Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 60
Í takt við tÍmann HallfrÍður Þóra tryggvadóttir
Rekur sælkeraeldhús
með kærastanum
Staðalbúnaður
Ég hef rosalega mikinn áhuga á tísku og
fallegum munum. Mér finnst gaman að
versla erlendis og þá í litlum hönnunar-
búðum ásamt Weekday & Other Stories.
Hér heima er ég hrifnust af Aftur,
Spútnik og Zöru. Ég er mikið fyrir hatta,
áberandi skart og föt með sál. Ég er nær
alltaf með skart frá Kríu og hálsmen frá
Marokkó. Stíllinn minn er sambland
af töffara og fínni konu, ég get þess
vegna verið í pels og leðurbuxum
við.
Hugbúnaður
Ég er rosa mikið fyrir
kaffi. Mér finnst best
að drekka ítalskt kaffi
heima en það er líka
ótrúlega huggulegt
að fara á kaffihúsið
Pallett, sem er nýtt
og pinkulítið, í
Hafnarfirði. Svo
finnst mér yndis-
legt að sitja og
spjalla eða
vinna á Kaffi-
brennsl-
unni. Ég
reyni að
sjá nær
allar
leik-
sýn-
ingar og horfi mikið á kvikmyndir. Um
þessar mundir er ég að horfa á kóreskar
kvikmyndir og óskarsmyndirnar. Ég
geri ekki mikið af því að djamma, ég
reyni frekar að nýta helgarnar í að hitta
vinina.
Vélbúnaður
Ég er með Macbook Air og iPhone og
finnst mjög þægilegt að vera með tölvu-
póstinn í símanum og geta farið inn á
samfélagsmiðla. Ég nota Facebook og
Instagram mikið, ég er ekki en þeirra
sem kommenta á allt en ég set inn gull-
mola úr lífi mínu. Ég er meira í mynda-
deildinni og set inn landslagsmyndir,
vinamyndir eða myndir frá sérstökum
tilefnum.
Aukabúnaður
Ég var mjög dugleg við að fara út að
borða en er nú byrjuð að elda meira
heima. Ég og kærastinn minn erum
smám saman að færa okkur í þá átt að
reka sælkeraeldhús heima. Við eldum
tælenskt og ítalskt og bökum bæði brauð
og kökur. Ég keyri um á Mözdu 3 sem er
smábíll með sportívafi. Hann passar við
mig, er bæði settlegur og töffaralegur.
Ég hef gaman af að ferðast út á land og
um síðustu helgi fór ég með frábæru
fólki á Snæfellsnes. Þetta var leikhúsferð
í storminum og við sáum leiksýninguna
Mar sem fjallar um sjóslys. Þetta var æð-
isleg ferð. Ég er farin að hlakka til að fá
sumarið en nú er ég að skipuleggja sund-
bíó sem verður laugardaginn 7. febrúar í
Sundhöllinni. Þetta er hluti af Vetrarhá-
tíð í Reykjavík, það er ókeypis inn og
þetta mun krydda aðeins tilveruna.
Hallfríður Þóra Tryggvadóttir er 24 ára
og starfar sem verkefnastjóri viðburða
og kynningarmála hjá kvikmyndahá-
tíðinni RIFF og dagskrárstjóri Stúd-
entakjallarans. Hallfríður útskrifast úr
bókmenntafræði við HÍ í næsta mánuði
með lögfræði sem aukafag. Hún er
dugleg að horfa á bíómyndir og fara í
leikhús og nýtur þess að drekka ítalskt
kaffi.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
myndlist sýning arcangel Í HafnarHúsinu
Stafræn tækni og
list leidd saman
Sýningin Margt smálegt eftir banda-
ríska listamanninn Cory Arcangel
verður opnuð í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi, á morgun, laug-
ardaginn 31. janúar, klukkan 16 að
viðstöddum listamanninum. Sýning-
arstjóri er Michael Bank Christoffer-
sen en sýningin er unnin í samstarfi
við HEART – Herning listasafnið í
Danmörku.
Cory Arcangel, fæddur 1978, hefur
þrátt fyrir ungan aldur þegar skapað
sér nafn í listaheiminum sem frum-
kvöðull sem leiðir saman stafræna
tækni og list. Hann gerir teikning-
ar, skúlptúra, ljósmyndir og mynd-
bandsverk á stafrænu formi en hefur
jafnframt vakið mikla athygli fyrir
að breyta tölvuleikjum með því að
hakka sig inn í tölvukóða, segir m.a.
í tilkynningu Listasafnsins.
Á sýningunni eru ný verk eftir
listamanninn og úrval eldri verka
sem hann hefur sérstaklega endur-
unnið fyrir sýninguna.
„Cory Arcangel hefur notið mik-
illar velgengni og virðingar víða um
heim og haldið fjölda sýninga í gall-
eríum og þekktum söfnum eins og
Carnegie Museum of Art, New Mu-
seum of Contemporary Art, Whitney
Museum of American Art, Barbican
og MoCA í Miami. Verk hans má finna
í safneignum MoMA, Smithsonian og
Tate. Hann er einnig á mála hjá Team
galleríinu í New York, Lisson galleríi
í London og Thaddaeus Ropac galleríi
í París og Salzburg.“
Sýningin stendur til 12. apríl næst-
komandi.
Cory Arcangel er frumkvöðull sem leiðir saman stafræna tækni og list.
Síðasta útsöluhelgin
70%
Nýjar vörur frá
KLAPPARSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · SÍMI 571 4010
60 dægurmál Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015