Allt um íþróttir - 01.09.1950, Side 23
smám saman þangað til þeir verða
þægilegir á berum fætinum. Síðan
skal farið eins að á þunnum sokk-
um, og að síðustu á knattspymu-
sokkum. Þetta getur tekið tíma,
en leikmaðurinn getur verið full-
viss um, að eftir þetta hafi hann
góða, vandaða skó (sé hann óað-
finnanlega útbúinn til fótanna).
Ungir knattspymudrengir ættu
að reyna að fá áhuga á öðmm
íþróttagreinum, því að þær geta
hjálpað honum á braut knatt-
spymunnar. Knattleikir eins og
golf og tennis geta verið hjálpleg-
ir, því að leikmenn geta þá athug-
að knöttinn, því að eitt af undir-
stöðuatriðum þess að hægt sé að
leika knattspymu, er að þekkja
til hlítar hreyfingar knattarins.
Golf veitir góða og heilnæma
hressingu og jafngildir léttri æf-
ingu. Það er ekki erfitt og hægt
er að grípa til þess, þegar leik-
maður er ekki vel fyrirkallaður til
að erfiða á hlaupabrautinni.
Víðavangshlaup er einnig ágæt
æfing, og eigi leikmaður enn eftir
nokkra krafta eftir nokkurra mílna
skokk, þyrfti úthaldið ekki að
valda honum miklum áhyggjum.
Hver, sem hefur þátttöku í
skipulagðri knattspymu, kemst
fljótlega að raun um, að leikmað-
ur verður að hafa góða þekkingu
á skyldum og störfum hvers ein-
staklings í liðinu, eða m. ö. o. að
leikmenn verði að vera eins konar
sérfræðingar í þeim stöðum, sem
þeir leika, en hver og einn verður
að falla inn í liðið. Knattspyrnan
er fyrst og fremst flokkakeppni.
Keppni tveggja liða með ellefu
stöðum, sem hver og ein krefst
mismunandi leikmanns með ólíka
tækni og leikaðferðir. Svo að sá,
sem hugsar sér hátt í íþróttinni,
verður auk þess að vera góður liðs-
maður að velja sér þá stöðu, sem
hann álítur sig bezt fallinn til.
Sé hann sérlega hár, em mikl-
ar líkur til að hann nái árangri
sem miðframvörður, því að þar
kemur hæðin að miklum notum.
Sé hann smár vexti og hafi góða
knattmeðferð, kemur innherja-
staða til greina. Hraði og hæfi-
leiki til að leika á andstæðinginn
(plat) kemur að mestum notum
hjá útherjum. Að sjálfsögðu kann
svo að fara, að fyrsta val mistak-
ist, en óþarft er að kippa sér upp
við það, breytingar hafa oft orð-
ið árangursríkar. Til dæmis hafa
útherjar orðið afbragðs innherjar,
innherjar hafa orðið góðir fram-
verðir. Flestir frægustu framverð-
imir hafa áður verið innherjar.
Jafnvel miðframherjar hafa orðið
þekktir markverðir og einn af
þekktari bakvörðum Englands var
áður útherji. Þótt ekki gangi vel í
einni stöðu er alltaf hægt að reyna
aðrar, og ekki er ólíklegt að ein-
hver hinna 10 falli betur.
Þetta er þá afstaða atvinnu-
mannsins til íþróttarinnar sjálfr-
ar, en að sjálfsögðu er hún í meg-
inatriðum ekki frábrugðin afstöðu
áhugamannsins, sem lítur ekki ein-
göngu á knattspymuna sem til-
breytingu frá daglegum störfum.
IÞRÓTTIR
23