Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.01.2015, Qupperneq 40

Fréttatíminn - 30.01.2015, Qupperneq 40
40 vetrarfjör Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015 Sportleg ullarnærföt á alla fjölskylduna Frábær merino ullarnærföt sem henta í alla útivist: Göngur – hlaup – veiði – fjallgöngur – skíði – hjólreiðar – útilegur ... og allt hitt líka. Þótt Íslendingar kalli ekki allt ömmu sína þegar kemur að vetrarhörkum og fimbulkulda þá þurfa þeir líkt og aðrir að eiga góðan skjólfatnað. Baselayer ullarfötin frá Marathon Sportswear eru tilvalinn ullarklæðnaður fyrir fólk á öllum aldri sem stundar útivist af kappi. F lestir þekkja það að æða út í fallegu gluggaveðri og upp-götva, rétt fyrir utan dyrnar sínar að veturinn er langt því frá að vera liðinn. Það að sólin skíni skært á fagur- bláum himni segir iðulega lítið til um hitastigið utandyra. Það er því nauðsynlegt fyrir okkur að eiga hlý undirföt, sem gera okkur kleift að sinna leik og störfum í því hrekkjótta veðurfari sem við búum við. Baselayer ullarnærfötin hafa fengið góðar viðtökur hér á landi undanfarna mánuði, enda eru þessi ullar- nærföt hönnuð með þarfir útivistarfólks í huga. Þau henta því íslensku veðurfari einstaklega vel. Gæði og þægindi í fyrirrúmi Vefnaðurinn byggir á tveggja laga Baselayerkerfi sem inni- heldur annars vegar rafprjónað polyester og hins vegar hreina merino ull. Innra lagið er unnið þannig að efnið er gert afar mjúkt en helstu töfrar þess eru að jákvætt hlaðnar fjölliður eða katjónir í efninu flytja allan raka frá líkamanum til ytra lagsins sem inniheldur merino ull. Ullin hefur þá eiginleika að geta tekið til sín allt að 30% raka af eigin þyngd en það þýðir að sá sem klæðist fatnaðinum upplifir aldrei að fatnaðurinn sé rakur, heldur helst líkaminn alltaf þurr og hlýr. Ullarfötin virka best utandyra eða við hitastig frá -20°C til +5°. Fatnaður á alla fjölskylduna Línan er fáanleg í stærðum M-XL2 fyrir karla og stærðum S-XL fyrir konur. Börnin fá líka pláss í þessari línu en þar er hún fáanleg fyrir aldurinn 6-14 ára. Tvær litatýpur koma fyrir hvern hóp fyrir sig þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Stækkandi fyrirtæki Ullarnærfötin frá Marathon eru framleidd í verksmiðjum JBS Textile Group í Evrópu. Fyrirtækið hefur á síðustu 75 árum haslað sér völl sem einn af stærstu undirfataframleiðendum á Norðurlöndunum og hafa verið frumkvöðlar í hönnun og mark- aðsetningu nærfatnaði fyrir herra. Fyrirtækið skaut sér nýverið inn á alþjóðegan markað með samningum við fótboltakempuna Christiano Ronaldo, en CR7 nærfata- og sokklína hans hefur notið gríðarlegara vinsælda um allan heim. Unnið í samstarfi við Rún heildverslun Baselayer ullarFötin eru Fáanleg á eFtirtöldum stöðum Hagkaup Afreksvörur – Glæsibæ Icewear – Akureyri Bjarg – Akranesi Fjarðarkaup – Hafnarfirði Jói Útherji – Reykjavík JMJ – Akureyri Hafnarbúðin – Ísafirði Kaupfélag V-Húnvetninga Kaupfélag Skagfirðinga Nesbakki – Neskaupstað Skóbúð Húsavíkur – Húsvík Blossi – Grundarfirði Efnalaug Dóru – Hornafirði Efnalaug Vopnafjarðar Siglósport – Siglufirði Heimahornið – Stykkishólmi Grétar Þórarinsson – Vestm.eyjum Lýðheilsu- og forvarnarverkefni Ferðafélags Íslands P áll Guðmundsson, fram-kvæmdastjóri FÍ, segir að félagið hafi í auknum mæli lagt áherslu á lýðheilsu og forvarn- arverkefni í starfi sínu. „Við höfum á undanförnum árum farið af stað með ýmis gönguverkefni þar sem boðið er upp á reglulegar ferðir, auk fræðslu um náttúru, sögu og örnefni, og ekki síður um búnað og öryggismál.