Allt um íþróttir - 01.04.1951, Side 34

Allt um íþróttir - 01.04.1951, Side 34
Ávarp um þdtttöku í hinni samnorrœnu sundkeppni. „Þing hins norræna sundsambands hefur ákveðið að efna til sund- keppni milli Norðurlandaþjóðanna í sumar. ísland tekur þátt í þeirri keppni. Þingið ákvað jöfnunartölur, sem reikna skal eftir stig þjóðanna að keppni lokinni. Jöfnunartala íslands var ákveðin hæst, vegna þess, að þingfulltrúar töldu íslendinga mestu sundþjóð Evrópu. Sundskyldan mun eiga sinn þátt í þeim dómi. Hver sundfær Islendingur getur tekið þátt í keppni þessari. Þraut- in er ein og hún er sú, að synda 200 m. bringusund. íþrótta- og ungmennafélög landsins munu, hvert í sínu byggðar- lagi, hafa á hendi forystu og undirbúning norrænu sundkeppninnar. Hlut- ur almennings er sá, að æfa sig í bringusundi og koma á einhvern sund- stað á tímabilinu frá 20. maí til 10. júlí og synda 200 m. bringusund. Jöfnunartala íslands í sambandi við norrænu sundkeppnina er eigi hærri en svo, að íslendingar ættu að geta borið sigur af hólmi. Hér er um hollt og heilbrigt metnaðarmál að ræða. Þess vegna er oss undirrituðum ljúft að beina þeirri áskorun til allra sundfærra íslend- inga, að láta eigi sitt eftir liggja, til þess að vegur vor og heiður í þessum efnum megi vera sem mestur. ÍSLENDINGAR! Hjálpumst að því að létta undirbúningsstarfið. Lærum sund. Æfum sund. Tökum þátt í hinni samnorrænu sundkeppni. íslendingar eru af mörgum taldir mesta sundþjóð í Evrópu. Sýnum það á norrænu sundkeppninni í sumar, að það sé eigi ofmælt. Allir sundfærir íslendingar á sundstað í sumar!‘“ Björn ölafsson menntamálaráðherra Helgi Elíasson Guöm. Kr. GuÖmundsson fræðslumálastjóri form. Iþr.n. ríkisins Bragi Friöriksson form. Iþróttbandal. fram- haldsskóla i Rvík o. nágr. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi Þorgeir Sveinbjarnarson varaforseti I.S.I. Hermann GuÖmundsson í framkv.stjórn I.S.I. Gauti Arnþórsson form. íþróttan. SBS Benedikt G. Waage forseti I.S.l. Þorgils GuÖmundsson gjaldkeri I.S.l. Logi Einarsson í stjórn Sundsamb. Isl. Karl Guömundssön form. íþr.kennarafél. Isl. Erlingur Pálsson form. Sundsamb. Islands Frímann Helgason í framkv.stjórn l.S.Í. Úlfar ÞórÖarson í stjórn Sundsamb. ísl. Kjartan Bergmann Eiríkur J. Eiríksson GuÖrún Pétursdóttir framkv.stjóri l.S.l. sambandsstjóri U.M.F.l. form. Kvenfél.samb. Isl. Stefán Jóli. Stefánsson form. Norræna félagsins Helgi Tómasson skátahöfðingi Guöbjartur Ólafsson form. S.V.F.l. Jón Bjarnason form. Blaðamannafél. ísl. Daníel Ágústínusson sambandsritari U.MÍF.l. 142 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.