvaldi
þar í góðu yfirlæti finnsku félaga
sinna og ferðin þótti afskaplega
vel heppnuð í alla staði.
Seinni hluti verkefnisins fór
fram hér á Fróni í febrúar, en þá
kom í heimsókn hópur af ung-
mennum og leiðbeinendum þeir-
ra frá Stoke-On-Trent í Englandi.
Íslensku ungmennin sáu að mestu
leyti sjálf um skipulagningu á dag-
skránni fyrir Englendingana og
voru frábærir gestgjafar. Englend-
ingarnir fengu að kynnast bestu
hliðum íslenskrar náttúru og mat-
argerðar enda er t.d. Bláa lónið
og reykt hangikjöt ekkert slor.
Stærri tækjasalur
og ný gólfefni í
Þrekhúsinu
Miklar breytingar eiga sér stað
í Þrekhúsinu að Frostaskjóli 6,
við hlið KR-hússins. Sævar Pét-
ursson, framkvæmdastjóri, seg-
ir að verið sé að stækka tækja-
salinn og leggja á ný gólfefni til
þess að gera salinn enn áhuga-
verðari fyrir þá sem þangað
sækja en verið hefur til þessa.
“Eftir breytingarnar getum við
tekið fleiri hingað inn en verið hef-
ur til þessa enda höfum við tekið
í notkun sal sem var inn af tækja-
salnum til notkunar sem tækja-
sal svo nú höfum við stækkað
starfsemina um líklega 30%,” segir
Sævar Pétursson.
Sævar segir að þeir sem sæki
Þrekhúsið séu á öllum aldri, en
flestir þó á aldrinum 25 til 45 ára.
En í Þrekhúsið komi líka fólk sem
sé bæði yngra og eldra og einn
þeirra sem hefur verið að stunda
tækjasalinn í Þrekhúsinu er 82
ára, og kemur þrisvar í viku!
Sævar segir að vel sé tekið á
móti fólki sem ekki hefur stundað
líkamsrækt af neinu tagi um lang-
an tíma, en þarf virkilega á hreyf-
ingu að halda.
Þrekhúsið setur upp prógram
fyrir þetta fólk og þjálfari fylgist
svo með framvindunni og breytir
prógrammi ef þurfa þykir með til-
liti til þreks viðkomandi.
Fjöllistahópurinn.
Ásta Böðvarsdóttir hefur
kennt jóga í þó nokkur ár, hér
heima aðallega í Vesturbænum
þar sem hún býr, lengst af við
Jógastöð Vesturbæjar sem var í
Héðinshúsinu.
“Jógað gerði mér mjög gott
og eftir nokkurra ára ástundun
dreif ég mig í að læra meira. Ég
fór til Kripalucenter í Massachu-
settes í Bandaríkjunum og tók
jógakennaranámið þar. Þetta var
árið 1997, en á þeim tíma bjó ég í
Stokkhólmi. Ég kenndi á nokkrum
stöðum í Stokkhólmi, meðal ann-
ars á leikskóla dóttur minnar þar
sem leikskólakennarar og foreldr-
ar komu í jóga og eins fólk úr
hverfinu sem frétti af þessu.
Nú verð ég með jóga í salnum í
Safnaðarheimili Neskirkju á mánu-
dögum og fimmtudögum frá
klukkan 17.20 til 18.30, en við byrj-
um mánudaginn 3. september nk.
Þetta er mjúkt jóga sem styrkir
og skapar vellíðan. Áhersla er
lögð á jógateygjur, öndun og slök-
un. Ég er glöð með að geta haldið
mig við Vesturbæinn þar sem ég
bý og starfa. Ég hlakka til að leiða
jóga í þessu fallega og góða húsi
sem Safnaðarheimili Neskirkju er
og vonast til að sjá sem flesta,”
segir Ásta Böðvarsdóttir.
Kennir jóga í
Safnaðarheimili Neskirkju
Ásta Böðvarsdóttir
jógakennari.
AUGL†SINGASÍMI
511 1188
895 8298
borgarblod@simnet.is
borgarblod.is