“ Páll segir það mikið ánægjuefni að áhugi landsmanna á útivist, náttúru og gönguferðum sé sífellt að aukast. Áhuginn nær nú til breiðari aldurshóps en áður og því var ákveðið að stofna Ferðafélag barnanna fyrir nokkrum árum, sem sérhæfir sig í ferðum fyrir börn og fjölskyldur. „Sú hugmynd fékk afar góðar viðtökur og nú erum við með í undirbúningi stofnun Ferðafélags unga fólksins sem er hugsað fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 25 ára.“ Mikill fjöldi ferðamanna Ferðafélag Íslands hefur verið í far- arbroddi í ferðamennsku og byggt upp skála, gönguleiðir, göngubrýr og staðið fyrir margs konar fræðslu í gegnum tíðina. „Stór þáttur í útgáfu- starfi félagsins er útgáfa Árbókar Ferðafélagsins sem hefur komið út óslitið í 85 ár og er einstök ritröð um náttúru landsins,“ segir Páll. Auk- inn ferðamannastraumur til lands- ins hefur ekki farið framhjá félaginu. „Ísland er greinilega vinsæll staður að sækja heim og eins hefur ferðum landsmanna innanlands fjölgað. Við þurfum því að hugsa til lengri tíma og hlúa að náttúrunni og bæta aðstöðuna sem við bjóðum upp á,“ segir Páll. Fjölbreytt fjallaverkefni á nýju ári Ferðafélag Íslands heldur úti nokkr- um fjallaverkefnum sem öll eiga það sameiginlegt að ganga út á reglu- legar f jallgöngur, heilsubót og góðan félagsskap. Verkefnin byrja í upphafi árs þegar þátttakendur fá í hendurnar fyrirfram ákveðna fjalladagskrá fyrir allt árið. „Megin- markmið allra þessara verkefna er útivera, náttúruupplifun, gleði og góður félagsskapur,“ segir Páll. Eitt fjall á viku er alhliða fjalla- námskeið ætlað þeim sem vilja gera útivist að lífsstíl. „Gengið er á 52 fjöll á einu ári eða að meðaltali á eitt fjall á viku. Fjallgöngurnar eru með hent- ugri stigmögnun fyrir þá sem eru að stíga upp úr sófanum, því byrjað er á lágum fjöllum í nágrenni Reykja- víkur,“ segir Páll, en bendir þó á að fyrr en varir eru þátttakendur svo komnir upp á krefjandi fjöll eins og Skarðsheiði og Eyjafjallajökul. Á námskeiðinu Eitt fjall á mánuði er boðið upp á tvö erfiðleikastig. Annars vegar fyrir byrjendur í fjall- göngum, þá sem vilja koma sér af stað að nýju eftir hlé sem og þá sem vilja koma reglulegum fjallgöngum inn í dagatalið sitt. Hins vegar er boðið upp á göngur fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af fjallgöng- um þar sem ráðist er til uppgöngu á aðeins erfiðari og krefjandi fjöll. Lýðheilsu- og forvarnarverkefnið The Biggest Winner er sérstaklega ætlað fyrir feita, flotta og frábæra sem þora, geta og vilja. Um er að ræða gönguferðir fyrir fólk í yfir- vigt þar sem boðið verður upp á ró- legar göngur, stöðuæfingar, fræðslu og mælingar. Lögð er áhersla á að vinna með þátttakendur á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Páll segir að á síðastliðnum fimm árum hafa fleiri þúsund manns tekið þátt í þessum verkefnum, svo áhug- inn er vissulega til staðar. Nánari upplýsingar um dagskrá og verð á námskeiðum má finna á heimasíðu Ferðafélagsins, www.fi.is Unnið í samstarfi við Ferðafélag Íslands Ferðafélag Íslands býður upp á fjöldann allan af gönguferðum á ýmsum erfiðleikastigum. Ferðafélag Íslands hefur í áraraðir stuðlað að uppbyggingu í ferðaþjónustu og stuðlað að bættri aðstöðu fyrir ferðamenn á hálendinu og í óbyggðum. Ferðafélagið hefur einnig staðið að útgáfu fjölda bóka og korta, sem og fjölbreyttum ferðum um landið, allan ársins hring.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.