Allt um íþróttir - 01.10.1951, Page 34
ISLENDINGAR TAKA ÞATT
í SKÍÐAKEPPNI
VETRAR-ÓLYMPÍULEIKJANNA
Ólympíunefnd íslands hefur nú
ákveúið að gera ráð fyrir þátttöku
sex skíðagöngumanna í Vetrar-
Ólympíuleikunum í Osló. Ekki er
þó ákveðið hverjir það verða, en
að öllum líkindum verða það Þing-
eyingar og ísfirðingar. Þeir munu
keppa í 18 og 50 km. göngu og
4x10 km. boðgöngu. Nefndin hef-
ur ekki ennþá tekið afstöðu til
þátttöku í öðrum greinum skíða-
íþrótarinnar.
Þessi samþykkt er gerð í sam-
ráði við álit stjórnar Skíðasam-
bands íslands og skíðagöngukenn-
ara þess, sem er Johannes Ten-
mann. Tenmann dvaldi hér á landi
við kennslu í fyrravetur við góð-
an árangur. Hann kom síðan aft-
ur hingað til lands 1. október og
hefur dvalið í Þingeyjarsýslu og
nú á ísafirði við kennslu.
1 næstu blöðum verður rætt
frekar um þátttöku íslands í
Vetrar-Ólympíuleikjunum.
ÁSKRIFTARSEÐILL
Ég undirritaður gerist hér með áskrifandi að tíma-
ritinu „Allt um fÞRÓTTIR“ og sendi meðfylgjandi kr.
40.00 upp í árgjaldið.
Nafn ....................
Heimili ............
Póststöð ...........
Til tímaritsins ÍÞRÓTTIR,
Drápuhlíð 32, Reykjavík.
356
IÞRÓTTIR