Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 58
Listamaður á söguslóðum
Sýning á pennateikningum eftir
danska málarann Johannes Larsen,
sem hann gerði á ferðum sínum um
Ísland árin 1927 og 1930, verður opn-
uð á morgun, laugardaginn 31. janú-
ar, klukkan 15, í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar.
Árið 1926 stóðu rithöfundarnir
Gunnar Gunnarsson og Johannes
V. Jensen fyrir því að gefa út danska
þýðingu Íslendingasagna í tilefni
þess að árið 1930 voru eitt þúsund ár
liðin frá stofnun Alþingis á Þingvöll-
um. Danski listmálarann Johannes
Larsen (1867-1961) var fenginn til að
fara til Íslands og festa á teikniblokk
sína helstu sögustaði landsins. Hann
kom tvisvar til Íslands í þessum til-
gangi, 1927 og 1930 og ferðaðist á
hesti, oft við erfið skilyrði.
Á þessum ferðum sínum teiknaði
Johannes Larsen um þrjú hundruð
tússteikningar. 188 þeirra birtust í
bókunum. Á sýningunni verða um 30
teikningar sem eru í eigu afkomenda
listamannsins.
Jafnhliða sýningunni kemur út bók-
in Listamaður á söguslóðum eftir Vi-
beke Nørgaard Nielsen. Þar rekur hún
ferðir Larsen um Ísland. Í bókinni er
einnig að finna 72 af myndum Johann-
esar Larsen, sem birtust í Íslendinga-
sögunum. Sigurlín Sveinbjarnardóttir
þýddi. Ugla gefur út.
Sýningunni lýkur 22. mars.
Knafahólar, Eyjafjallajökull og Þrí-
hyrningur. Teikning frá árinu 1927 eftir
Johannes Larsen.
LeikList HaLaLeikHópurinn frumsýnir tíu LitLa strandagLópa
Spenna fram á síðustu
mínútu á sviðinu
Halaleikhópurinn hefur verið starfandi í 23 ár innan Sjálfsbjargar og í kvöld, föstudagskvöld,
frumsýnir hópurinn leikritið Tíu litlir strandaglópar eftir Agöthu Christie í leikstjórn Guðjóns
Sigvaldasonar. Einn leikaranna, sem jafnframt er framkvæmdastjóri sýningarinnar, er Guð-
ríður Ólafsdóttir og hefur hún verið viðriðin leikhópinn frá upphafi. Hún segir spennu ríkja
fyrir kvöldinu.
Þ etta hefur gengið vel og allir voða spenntir og til-hlökkunin fyrir frumsýn-
ingunni er mikil,“ segir Guðríður
Ólafsdóttir frá Halaleikhópnum.
Leikverkið Tíu litlir strandaglóp-
ar byggði Agatha á eigin metsölu-
bók sem seld hefur verið í yfir
100 milljónum eintaka. „Tíu litlir
strandaglópar“ eða morð á morð
ofan segir söguna af 10 einstak-
lingum sem er boðið af dularfull-
um hjónum í helgarferð á kletta-
eyju. Gestirnir eru ekki fyrr búnir
að koma sér fyrir þegar einn þeirra
deyr grunsamlega. Öll eru þau
strand og komast ekkert. Gestgjaf-
inn, sem sést hvergi, ásakar hvert
og eitt þeirra í hljóðupptöku, um
að hafa sloppið undan réttvísinni
vegna morðs sem þau eiga að hafa
framið. „Það eru 11 leikarar í sýn-
ingunni, bæði fatlaðir og ófatlaðir.
Við byrjuðum æfingar í nóvember,
tókum svo frí yfir jólin og í janúar
höfum við æft nánast daglega,“
segir Guðríður.
Halaleikhópurinn var stofnaður
árið 1992 og byrjaði sem áhuga-
hópur innan Sjálfsbjargar og hef-
ur Guðríður verið með frá byrjun.
