Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 48
48 heilsa Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015
Rekstrarvörur til fjáröflunar
– safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV
FÓ
TB
O
LT
I
BA
DM
IN
TO
N
SU
N
D
HA
N
DB
O
LT
I
KÖ
RF
UB
O
LT
I
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV
1113
Er æfingaferð,
keppnisferð,
útskriftarferð eða
önnur kostnaðarsöm
verkefni framundan?
Síðustu 30 árin hafa félagar í
íþróttafélögum, kórum og öðrum
félagasamtökum aflað sér fjár
á einfaldan hátt með sölu á WC
pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og
öðrum fjáröflunarvörum frá RV.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
Grísakjöts-útsala
999kr.kg
Verð áður 1524 kr. kg
Grísakótilettur
34%afsláttur
ÍS
LE
NS
KT
Heilsa Nýjar opiNberar ráðleggiNgar um mataræði birtar
Safi telst
ekki með
Aukin neysla á jurtaafurðum og minni neysla
dýraafurða er meðal þess sem ráðlagt er í nýjum
opinberum ráðleggingum embættis landlæknis
um mataræði. Safi úr grænmeti eða ávöxtum
telst ekki með þegar hvatt er til þess að neyta 5
skammta af ávöxtum eða grænmeti á dag.
e mbætti landlæknis gaf í vikunni út nýjar opin-berar ráðleggingar um mataræði fyrir fullorðna
og börn frá tveggja ára aldri. Þar
er meiri áhersla en áður lögð á
umhverfismál og ef ráðlegging-
unum er fylgt er það jákvætt fyrir
umhverfið þar sem aukin neysla á
jurtaafurðum og minni neysla dýra-
afurða hjálpar til við að takmarka
losun gróðurhúsalofttegunda. Að
auki er mælt með að skipuleggja
vel innkaup og eldamennsku og
þannig má draga úr matarsóun og
vernda umhverfið.
Íslenskar ráðleggingar um
mataræði byggja á norrænu nær-
ingarráðleggingunum. Norrænu
næringarráðleggingarnar eru
endurskoðaðar á um það bil átta ára
fresti. Ráðleggingarnar eru fyrst
og fremst forvarnarráðleggingar
ætlaðar heilbrigðu fólki með það
að markmiði að efla heilsu bæði til
skamms og langs tíma litið.
Í nýjum íslenskum ráðleggingum
eru engar stórstígar breytingar
heldur frekar breyttar áherslur. Nú
er lögð rík áhersla á mataræðið í
heild sinni og á mat úr jurtaríkinu
sem er trefjaríkur frá náttúrunnar
hendi, svo sem á grænmeti, ávextir,
ber, heilkornavörur, baunir, linsur,
hnetur og fræ. Meiri áhersla er
á gæði fitu og kolvetna frekar en
magn, það skiptir fyrst og fremst
máli úr hvaða mat við fáum fituna
og kolvetnin.
Einnig er mælt með að borða
feitan og magran fisk, olíur, fitu-
minni mjólkurvörur og kjöt og vatn
til drykkjar. Hins vegar er mælt
með að takmarka neyslu á unnum
matvörum sem innihalda oft mikið
af mettaðri fitu, sykri eða salti.
Sem dæmi má nefna gosdrykki,
sælgæti, kex, kökur, snakk, skyndi-
bita og unnar kjötvörur. Með þessu
mataræði er talin minni hætta á
flestum fæðutengdum langvinnum
sjúkdómum. Ítarlega umfjöllun
um ráðleggingarnar er að finna á
vefnum Landlaeknir.is
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ráðleggingarnar í
hnotskurn:
1. Fjölbreytt fæði í hæfilegu magni.
2. Ávextir og mikið af
grænmeti.
Borða 5
skammta af
grænmeti
og ávöxtum
á dag eða
minnst 500
g samtals.
Safi telst ekki
með í 5 á dag.
Velja gjarnan gróft
grænmeti eins og t.d.
rótargrænmeti, spergil-
kál, hvítkál og blómkál.
3. Heilkorn minnst tvisvar á dag. Æskilegt er að velja brauð og aðrar matvörur
úr heilkorni.
4. Fiskur tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Mælt er með að ein af fiskmáltíðunum sé feitur fiskur.
5. Kjöt í hófi. Velja lítið unnið, magurt kjöt. Takmarka neyslu á rauðu kjöti við 500 g á
viku. Takmarka sérstaklega neyslu á unnum
kjötvörum.
6. Fituminni og hreinar mjólkurvörur. Ráðlagt er að velja sem oftast fituminni, ósykraðar
eða lítið sykraðar mjólkurvörur án sætuefna.
Hæfilegt magn eru 2 skammtar á dag.
7. Mýkri og hollari fita. Feitur fiskur, lýsi, jurta-olíur, hnetur, fræ og lárperur eru góðar upp-
sprettur hollrar fitu.
8. Minna salt. Velja lítið unnin matvæli, enda eru mikið unnin matvæli yfirleitt saltrík og
takmarka notkun á salti við matargerð.
9. Minni viðbættur sykur. Drekka lítið eða ekkert af gos- og svaladrykkjum og gæta hófs í neyslu
á sælgæti, kökum, kexi og ís.
10. Taka inn D-vítamín sem fæðubótarefni, annaðhvort lýsi eða D-vítamíntöflur.
Ráðlögð er fjölbreytni í
hverri máltíð, þriðjungur
grænmeti eða ávextir,
þriðjungur heilkorna-
pasta, hýðishrísgrjón,
bygg kartöflur eða gróft
brauð, og þriðjungur
próteinrík matvæli svo
sem fiskur, kjöt, egg
eða baunir. Ljósmynd/
Landlaeknir.is
Ráðlagt er að
borða 5 skammta
af ávöxtum og
grænmeti á dag
eða minnst 500
grömm samtals.
Safi telst ekki með
í 5 á dag. Ljósmynd/
NordicPhotos/Getty