Allt um íþróttir - 01.04.1951, Page 10
Skíðamót íslands:
Isfirðingar fóru með flesta sigra af hólmi.
Á Skíðamóti íslands, sem fram
fór um páskana á ísafirði, voru
það ísfirðingar, sem hæst bar, því
þeir fengu 6 meistarastig af 11
og svigsveit þeirra hlaut nafnbót-
ina „Bezta svigsveit íslands“, en
það var í þriðja sinn í röð, sem
hún getur sér þann orðstí.
Þá voru það Þingeyingamir,
sem báru af í göngu, og hrifsuðu
þeir til sín bæði meistarastigin í
þeirri grein. Siglfirðingar fengu,
Ásgeir Eyjólfsson
eins og við var búizt, sigur í
stökkum og norrænni tvíkeppni,
en Reykvíkingar létu sér nægja
eitt meistarastig (í bruni).
Sökum rúmleysis verður ekki
farið út í að lýsa keppninni ná-
kvæmlega, þótt vel sé hún þess
virði, en hún var mjög spennandi,
og sýndi þorri keppenda meiri
leikni en áður á landsmótum.
Sérstaka athygli vakti frammi-
staða þingeysku göngumannanna,
sem röðuðu sér í fyrstu sætin í
bæði 18 og 30 km. göngunum. Að-
eins Gunnari Péturssyni (ísaf.)
tókst að kljúfa fylkingu þeirra í
18 km., en hann varð þar þriðji
(fyrstur í B-fl.) og er það mál
manna, að hann hefði orðið fram-
ar, ef hann hefði ekki þurft að
ganga fyrstur alla leiðina.
Siglfirðingarnir eru enn beztu
stökkmennirnir og sigraði Jónas
Ásgeirsson, sem svo oft áður, en
ekki gátu þeir sýnt sérstök tilþrif
vegna lélegra aðstæðna (lengsta
stökk 25 m.). Haraldur Pálsson
varð annar í stökkum og fimmti
í göngu og sigraði þar með í tví-
keppninni.
í sviginu gekk á ýmsu og bar
það helzt til tíðinda, að Reykvík-
ingamir Ásgeir Eyjólfsson og
Guðni Sigfússon voru dæmdir úr
leik (hefðu annars orðið 1. og 4.),
en ísfirðingurinn Haukur Sigurðs-
son vann verðskuldaðan sigur, þ. e.
hann sýndi mest öryggi í báðum
118
IÞRÓTTIR