Allt um íþróttir - 01.10.1951, Qupperneq 10
HEIMSMEISTARAR í SKÁK V:
Jose Raoul Capablanca y Graupera
1921 —1927
Á síðari helming 19. aldarinnar
var mjög fjörugt og viðburðaríkt
skáklíf í Havana á Kúbu. Skák-
snillingar voru þar tíðir gestir, og
glæsileg og rúmgóð salarkynni
skákfélaga borgarinnar hýstu
mörg merk einvígi, m. a. einvígið
um heimsmeistaratitilinn 1887
milli Steinitz og Tchigorins. Það
er engin tilviljun, að slíkar að-
stæður vilja oft vera samfara til-
komu sterkra skákmeistara, en
það er einkennileg tilviljun, að ári
eftir titileinvígið skyldi þar í
heiminn borinn einstaklingur, sem
síðar átti eftir að hreppa það
hnoss, sem um var keppt.
Jose Raoul Capablanca y Grau-
pera var fæddur 19. nóv. 1888.
Hann lærði ungur að tefla, og fylg-
ir það sögunni, að hann hafi fjög-
urra ára séð föður sinn tefla við
kunningja, og leikur þeirra hafi
vakið athygli barnsins. Tveim dög-
um síðar á hann að hafa tekið eft-
ekki öll lengra að þessu sinni. í
útvarpinu heyri ég nú um einn
skólabróður minn, sem ég að vísu
ekki þekki, að hann eigi að fara
til Ástralíu að keppa í tennis í
Davis-Cup, og virðist hann all-
kvíðinn, sérstaklega vegna þess, að
af honum er mikils vænzt.“
ir röngum riddaraleik föður síns,
sem ekki vildi trúa því, er hann
benti honum á það. Kvað hann
soninn ekki einu sinni kunna mann-
ganginn, en hann á að hafa sýnt
föður sínum það svart á hvítu
með því að máta hann tvisvar.
Þjóðsaga segir einhver, en hvað
um það, 8 ára var hann kominn í
fremstu röð skákmanna Kúbu og
12 ára varð hann skákmeistari eyj-
unnar. Eftir það dró hann sig í hlé
og helgaði sig námi bæði heima
og í New York, þar sem hann las
verkfræði við Columbía-háskólann.
Árið 1909 skapar hann sér
heimsfrægð með því að sigra hinn
þekkta skákmeistara Bandaríkja-
anna Marshall í einvígi með 15—8
og aðeins einu tapi. Varð þetta til
þess, að honum var boðið til stór-
móta í Evrópu, sem hann þó ekki
gat þegið fyrr en 1911. Var hon-
um þá boðið til afar sterks móts
í San Sebastian, þar sem hann
hitti fyrir 14 sterkustu meistara
heimsins fyrir utan heimsmeistar-
ann, Lasker, sem ekki gat komið.
Hann var þó ekki boðinn velkom-
inn í þennan hóp útvaldra. Meðal
þeirra, sem kváðu upp úr um and-
úð sína á þátttöku hans, var Nim-
zowich. Capablanca veitti honum
og öðrum andstæðingum sínum
332
IÞRÓTTIR