Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 3

Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 3
ALLTUM ÍÞRÓTTIR TÍMARIT UM INNLENDAR □□ ERLENDAR ÍÞRDTTIR RITSTJDRAR I RAGNAR INBÓLFBSDN □ G ÖRN EIÐSSDN ÁBYRGÍ3ARMAOUR : EÍSLI ÁSMUNDSSON UTANÁSKRIFT: TÍMARITIÐ ÍÞRÓTTIR, VÍÐIMEL 31 SÍMI: 5P55 - KL. 9—11 ÁRD. - 3. HEFTI SEPTEMBER 195D 1. ÁRG. Ágæt frammistaða íslenzku keppendanna á hinu nýafstaðna Evrópumeistaramóti hefur orðið dýrmæt íþróttamönnum okkar. Öll þjóðin fylgdist af áhuga með af- rekum þeirra, og úti uirj heim er skrifað og talað um þá sem hetj- ur, víkinga og jafnvel undramenn frá Sögueyjunni í norðri. Þetta var ekki í fyrsta skipti, sem íþróttamennimir varpa ljóma á nafn íslands, þótt aldrei hafi þeir gert það jafn eftirminnilega og nú. Allt frá styrjaldarlokum hafa þeir staðið í ströngu og aldrei legið á liði sínu. — Það er því ekki að ófyrirsynju, að áhrifamenn í ís- lenzku þjóðlífi eru famir að við- urkenna, að þeim gjaldeyri, sem eytt er til íþróttamálanna, hefur verið vel varið. Það er einmitt þess vegna, sem nýir sigrar á erlendri grund eru dýrmætir og sýnir bezt, að íþrótta- mennimir og forystumenn í íþróttamálum hafa notað féð á réttan hátt: til eflingar þeim grein- um, sem stærstan ávöxt bera. Samt má með sanni segja, að aðbúnaður íslenzkra íþróttamanna til æfinga stendur langt að baki þeim, sem grannþjóðimar veita sínum íþróttamönnum. Síðustu ár- in hefur þó verið bætt úr að nokkru, en langt er í land. I Reykjavík er það höfuðnauð- syn, að Laugadals-leikvangurinn verði sem allra fyrst tilbúinn. Með honum mun skapast nýtt og öflugt íþróttalíf, sem allri þjóðinni ber skylda til að hlúa að eftir fremsta megni, því að sú æska, sem alin er upp við íþróttaiðkanir og sem áhorfendur að hvers konar íþrótta- leikjum, er betur búin undir að erfa landið en sú, sem hefur eytt frístundum sínum og svalað hé- gómagimd sinni í salarkynnum veitingahúsanna og á sjálfri göt- unni. IÞRÓTTIR 3

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.