Allt um íþróttir - 01.10.1951, Blaðsíða 9
glæstan samning. Það er því eng-
in furða að illa gangi að koma upp
góðu sænsku landsliði. Svíar hafa
líka tapað landsleikjunum gegn ís-
lendingum, Norðmönnum og Dön-
um í sumar, en því hefðu fáir trú-
að á Ólympíul. ’48. Svíar hafa þó
hug á að gera sitt bezta, og und-
irbúa sig betur undir Helsingfors
næsta sumar.
Frjálsíþróttatíminn er nú á enda
og hefur gengið allvel síðasta mán-
uðinn. Bertil Albertsson setti met
á 10 km. og varð fyrsti Svíinn
undir y2 klukkustund. Hástökkv-
arar eru margir góðir hér, hafa
tveir stokkið yfir tvo metra og er
mikils af þeim að vænta næsta ár.
Lundberg hefur lýst yfir, að næsta
ár verði hann betri í stöng en í
ár, og auk þess ætli hann að reyna
tugþraut, en þar gæti hann kom-
ið á óvart, því að hann er f jölhæf-
ur íþróttamaður og 4.40 í stöng
og 14.7 í grindahlaupi bæta upp
veikar greinar. Vetraríþróttir æfa
menn nú af kappi og hefur bæði
skíða- og skautafólk hér æft síðan
um mitt sumar fyrir vetrar-
ólympíuleikana. Sjást hér oft
myndir af frægum skíðagörpum
þrammandi uppi í fjöllum með
skíðastafi í fögrum blómstrandi
trjálundi. Þeir ætla auðsjáanlega
ekki að vera óviðbúnir, þegar snjór
fer að falla. Handboltakeppni hef-
ur byrjað af krafti nú, en körfu-
bolta hafa Svíar lítinn áhuga á.
Sundmenn eru hér margir góðir,
þrátt fyrir slælega frammistöðu
Svía í samnorrænu sundkeppninni.
Hins vegar held ég, að Svíar hafi
því miður ekki tekið keppnina eins
alvarlega og við gerðum heima.
Þó voru allir mjög hrifnir af
frammistöðu íslendinga og voru
ýmsir að óska okkur íslenzku stúd-
entunum hér til hamingju með sig-
urinn. Nafnið, sem hæst ber meðal
sundmanna hér, er Göran Larsson,
19 ára skólapiltur, sem var valinn
bezti íþróttamaður í september hér
í Svíþjóð. Hann er þegar kominn
niður á ca. 56 sek. á 100 m. skrið-
sundi og samsvarandi tíma á 200
m. Val bezta íþróttamannsins hér
fer fram svo, að nokkrir íþrótta-
leiðtogar raða upp fimm beztu að
sínu áliti og út frá því er reiknað.
Hér eru, auk áðurnefndra greina,
ýmsar íþróttagreinar mjög vinsæl-
ar, sem ekki hafa náð vinsældum
heima og álít ég, að því sé vel far-
ið. íþróttir eins og vélreiðar (=
mótorhjólakappreiðar) og fjöl-
bragðaslagsmál lízt mér ekki á. í
vélreiðunum slasast venjulega
nokkrir við hverja keppni. Einnig
hafa Svíar mikinn áhuga á ratvísi
(= orientering), sem eru hlaup og
staðarákvarðanir í skóginum, en
erfitt væri að koma við slíkum
íþróttagreinum í íslenzku skóg-
unum. Fyrir framan mig liggur
hér nýtt eintak af „Idrottsbladet".
Þar er skýrt frá, að Svíar hafi
fengið 1. og 3. sæti við heimsmeist-
arakeppni í nútíma fimmtarþraut,
en annar varð Finni. Þessi grein
virðist því ætla að verða norrænn
sigur á Ólympíuleikunum. Annars
er þessi tími eins konar millibils-
ástand milli sumar- og vetrar-
írþótta og verður því bréf mitt
ÍÞRÖTTIR
331