„Við höfum sýnt öll árin, og stund-
um tvær sýningar á ári,“ segir
Guðríður. „Það vinna allir saman
og allir vesenast í öllu, sem er mjög
skemmtilegt. Við höfum oft reynt
að gera eitthvað aðeins öðruvísi
og við höfum tekið marga höfunda
fyrir. Eitt árið settum við upp Fíla-
manninn, þar sem allir leikararnir
voru fatlaðir, nema sá sem lék aðal-
hlutverkið,“ segir Guðríður. „Það
vakti mikla athygli og þótti klókt
hjá okkur. Í verkinu í ár hlökkum
við til að halda spennunni í áhorf-
andanum fram á síðustu mínútu,“
segir Guðríður Ólafsdóttir frá
Halaleikhópnum. Frumsýning er
í kvöld og allar upplýsingar um
næstu sýningar er að finna á Fa-
cebook síðu Halaleikhópsins.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Halaleikhópurinn hefur æft stíft undanfarna mánuði og frumsýnir í kvöld Tíu litla
strandaglópa eftir Agöthu Christie.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SNJALLÚRMest selda snjallúr í heimi er nú loksins
fáanlegt á Íslandi. Pebble úrið er með
baklýstum LED 1.26” e-paper skjá,
BT 4.0 og allt að 7 daga rafhlöðu :)16.900
HELGAR
A
Ð
EI
NS
ÞESSA HELG
I
VERÐ ÁÐUR 1
9.
9
0
0TILBOÐ
FYRSTIR KOMA
FYRSTIR FÁ:)
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
58 menning Helgin 30. janúar-1. febrúar 2015
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 31/1 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00
Sun 1/2 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00
Lau 7/2 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 8/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00
Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 15/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00
Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 1/2 kl. 20:00 Fös 6/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00
Fim 5/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00
Aðeins sýnt út febrúar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 1/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 17:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00
5 stjörnu sýning að mati gagnrýnanda
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 30/1 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00
Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Lau 31/1 kl. 20:00 Aukas. Mið 11/2 kl. 20:00 aukas. Mið 18/2 kl. 20:00 12.k
Sun 1/2 kl. 20:00 7.k. Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Fim 19/2 kl. 20:00
Fim 5/2 kl. 20:00 8.k. Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas.
Fös 6/2 kl. 20:00 9.k Sun 15/2 kl. 20:00 11.k
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Beint í æð! – HHHH , S.J. F.bl.
leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Fös 30/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 7/2 kl. 19:30 18.sýn Fös 20/2 kl. 19:30 21.sýn
Lau 31/1 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/2 kl. 19:30 19.sýn Lau 21/2 kl. 19:30 22.sýn
Fim 5/2 kl. 15:00 Aukas. Lau 14/2 kl. 19:30 20.sýn
Fös 6/2 kl. 19:30 17.sýn Fim 19/2 kl. 19:30 Aukas.
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Konan við 1000° (Kassinn)
Sun 1/2 kl. 19:30 44.sýn Sun 8/2 kl. 19:30 46.sýn Sun 15/2 kl. 19:30 lokas.
Mið 4/2 kl. 19:30 45.sýn Fim 12/2 kl. 19:30 47.sýn
Athugið - síðustu sýningar. 5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Karitas (Stóra sviðið)
Sun 1/2 kl. 19:30 31.sýn Sun 15/2 kl. 19:30 33.sýn
Sun 8/2 kl. 19:30 32.sýn Sun 22/2 kl. 19:30 34.sýn
Athugið - síðustu sýningar. Seiðandi verk sem hlotið hefur frábærær viðtökur.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 14/2 kl. 13:00 Frums Lau 21/2 kl. 13:00 5.sýn Lau 28/2 kl. 13:00 9.sýn
Lau 14/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 21/2 kl. 15:00 6.sýn Lau 28/2 kl. 15:00 10.sýn
Sun 15/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 22/2 kl. 13:00 7.sýn Sun 1/3 kl. 13:00 11.sýn
Sun 15/2 kl. 15:00 4.sýn Sun 22/2 kl. 15:00 8.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 12.sýn
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Ofsi (Kassinn)
Fös 30/1 kl. 19:30 Fös 6/2 kl. 19:30 Lau 14/2 kl. 19:30
Lau 31/1 kl. 19:30 Fös 13/2 kl. 19:30
Allra síðustu sýningar!
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS