Allt um íþróttir - 01.04.1951, Page 2
Herra ritstj.
Það munu flestir gleðjast yfir
útkomu tímarits yðar, og ég er
þeirrar skoðunar, að ritið muni
verða æ vinsælla eftir því sem það
kemur lengur út.
Það er með mig eins og e. t.v.
fleiri, að mér þykir að fréttir ut-
an af landi hafi verið og séu allt
of af skornum skammti, og í því
sambandi vil ég bjóðast til að
senda yður fréttir í sumar, t. d. af
Héraðsmóti H.S.S. á Hólmavík og
e. t. v. fleira.
Einnig vildi ég bjóðast til að
gerast útsölumaður ritsins og
sendi eg þá pöntun til yðar sem
fyrst. Að vísu er ekki mikill áhugi
fyrir íþróttum hér, en því meiri
nauðsyn er að auka kynningu á
íþróttum og markmiðum þeirra,
en það verður bezt gert með því
að útbreiða tímarit yðar.
Ég vil nota tækifærið og spyrja
hér nokkurra spurninga:
1. Hvað hafa margir menn
hlaupið 100 m. á 10.2 sek. við lög-
legar aðstæður?
2. Hvað hafa margir menn
stokkið yfir 15,60 í þrístökki?
3. Hvar er hægt að fá hina ný-
útkomnu bók: Kennslubók í frjáls-
um íþróttum og hvað kostar hún?
4. Er nokkurstaðar hægt að fá
kringlur og spjót hér á landi núna?
5. Hvenær kemur nýja stiga-
taflan hér út?
Með vinsemd og virðingu,
Sigurður Guðbrandsson,
Broddanesi,
pr. St. Fjarðarhom,
Strandasýslu.
Ritstj. þakka alveg sérstaklega
fyrir þetta vinsamlega bréf og
notar tækifærið til að benda ung-
um mönnum víðsvegar um land á
það, að ritið vantar útsölumenn
á sem flestum stöðum á landinu.
Svör við spurningum:
1. Jesse Owens 20. júní 1936,
H. Davis 6. júní 1941, L. LaBeach
15. maí 1948, B. Ewell 9. júlí 1948.
2. Vísum til afrekaskrárinnar í
þættinum „Afreksmenn í frjáls-
íþróttum" í þessu hefti.
3. Hjá útgef., Jens Guðbjörns-
syni bókbindara, Reykjavík. Hún
kostar 45 kr.
4. Það hefur verið erfitt, en
reynið hjá Sportvöruverzl. Hellas,
Hafnarstræti 22, Reykjavík.
5. Ennþá hefur ekkert heyrzt
um það, en ekki getur það dregizt
lengi.
Leiðréttingar.
Pétur Kristjánsson var sagður
17 ára í des.-hefti ritsins, en hann
er aðeins 16 ára. Kristján Krist-
jánsson, spjótkastari Akureyringa,
er í Þór, en ekki K.A. — Á bls. 57
í febr.-heftinu féll heil lína niður.
I framhaldi af 7. línu vinstra dálks
á að koma: að sigra P. Vesterinen,
úrslitamann o. s. frv.
Lesendur eru beðnir afsökunar
á þessum leiðinlegu mistökum.
110
ÍÞRÓTTIR