Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 8

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 8
Loks var samþykkt, að næsta Norðurlandaþing yrði haldið í Osló. Á meðan hinir erlendu fulltrúar dvöldu hér, en þeir flugu utan með Gullfaxa s.l. þriðjudag, sátu þeir hóf hjá eftirfarandi aðilum: Stjórn FRÍ, framkvæmdastjóm ÍSÍ, Ólympíunefnd, íþróttanefnd ríkisins, Bæjarstjóm Hafnarfjarð- ar, Frjálsíþróttaráði Reykjavíkur og íþróttafélagi Reykjavíkur. Þá hafði menntamálaráðherra boð inni fyrir fulltrúa þingsins og nokkra aðra gesti í ráðherrabú- staðnum. Þá bauð Reykjavíkurbær þingfulltrúum til hringferðar aust- ur fyrir fjall, en Norræna félagið í Þjóðleikhúsið. Loks sýndi íþrótta- nefnd ríkisins fultrúum helztu íþróttamannvirki í Reykjavík og í sambandi við það fluttu þeir Gísli Halldórsson arkitekt og Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi er- indi. Stjórn Frjálsíþróttasambands ís- lands hafði allan veg og vanda af móttökum hinna erlendu fulltrúa og þinghaldinu. í stjórn FRÍ eiga nú sæti: Garð- ar S. Gíslason, formaður, Jóhann Bernhard, Bragi Kristjánsson, Gunnar Vagnsson og Brynjólfur Ingólfsson. — í varastjórn eru: Jón Guðmundsson á Reykjum, Skúli Guðmundsson og Stefán Sör- ensson. (Fréttatilkynning frá FRÍ). Fréttabréf frá Svíþjóð. Rúnar Bjarnason úr ÍR dvelur nú við nám í Svíþjóð og ætlar að senda rit- inu línur við og við. Nýlega kom fyrsta bréfið frá Rúnari, dags. í Stokkhólmi 27. okt., og hljóðar það á þessa leið: „Ég ætla nú ekki að fara að rita neitt langt bréf núna, bæði sökum ferlegs annríkis í skólanum og jafnframt sökum skorts á and- ríki og fréttum. Samt ætla ég að hripa eitthvað smávegis til að uppfylla loforð, sem erfitt verður að standa við, að skrifa fréttabréf frá Svíþjóð. Síðan ég kom hingað fyrir hálf- um öðrum mánuði hefur að visu margt skeð markvert á sviði íþrótta, en því miður hef ég ekki haft tíma til að fylgjast nákvæm- lega með öllu, sem skeð hefur. Knattspymukeppnin stendur nú sem hæst, og í meistaraflokki er Norrköping nokkuð á undan næstu félögum. Malmö, meistararnir frá undanförnum árum og sem unnu 49 leiki í röð 1948 og ’49, eru aðr- ir nú, en eiga í harðri baráttu við næstu félög. Annars eru Svíar mjög gramir yfir atvinnumanna- vandamálinu. Svo er mál með vexti, að um leið og einn maður stendur sig vel tvo—þrjá leiki í röð, eru agentar frá ítalíu, Spáni eða Frakklandi á hælum hans með 330 ÍÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.