Allt um íþróttir - 01.04.1951, Síða 20
Islenzkir íþróttamenn VIQ:
BALDUR JÓNSSON
Baldur Jónsson, íþróttafél. Þór,
Akureyri, hefur orðið:
Ég er borinn í þennan heim 20.
jan. 1930 að Efri-Dálkstöðum á
Svalbarðsströnd í Suður-Þing-
eyjarsýslu, en tæpra 4 mánaða
fluttist ég til Akureyrar og hef
átt heima þar síðan.
Mér er ætlað að segja hér lítil-
lega frá íþróttaferli mínum og
það ætti líka að geta orðið fljót-
legt, því að hann er bæði stuttur
og stórviðburðalítill enda tel ég
mig nú fyrst vera að byrja fyrir
alvöru.
Alla tíð hef ég haft gaman af
hvers konar líkamsæfingum, og
mér er sagt, að 3 ára hafi ég reynt
að stæla handstöðu eldri frænda
míns, og gekk þá mikið á. Snemma
beygðist því krókurinn.
Til 10 ára aldurs kynntist ég
Báldur Jónsson
engum íþróttum af eigin raun,
nema þá helzt einhverjum æfing-
um, sem ég reyndi að apa eftir
eldri strákum. Það kann að virð-
ast undarlegt, að ég skyldi ekki
ganga í annað hvort íþróttafélag
bæjarins, eins og ýmsir jafnaldr-
ar mínir, eða taka þátt í knatt-
spymu eins og þeir, því að ekki
vantaði mig áhugann á íþróttun-
um. En þetta mun hafa stafað af
feimni og óframfæmi.
í bamaskólanum var mér fyrst
kennd leikfimi veturinn 1940—41.
Næsta vetur kom Tryggvi Þor-
steinsson íþróttakennari að skól-
anum, og þakka ég honum fyrst
og fremst þann árangur, sem ég
hef náð — einkum í leikfimi —,
því að auk ágætrar kennslu í henni
veitti hann mér þá andlegu örvun,
sem mér var nauðsynleg. Síðasta
veturinn minn í bamaskólanum
sýndi ég leikfimi í fyrsta skipti í
drengjaflokki, sem valinn var úr
efstu bekkjum skólans. Nú var
áhuginn kviknaður fyrir alvöm,
en veturinn eftir lá allt íþróttalíf
í dvala á Akureyri, þar sem ekk-
ert íþróttahús var til í bænum, og
það held ég að hafi orðið mér
óbætanlegur skaði.
Iþróttafélagið Þór æfði alltaf
sýningarflokka á þessum árum
undir Tryggva stjóm, en ég var
allt of ungur til að vera með full-
orðnum mönnum. Ég byrjaði þó
128
IÞRÖTTIR