Allt um íþróttir - 01.09.1950, Side 20
Noregsför Vals
Sveinn Helgason
Á hádegi laugardaginn 15. júlí
hélt Knattspyrnufélagið Valur í
3. keppnisferð sína til Norður-
landa. Var fyrst haldið til Kaup-
mannahafnar með Gullfossi, með
viðkomu í Leith. Fyrst framan af
var veður hið versta, og var held-
ur lágt risið á mörgum, en um
hægðist, er sunnar dró.
Samskipa þeim Völsurum voru
sjálenzku knattspyrnumennirnir
og fór vel á með þeim, en heldur
þótti þessi fríði og föngulegi hóp-
ur yfirgangssamur um borð, og
var til þess bragðs tekið að gera
hann „útlægan" úr sumum sölum
1. farrýmis. En til Hafnar komst
flokkurinn slysalaust, og eftir að
sjóriðan var horfin, gekk hann til
leiks við fyrrverandi gesti sína,
K.F.Ú.M.’s Boldklub og sigraði þá
með 3:1. Létu dönsku blöðin svo
um mælt eftir leikinn, að Valur
hefði sýnt knattspymu, sem ekki ’
gæfi eftir leik danskra 1. deildar-
félaga.
Þvi næst var haldið til Osló og
lék Valur þar við Válerengen, sem
er eitt af sterkustu liðum Noregs.
Fór leikurinn fram á Bislet í rign-
ingu og háði það löndunum, hve
völlurinn var háll. Engu að síður
var þetta vel leikinn og skemmti-
legur leikur. Hrósa norsku blöðin
liðinu mjög og geta mjög lofsam-
lega frammistöðu Sveins Helgason-
ar og Sæmundar Gíslasonar. Gunn-
laugur og Sveinn skoruðu mörk
Vals, og stóðu leikar 2:2 í hléi,
en í síðari hálfleik koraði Váler-
engen sigurmarkið, Þetta var eini
leikurinn. sem Valur tapaði í ferð-
inni.
Strax á fyrstu mínútu leiksins
gegn Grane í Arendal komust
Norðmennimir í gegn og skomðu
mark, en áður en yfir lauk hafði
Valur skorað 4 mörk og lyktaði
leiknum þannig. í þessum leik var
Gunnlaugur miðframherji og skor-
aði hann þrjú markanna.
Nætsi leikur var gegn Frederik-
sands-félaginu Donn, sem „hadde
lite eller ingen ting a si mot det
20
IÞRÓTTIR