Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 27

Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 27
fyrir. Verða leikmenn því að vera á sífelldri hreyfingu, sífellt að leika sig lausa, hlaupa á eyðum- ar, því að ella vill koma snuðra á þráðinn og er þá vörn venjulega snúið upp í skyndisókn, sem oft endar með því, að knötturinn hafn- ar í netinu, er mannfrek upp- hlaup fer skyndilega út um þúfur í miðju kafi. Sérstaka eftirtekt vakti leikni Þjóðverjanna í að leika á and- stæðingana með líkamssveigju, senda þá með smávindu af þeirri leið, er leikmaðurinn með knött- inn ætlar, enn fremur leikni þeirra að „skrúfa“ knöttinn annaðhvort með innan- eða utanfótar-spymu. Á hinar löngu spyrnur markvarð- arins, Helmuts Jahn, má einnig benda, en hann spyrnti iðulega út undir vítateig andstæðinganna, og fer enginn í grafgötur með það, hve mikil not em af slíkum risa- spymum, sérstaklega ef þeir koma eftir sóknarlotu andstæðinganna og vörnin er heldur fáliðuð. En vekur ekki hin mikla harka, sem reykvísku liðin sýndu flest, menn til umhugsunar um það stig, sem íslenzk knattspyma er núna á? Það er staðreynd, að veik lið freistast oft til að leika fast og hörkulega gegn liðum, sem þau finna að em þeim ofurefli, og reyna með því að bæta upp van- mátt sinn á öðmm sviðum. Sigur í knattspyrnukappleik er ekki svo þýðingarmikill, að tilvinnnadi sé að fyrir hann komi líkamleg meiðsl á andstæðingum, sem síðan flytja það með sér, að hér sé ekki leik- andi vegna hörku. í einstökum leikjum urðu úrslit: Fram 2 — Rínarlönd 6. Víkingur 4 — Rínarlönd 5 Valur-K.R. 3 — Rínarlönd 2 Reykjavík 0 — Rinarlönd 2 Fram-Víkingur 2 — Rínarlönd 2. Höröur skorar hjá Rínar-úrvalinu Leiðrétting. Slæm villa var í síðasta blaði í greininni um Nínu Dumbadze. — Heimsmet hennar í kringlukasti er 53.25 m., sett árið 1948. IÞRÓTTIR 27

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.