Allt um íþróttir - 01.04.1951, Side 13
Nýjung í knattspyrnu:
VÍXLUN FRAMHERJANNA
leiðir til skemmtilegri leiks og fleiri marka.
Eftir JOHN AKLOTT.
Framh.
„Kúrfa“ markafjöldans komst
hæst með afrekum hinna tækifær-
issinnuðu miðframherja um 1930,
en komst lægst 1948 síðan á dögum
„eins bakvarðar kerfisins“. Mörk-
in gera út um leikina og draga
áhorfendur að, en án þeirra er nú-
tíma skipulögð knattspyma óhugs-
andi. Svarsins er nú beðið frá fram-
herjunum.
Það svar kann vel að vera orð-
ið margraddað áður en yfirstand-
andi leiktímabil er úti. Enn einu
sinni er það ekki alveg nýtt af
nálinni, en hugmyndin um að gera
innherja að oddamanni sóknarinn-
ar hefur aldrei verið sú almenna
Iéikaðferð, sem hún nú virðist ætla
að verða.
Að vísu var hinn eini sanni
Steve Bloomer, sem eitt sinn átti
markametið, hægri innherji, og
það voru einnig þeir Charles Bu-
chan og David Jack (báðir með
Arsenal), sem á sínum tíma skor-
uðu mikið af mörkum, sömuleiðis
voru Billy Walker og Peter Do-
herty vinstri innherjar. En hin
„nýja“ leikaðferð með innherja
fremstan, mætti ef til vill kalla
kerfið með „uppbyggjandi mið-
framherja".
Saga þessarar leikaðferðar er til
þess að gera stutt, og sýnir ljós-
lega þýðingu mögulegs mótleiks
gegn „þriðja bakverðinum“.
Tommy Lawton varð miðfram-
herji Englands mestmegnis vegna
hæfileika sinna til að skora mörk
upp á eigin spýtur. Um lok stríðs-
ins síðasta varð hann oft fyrir því,
að hans var gætt vel og vandlega
af miðframvörðum þeirra megin-
landsliða, sem enska landsliðið lék
gegn. Undir þeim kringumstæðum
kom það iðulega fyrir, að Lawton
skapaði op og tækifæri fyrir inn-
herja sína, með því að draga mið-
framvörðinn frá markinu.
Þann 10. maí 1947 var þessu
síðan beitt við eins ákjósanlegar
aðstæður og hægt er að hugsa sér,
í leik brezka úrvalsins gegn úrvali
meginlandsins á Hampden Park-
leikvellinum. Leikurinn var aug-
lýstur sem „vináttuleikur", háður
í tilefni af endurinngöngu brezku
knattspymusambandanna í FIFA,
en engu að síður varð ekki hjá
því komizt að telja hann alvarleg-
ustu og erfiðustu prófraun, sem
brezk knattspyma hefur gengið í
gegnum fram að því.
Bretar töpuðu hlutkestinu og
hófu því leikinn og innan 20 sek.
hafði Lawton fengið knöttinn við
IÞRÓTTIR
121