Allt um íþróttir - 01.10.1951, Blaðsíða 7
1950 og s.l. sumar. Þá má einnig
benda á, að vegna Ólympíuleik-
anna á næsta sumri eru færri
landskeppnir ákveðnar en venju-
lega. Enn er þó ekki útilokað að
íslendingar heyi landskeppni á
næsta sumri.
Ýmsar samþykktir.
Samþykkt var, eftir tillögu ís-
lendinga, að þingið staðfesti hér
eftir Norðurlandamet í ýmsum
greinum karla og kvenna. Enn-
fremur, að fyrir næsta þing yrðu
athugaðir möguleikar á að halda
reglulegt Norðurlandameistaramót
í öllum venjulegum greinum annað
hvort ár.
Þá lá fyrir af hálfu íslands
greinargerð og tillögur um sérregl-
ur um löglegan hámarksmeðvind
í 200 m. hlaupi á beygju og um að
hlaupa fyrri helming í 800 m. hl.
á aðskildum brautum.
Var samþykkt að senda Laga-
og leikreglnanefnd Alþjóðasam-
bands frjálsíþróttamanna (IAAF)
greinargerð íslands um fyrrnefnda
atriðið, en um hið síðamefnda var
ákveðið að gera tilraunir, hver í
sínu landi, með aðskildar brautir
í 800 m. hlaupi fyrstu 200 til 400
metrana.
Samþykkt var að hafa jafnan
ljósmyndara við hendina til að
ljósmynda endaspretti í öllum
hlaupum í landskeppnum á Norð-
urlöndum.
Um stigareikning í landskeppn-
um og aldursákvæði drengja urðu
miklar umræður og var hvoru-
tveggja vísað til hinna einstöku
sambanda til frekari athugunar.
Ákveðið að skiptast á upplýsing-
um um málið og taka það síðan
til endanlegrar afgreiðslu á næsta
þingi.
Breytingar þær, sem Alþjóða-
sambandið hefur nýlega gefið út,
voru mikið ræddar og hin nýja
stigatafla. Var ákveðið að óska
nánari skýringa á hvorutveggja
atriðinu og nýja taflan gagnrýnd
harðlega af íslendingum og Norð-
manninum.
Ólympíuleikarnir og
Norðurlöndin gegn U.S.A.
Lauri Miettinen svaraði fyrir-
spumum um framkvæmd hinna
væntanlegu Ólympíuleika í Hel-
sinki, en hann og Erik Áström eru
í framkvæmdanefnd leikanna. —
Kvað Miettinen opinberan árangur
allra keppenda verða gefinn upp,
hvar sem þeir yrðu í röðinni í
mark. Gaf hann einnig skýringar
á verði aðgöngumiða og uppihalds-
kostnaði, sem fulltrúum þótti all-
hár.
Þá var samþykkt að taka nú
þegar upp samninga við Banda-
ríkjamenn um aðra keppni Norð-
urlandanna gegn U.S.A., sem fara
skyldi fram í Bandaríkjunum 1953.
Áhugamannareglumar voru
nokkuð ræddar og var samþykkt,
að Norðurlöndin stæðu saman um
svipaða afstöðu og undanfarið.
Þá var samþykkt að vinna að
því, að Þing IAAF yrði haldið fyr-
ir Ólympíuleikana í Helsinki, en
ekki eftir leikina, eins og undan-
farið.
IÞRÓTTIR
329