Allt um íþróttir - 01.10.1951, Síða 11
eftirminnilega ráðningu, bæði í
einstökum skákum og með því að
sigra í mótinu. Eftir þetta var
hann talinn standa næstur til ein-
vígis um heimsmeistaratitilinn, en
ýmissa orsaka vegna dróst það um
heilan áratug, aðallega vegna
heimsstyrjaldarinnar.
Árið 1921 gat loks orðið af ein-
vígi við Lasker, en hann var þá
brotinn maður á sál og líkama af
völdum ófriðarins og varð það því
öll önnur barátta en hefði orðið
7—8 árum áður. Þegar 14 skákum
var lokið og Lasker hafði enga
unnið (Capablanca 4), gafst hann
upp og Capablanca tók við völdum
í heimi skákarinnar. En konung-
dómur hans varð ekki langvinnur.
Frá því Lasker og Capablanca
hittust fyrst í skákmóti í St. Pét-
ursborg 1914, og þar til í skák-
mótinu í New York 1927, fylgdi
ungur Rússi þeim eftir eins og
skuggi í öllum meiri háttar mót-
um, alltaf þó í nokkurri fjarlægð.
Það var Alexander Alekhine. Eftir
hið mikla skákmót 1927 í New
York, sem var f jórfalt mót 6 sterk-
ustu meistara heimsins og Capa-
blanca hafði unnið með 3Ví> vinn-
ing yfir Alekhine, skoraði sá síð-
arnefndi á hann til einvígis um
heimsmeistaratitilinn. Fór það
fram í Buenos Ayres og má vera,
að vegna yfirburða sinna í N.Y.-
mótinu hafi Capablanca ekki tekið
einvígið alvarlega í fyrstu, því að
í fyrstu skákinni beið hann lægri
hlut, og tókst honum aldrei síðan
að ná yfirhöndinni. Baráttan var
hörð og langvinn, og í 34. skákinni
náði Alekhine að komast 3 vinn-
ingum yfir til að sigra (18y2—
15%).
Capablanca reyndi á næstu árum
að fá tækifæri til annars einvígis,
en er sýnt var, að þær tilraunir
væru unnar fyrir gíg, dró hann
sig í hlé 1931. Helgaði hann sig
þá aðallega starfi sínu fyrir utan-
ríkisráðuneyti Kúbu, sem hann
varð starfsmaður hjá 1913. En
1935 kom hann aftur fram á sjón-
arsviðið, fyrst í smámótum í Eng-
landi án sérstaks árangurs, en fyrr
en varði var hann aftur kominn í
fremstu röð eins og árangur hans
í hinum sterku mótum í Moskva
1935 og 1936 og Nottingham 1936
sýnir: í Moskva 1935 4., vinning
á eftir Botvinnik og Flohr, ári
síðar á sama stað efstur, vinning
á undan Botvinnik og efstur í
Nottingham ásamt Botvinnik, og
á undan Euwe, heimsmeistaranum,
og Lasker og Alekhine. Eftir þetta
tók að halla undan fæti, og í síð-
asta stórmóti hans mistókst hon-
um illa, hann varð 7. meðal 8
sterkustu skáksnillinga heimsins.
Má segja, að það hafi verið eina
skiptið, sem honum brást boga-
listin í skákmóti. Hann var þá far-
inn að þjást af hjartveiki, sem síð-
ar varð honum að aldurtila.
Capablanca lést af hjartabilun í
New York 8. marz 1942.
Capablanca var gæddur óvenju-
lega fjölbreyttum og miklum gáf-
um. Hann var hvort tveggja í senn
stærðfræðingur og málamaður
mikill, og hann mun hafa verið
gæddur meiri og ríkari skákhæfi-
ÍÞRÓTTIR
333