Allt um íþróttir - 01.10.1951, Page 15

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Page 15
HEINO LIPP. Keppir hann á nœstu Olympíuleikjum? Á síðastliðnum fimm til sex ár- ur hefur ekki ósjaldan verið minnzt á nafnið Heino Lipp og þá í sam- bandi við einhver meiri háttar frjálsíþróttaafrek. — Þessi Heino Lipp, sem er Est- lendingur að uppruna, 190 cm. á hæð og tæplega 100 kg. á þyngd, á sér langa íþróttaþjálfun að baki og byrjaði snemma að keppa. Þess er minnzt, að hann tók þátt í tug- þrautarmeistaramóti Estlanos 1940 og varð hann þá annar í röð- inni með 5800 stig. Lipp var þá óharðnaður unglingur, langur og mjór. Svo kom styrjöldin með allar sínar „dásemdir“ og íþróttaiðkanir lágu niðri. En strax og styrjöld- inni lauk fréttist af Lipp, sem nú var orðinn afbragðs kúluvarpari og var reiknaður einna sigur- stranglegastur á E.M. í Osló 1946. En hvernig sem á því stóð, kom hann ekki til keppninnar og Huse- by varð meistari með 15.56, en sama sumar kastaði Lipp 16.12 m. í Moskva. Enn meiri athygli vekur Lipp á sér 1947, er hann þrívegis bætir hið rúml. 10 ára met Woellkes, fyrst í 16.66 og því næst í 16.72 og 16.73. — Margir fóru nú að telja víst, að hann yrði fyrstur Evrópumanna yfir 17 metra, en svo varð þó ekki — a. m. k. ekki ennþá! Hann sneri sér að tug- þrautinni 1948 og öllum til mik- illar undrunar náði hann um 600 stigum meira en Mathias, sem sigr- aði á Ólympíuleikjunum það ár í London. Lipp hlaut 7780 stig, sem þá var þriðji bezti árangur í heimi (nú fimmti). Annars er Lipp ólík- ur öllum öðrum tugþrautarmönn- um að þvi leyti, að hann er ekki góður stökkvari, t. d. náði hann í þetta skipti aðeins 6.55 í lang- stökki og 1.70 í hástökki. En kast- ari og hlaupari er hann aftur á móti góður og gerir það gæfu- muninn. Árið 1950 var enn búizt við Lipp IÞRÓTTIR 337

x

Allt um íþróttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.