Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 33

Allt um íþróttir - 01.09.1950, Blaðsíða 33
17.95 og var kast„serían“ þessi: 1781 - 17.95 - 17.44 - ógilt - 17.63 og 17.52. Þýzkaland. Carl Diem, aðalritari þýzku Ólympíuneíndar- innar var fyrir skömmu í heimsókn hérlendis á vegum Í.S.Í. í viðtali lét hann svo um mælt, að hvað þátttöku Þjóðverja í næstu Ólympíuleikum snerti, þá mundu ekki aðrir frjálsíþróttamenn send- ir en þeir, sem væru fæddir eftir 1931. Væri það ráðstöfun til að fyrirbyggja að fyrrverandi nazist- ar slæddust með. Vestur-Þýzkaland: Nýlega náði 23 ára gamall Þjóð- verji, Hipp að nafni, 7074 stigum í tugþraut og vann fyrra árs meist- arann, Luther, sem hlaut 6641 st. Á drengjamóti hljóp 19 ára piltur, Hass, 400 m. á 47.9. Bretland. • Enska knattspymu- tímabilið hófst 19. ágúst síðastl. og mun nú vera lokið 5 umferðum. Á þessu stigi málsins er hæpið, að hægt sé að segja fyrir með nokkurri vissu, hver skipa muni efsta sætið í vor, en ensku sérfræðingamir benda á Portsmouth, núverandi meistara, Tottenham, Sunderland og einkum þó Newcastle sem líklega sigur- vegara, þegar að lokauppgjörinu kemur í vor. Fyrst í stað verður gengi Tott- enhams, liðsins, sem sló í gegn á síðasta leiktímabili og bar sigur úr býtum í II. deild, fylgt af at- hygli, því að í vor var það talið standa jafnfætis beztu 1. deildar liðunum. Til þessa hefur það ekki slegið í gegn, tapað fyrir Black- pool, 1:4, jafntefli gegn Arsenal og Charlton, en sigrað Bolton 4:1. Portsmouth hefur ekki vegnað vel. tapaði fyrir Huddersfield og Shef- field Wednesday, en fékk jafntefli við Newcastle og Middlesbrough. Annars er staðan þessi: L U J T Mörk St. Arsenal 4 3 1 0 7-2 7 Charlton 5 2 3 0 8-5 7 Newcastle 5 2 3 0 6-4 7 Wolves 4 3 0 1 12-4 6 Bumley 4 3 0 1 6-3 6 Huddersfield 4 3 0 1 9-3 6 Manch. Ún. 5 3 0 2 4-3 6 Aston Villa 5 2 2 1 11-9 6 Liverpool 5 2 1 2 7-5 5 Middlesbro 5 2 1 2 7-5 5 Fulham 5 2 1 2 4-5 5 Everton 5 2 1 2 7-12 5 Portsmouth 5 1 2 2 7-6 4 Tottenham 4 1 2 1 8-8 4 W.B.A. 5 1 2 2 6-6 4 Blackpool 4 1 í 2 5-4 3 Sunderland 5 1 1 3 5-11 3 Chelsea 4 1 0 3 5-6 2 Stoke City 4 1 0 3 6-6 2 Derby County 4 1 0 3 6-9 2 Bolton 4 1 0 3 6-15 2 Sheff. Wedn. 5 1 0 4 3-13 2 í annarri deild voru Manch. City og Blackburn með 100% eftir 4 leiki, en enn fremur höfðu Birm- ingham, Southampton og Hull ekki tapað leik. Queen’s Park Rangers hefur gengið heldur illa, er 16. IÞRÓTTIR 33

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.