Allt um íþróttir - 01.10.1951, Blaðsíða 20

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Blaðsíða 20
íslenzkir íþróttamenn XIII: Valdimar Örnólfsson Frá því ég fyrst tók að iðka íþróttir, hafa þær ætíð verið mér kærar, enda veitt mér margar glað- ar stundir. Því er mér ekki á móti skapi að gera hér stutta grein fyr- ir þeim kynnum, er ég hef haft til þessa af íþróttum og skoðun minni á gildi þeirra og gagnsemi. Ég er fæddur vestur í Súganda- firði 9. febr. 1932, og ólst þar upp til þrettán ára aldurs, en þá flutt- ist ég til Reykjavíkur. Hef síðan átt þar heima. Úti á landi, í þorpum og sveit- um, eru skemmtanir heldur fá- breyttar, á móts við það, sem er í borgum og kaupstöðum. Þannig var það heima í Súgandafirði, þeg- ar ég ólst þar upp. Þar voru skemmtanir yfirleitt ekki lagðar upp í hendurnar á okkur krökk- unum, en því betur kunnum við að meta allt það, sem við gátum sjálf gert okkur til gamans. Þar voru því leikir og íþróttir vel þeg- ið viðfangsefni, eins og nærri má geta. Mér er margt minnisstætt frá þessum árum, ekki sízt vetrar- leikirnir. Skíði og skauta lærðum við strákamir fljótt að nota, enda ágæt skilyrði til þess í því vetrar- ríki, sem þar er. Leikni var reynd- ar ekki mikil í meðferð skíðanna, við renndum okkur beint af aug- um, því að annað kunnum við ekki, og oftast voru tækin fremur frum- stæð. Væri mjög æskilegt, að allir íþróttakennarar gætu kennt und- irstöðuatriði skíðaíþróttar, svo al- menn sem hún er nú orðin, en mjög hefur á það skort hingað til. Leikfimi var líka mikið stund- uð vetrartímann, bæði í skólanum og hjá íþróttafélaginu. Nutum við oft afbragðs kennara, sem kunnu að halda vakandi áhuga okkar á þessari sígildu íþrótt. Undirstaða sú, er ég hlaut IÞRÓTTIR 342

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.