Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 3
ALLTUM IÞROTTIR
TÍMARIT U M INNLENDAR □□ ERLENDAR ÍÞRDTTIR
RITSTJDRAR :
RAGNAR INGÓLFSSDN DB ÖRN EIÐSSDN
ÁBYRGÐARMAÐUR:
BÍSLI ÁSMUNDSSON
!□. HEFTI □KTÚBER 1951 II. ÁRG.
UTANÁSKRIFT:
TÍMARITIÐ ÍÞRÖTTIR,
DRÁPUHLÍÐ 32
íjomttamach
ur arámó
1951?
Á síðastliðnu ári tókum við upp
þá nýbreytni að láta lesendur skera
úr um, hver væri „íþróttamaður
ársins“, ef svo mætti að orði kom-
ast. Var vitanlega átt við, hver að
dómi lesenda hefði skarað mest
fram úr, komið mest á óvart eða
haft þau áhrif á lesendur, að hann
eða hún gæti talizt „íþróttamaður
ársins".
Þetta varð að vonum mjög vin-
sælt, og tóku margir þátt í at-
kvæðagreiðslunni, sem lyktaði með
því, að Gunnar Huseby fékk flest
atkvæðin. Nú er meiningin að end-
urtaka þetta og gefst lesendum
kostur á að fylla út atkvæðaseðil,
sem er í þessu hefti og senda fyr-
ir mánaðamót til ritsins. Verður
fróðlegt að sjá, hver úrslitin verða,
því að margir virðast koma til
greina, en auðvitað er þetta alger-
lega á valdi lesendanna, sem at-
kvæðin greiða. Viljum við því
hvetja sem flesta til að taka þátt
í atkvæðagreiðslunni.
í jólaheftinu verður svo, eins og
í fyrra, birt grein og myndir af
þeim, sem hlutskarpastur reynist,
og verður honum einnig afhentur
gripur til minningar um þennan
heiður.
Sendið atkvæðaseðilinn sem allra
fyrst, til þess að vera viss um, að
hann nái fyrir mánaðamótin.
IÞRÓTTIR
325