Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 27
sambandinu til varðveizlu. Þetta
hefur einnig aukið andúð þá, sem
nú ríkir hjá Dönum og Norðmönn-
um á áhugamannareglum Svía.
Norðurlandakeppnin í ár hefur
borið það með sér, að jöfnuður sé
að komast á með landsliðunum,
þau norsku og finnsku hafi á upp-
leið mætt þeim dönsku og sænsku
á niðurleið. En hvort komið sé á
„status quo“, er enn ekki hægt að
segja neitt um. Svíar hafa ekki
síðan árið 1937 fengið svo slæma
útreið í keppninni sem í ár, og
munaði sannarlega ekki miklu, að
þeir yrðu neðstir með ekkert stig,
því að svo nærri voru þeir ósigri
gegn Finnum. En í hinni 4ra ára
keppni um postulínsvasa, sem
danska knattspyrnusambandið gaf
1948, höfðu Svíar þegar svo mik-
ið forskot (sjá nóv.-heftið í fyrra),
að þeir voru öruggir, hvemig sem
færi. Endanleg úrslit í keppninni
um Norræna bikarinn urðu:
Svíar ..... 12 7 2 3 36-22 16
Danir...... 12 7 0 5 19-15 14
Norðmenn . . 12 5 3 4 23-24 13
Finnar..... 12 1 3 8 11-28 5
Frá leik Svía við Finna er skýrt
í þættinum um Finnland. Leikur-
inn við Norðmenn fór fram í
Gautaborg 30. sept. Þá varð ljóst,
á hvaða stöðum „útflutningurinn"
hefur bitnað harðast, en það er á
„tríóinu". Svíar verða nú að viður-
kenna þann bitra sannleika, að þeir
eigi ekki eftir innherja á borð við
Norðmenn og jafnvel Finna. Sví-
amir léku mjög vel úti á miðjum
vellinum og sköpuðu sér mun fleiri
tækifæri en Norðmennimir, en
skotin voru ömurleg. Sérstaklega
hefur Áke Jönsson, sem lék mið-
framherja hér í sumar, v. innh.,
verið gagnrýndur fyrir léleg skot.
Nálgast það, að honum sé kennt
um ósigurinn! Boye-Karlsen skor-
aði úr vítaspymu eftir 7 mín. og
Dahlen skoraði aftur á sömu mín-
útunni, en eftir stundarfjórðung
höfðu Svíar jafnað: Rydell skor-
aði á 13. og Lindh með vítaspymu
á 22. mín. Mikill hraði var í leikn-
um, sem var vel leikinn og tví-
sýnn til síðustu stundar. Rydell
skoraði svo aftur eftir 52 mín., en
Bredesen, sem talinn var snjall-
asti leikmaðurinn á vellinum, jafn-
aði 12 mín. síðar. Á 71. mín. fengu
Svíar aftur á sig vítaspyrnu og
skoraði Boye-Karlsen sigurmarkið,
markið sem færði Norðmönnum
Norðurlandatitilinn 1951.
Eftir hina einstöku sigurför
Malmö í Allsvenskan er það nokk-
ur tilbreyting að fá þar svolítil
umskipti.
Eftir hvarf Nordahls-bræðranna,
Sundquists og Liedholms til ítalíu
hafa Norrköpings-Kamratema átt
misjafna ævi, duttu eitt sinn nið-
ur í 12. sæti um tíma. Á síðasta
leiktímabili varð vart framfara og
aukinnar festu í liðinu, en fáa
mun hafa grunað, að liðið mundi
geta skotið MFF aftur fyrir sig.
Liðið er nú skipað ungum leik-
mönnum að mestu, og hefur því
tekizt að tileinka sér Vínarstílinn.
Norrköping hefur eins og önnur
sterkari félaga Svía allar klær úti
til að lokka til sín efnilega leik-
menn úr neðri deildunum. Einkum
IÞRÓTTIR
349