Allt um íþróttir - 01.10.1951, Page 28

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Page 28
hefur það látið greipar sópa um Norður-Svíþjóð, þar sem þáð m. a. fékk Nordahls-bræðuma, og leikur nú sá 4. með liðinu. í núverandi liði er aðeins 1 leikmaður „heima- alinn“. Liðið var ósigrað í síðustu 5 leikjum síðustu keppni og er ósigr- að það sem af er þeirri, sem nú stendur yfir. Jafntefli varð gegn MFF (1-1) og Örebro (2-2). MFF hefur sýnt misjafnan leik, stund- um glæsilegan, en einnig fyrir neðan allar hellur. Það hefur tap- að báðum leikjum sínum í Gauta- borg, fyrir Gais (1-0) og Kam- raterna (2-1). Staðar en nú í All- svenskan þessi: Norrköping 10 8 2 0 25- 6 Malmö 10 7 1 2 24- 5 Göteborg 10 6 2 2 28-15 Djurgárden 10 6 1 3 16-14 GAIS 10 4 3 3 17-13 Hálsingborg 10 4 2 4 18-13 Jönköping 10 4 1 5 17-17 Örebro 10 4 1 5 16-30 Degerfors 10 3 2 5 14-15 Elfsborg 10 2 2 6 17-21 Ráá 10 1 2 7 9-27 Átvidaberg 10 0 3 7 11-31 18 15 14 13 11 10 9 9 8 6 4 3 Spánn. Þótt ekki séu fleiri en 16 félög í I. deild, falla fjögur þau neðstu niður við lokauppgjörið á vorin, eða fjórði hluti. Þau 4, sem bættust við í haust, liggja nú öll neðst með 1—2 stig eftir 4 leiki. Efst eru Valencia með 8 stig og Atletico Madrid með 7 stig. Danmörk. Frammistaða lands- liðsins gegn Norðmönn- um og Finnum í sept., gaf ekki mikil fyrirheit um, að það sækti gull í greipar „erki- óvinarins“, sænska landsliðsins. Það er heitasta ósk danskra knatt- spyrnuunnenda að sigra Svía, og hvernig sem gengið í landsleikjum hefur verið í næstu leikjum áður, er allt fyrirgefið og gleymt, aðeins ef Svíinn verður að lúta í lægra haldi. Sigurinn í Idrætsparken varð Dönum afar kærkomin uppreisn eftir ósigurinn í fyrra í Stokk- hólmi. Danska liðið, sem var mjög breytt frá fyrri leikjum og kom al- gerlega áóvænt, einkum sóknarlín- an. Aftur á móti voru sömu sjúk- dómseinkennin á leik Svíanna og áður, góður samleikur á vellinum, en léleg skot. Reyndar sigruðu Danir ekki á öruggu valdi á leikn- um, öllu fremur á hlutdrægni ham- ingjudísanna, þeim heppnuðust skot úr svipaðri aðstöðu og Sví- unum brugðust. Þeir gerðu nú til- raun með nýja skipan tríósins, fluttu framvörðinn Lindh í fram- línuna og miðfrh. Rydell til hliðar. Milli þeirra settu þeir svo Reino Börjesson, sem var varamaður hér í sumar. Enda þótt hann sé marka- hæstur í Allsvenskan, var mark- heppnin ekki í lagi. Lindh brást alveg. Enda þótt Svíar fengju 1 mark skráð á sinn reikning, voru það þó Danir, sem sáu um öll mörk leiksins. Sjálfsmark Dananna (Bastrup-Birk) kom um miðjan 350 ÍÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.