Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 16

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 16
á E.M. og nú í Brússel. Hann hafði varpað, kúlunni 16.93 og kastað kringlunni yfir 50 m. og hafði mesta möguleika á sigri í kúlu- varpinu. En ljóshærði Estlending- urinn kom ekki fram á sjónar- sviðið. Menn spurðu — hvers- vegna? En engin skýring var gef- in á þessu. Nú líður senn að Ólympíuleikj- um og er vitanlega víða um heim farið að leiða getur að úrslitum í einstökum greinum. Nafnið Heino Lipp er vissulega eitt af aðal- umræðuefnunum, en hann er álit- inn vera einn af þremur Evrópu- búum, sem hafa möguleika á að sigra í tugþrautarkeppninni. Hann hefur einnig mikla möguleika í kúluvarpi, því í sumar varpaði hann lengst 16.98, sem er nýtt Ev- rópumet. En verður Heino Lipp með? Hver veit? Góður árangur. Náðst hefur góður árangur í nokkrum greinum frjálsíþrótta í haust. Sigurður Júlíusson F.H., varpaði kúlu 14.38 m., sem er fimmti bezti árangur hér á landi í ár. Kristleifur Magnússon Í.B.V. stökk 14.50 í þrístökki, sem er bæði bezti árangur í ár og það lengsta, sem Kristleifur hefur stokkið. Sigurjón Ingason kastaði sleggju 43.92 m. ^preijttu. / *9 Sá, sem getur svarað 8 spurn- ingum rétt, hefur góða þekkingu á íþróttum og íþróttamálum. 1. Hvaða félag notar skamm- stöfunina Í.M.? 2. Hver varð annar í 100 m. hl. á Ólympíuleikjunum í Los Angeles 1932? 3. Hvaða bæjarfélag hafði bezta útkomu í samnorænu sund- keppninni? 4. Hvort var J. Verdeur ólympíu- meistari í 200 m. bringusundi eða 100 m. baksundi? 5. Hver hefur náð næstbezta tíma í heimi í 10 km. hlaupi? 6. Hvaða félag sigraði í fyrsta körfuknattleiksmóti hér á landi? 7. Hvaða ár var Meistaramót ís- lands í frjálsíþróttum háð fyrst? 8. Hvað heitir maðurinn, sem flytur íþróttaþátt útvarpsins? 9. Hver átti íslandsmetið í tug- þraut áður en Örn Clausen tók það? 10. Hvað hlaut Torfi Bryngeirs- son mörg prósent í atkvæða- greiðslunni um íþróttamann ársins 1950? Svör á bls. 345. 338 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.