Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 68
vetrarhátíð 5.-8. febrúar 20154
Vetrarhátíð er hátíð ljóss og myrkurs og verður
haldin í tólfta sinn 5.-8. febrúar næstkomandi.
Á hátíðinni fær magnað myrkur að njóta sín en
hátíðin verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi
listamanna, safna og sundlauga taka þátt í að
skapa einstaka stemningu í borginni.
Safnanótt
Safnanótt fer fram föstudagskvöldið 6.
febrúar en þá munu yfir fjörutíu söfn í
öllum sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu opna dyr sínar og bjóða upp
á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá
frá klukkan 19 til miðnættis. Íbúar
og gestir borgarinnar á öllum aldri
geta sótt Safnanótt sér að kostnaðar-
lausu og tekið sér far með sérstökum
Safnanæturstrætó sem mun ganga á
milli allra safnanna. Á Safnanótt gefst
gestum tækifæri til að taka þátt í leik.
Með því að svara þremur laufléttum
spurningum og safna stimplum frá
þremur mismunandi söfnum geta þátt-
takendur unnið til veglegra verðlauna.
Hægt verður að nálgast þátttökublað
leiksins á öllum söfnum sem taka þátt
í Safnanótt.
Sundlauganótt
Sundlauganótt fer fram laugardags-
kvöldið 7. febrúar. Frítt verður í sund
frá klukkan 20 til miðnættis í völdum
sundlaugum í öllum sveitarfélögum
á höfuðborgarsvæðinu og er gestum
boðið að koma og njóta sérstakrar
stemningar í mögnuðu myrkri. Ljós,
myrkur og gleði verða allsráðandi, þar
sem gestir eru hvattir til að taka þátt
með því að dansa, syngja eða slaka á
og njóta stundarinnar. Á Ylströndinni í
Nauthólsvík munu gestir getað slakað á
og notið myrkursins baðaðir kyndla-
ljósi. Á Sundlaugarnótt fer fram sér-
stakur Sundlauganæturleikur. Hægt er
að taka þátt í leiknum með því að svara
laufléttri spurningu sem svar fæst við í
sundlauginni sem sótt er. Þátttökublað
leiksins er hægt að nálgast í öllum
sundlaugunum og er skilað í þar til
gerða kassa.
Edmonton Calling
Í fyrra var sú nýjung tekin upp á Vetr-
arhátíð að bjóða gestaborg að taka þátt
í hátíðarhöldunum. Í ár er Edmonton
í Kanada gestaborg Vetrarhátíðar og
munu listamenn frá borginni sameina
krafta sína með íslenskum listamönnum
undir nafninu Edmonton Calling. Boðið
verður upp á ljóðakvöld í Ráðhúsinu
og tónleika í Iðnó á opnunarkvöldi
Vetrarhátíðar, fimmtudaginn 5. febrúar.
Bókmenntaborgin Reykjavík býður upp
á ljóðakvöld þar sem fram kemur Mary
Pinkoski, ljóðahöfundur frá Edmonton,
ásamt Antoni Helga Jónssyni og Elíasi
Knörr. Ljóðakvöldið hefst klukkan 20.30
og fer fram í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Á tónleikunum munu tón-
listarmenn frá Reykjavík og Edmonton
stilla saman strengi sína og flytja tónlist
hvers annars með skemmtilegri útkomu.
Tónleikarnir fara fram í Iðnó og hefjast
klukkan 21.30.
Snjófögnuður
Sérstök snjódagskrá er nýjung á dag-
skrá Vetrarhátíðar í ár. Snjóbrettapartí
verður á Arnarhóli á opnunarkvöldi
hátíðarinnar 5. febrúar í boði Mint
Snow í samstarfi við Bláfjöll þar sem
færustu snjóbrettamenn sýna listir
sínar eins og þeim einum er lagið undir
taktföstum skífuþeytingi plötusnúðs.
Öllum er velkomið að mæta með skíði
eða bretti og taka þátt. Dagskráin hefst
klukkan 20 og lýkur klukkan 21.30.
Sunnudaginn 8. febrúar verður fjöl-
skyldudagur í Bláfjöllum. Snjó og birtu
verður fagnað í Bláfjöllum á lokadegi
Vetrarhátíðar. Fjölskyldustemning
verður í Bláfjöllum og afsláttur veittur
af skíðum og brettum í leigu ókeypis
verður fyrir 15 ára og yngri auk þess
sem plötusnúður mætir á svæðið þeytir
skífum frá klukkan 14.00. Skíðasvæðið
verður opið frá klukkan 10 til 17.
HEimSdagur barna
Heimsdagur barna verður haldinn
hátíðlegur laugardaginn 7. febrúar.
Dagurinn hefur lengi verið órjúfanlegur
hluti Vetrarhátíðar. Í ár verður sú breyt-
ing á að auk listasmiðja í Gerðubergi
verður dagskráin í boði á fleiri starfs-
stöðum Borgarbókasafns; í Spönginni,
Kringlunni og Sólheimum. Á Heims-
deginum býðst börnum, unglingum
og fjölskyldum þeirra að kynnast
öðrum menningarheimum með því að
taka þátt í fjölbreyttum listasmiðjum
og njóta margs konar skemmtunar. Í
smiðjunum verður meðal annars hægt
að hanna sinn eigin vampírubúning,
gera efnafræðibrellur með dularfullum
vökvum, skapa sitt eigið furðugæludýr
og dulbúast með glæsilega grímu. Dag-
skrá Heimsdagsins er birt á sjö tungu-
málum auk íslensku og að sjálfsögðu
eru allir velkomnir.
ljóSliStavErk
Ljóslistaverk af ýmsu tagi hafa sett sterkan svip á Vetrarhátíð í
gegnum tíðina. Í ár mun Marcos Zotes opna Vetrarhátíð 2015 á
fimmtudagskvöldið með ljósainnsetningunni Ljósvörðu sem umbreytir
Hallgrímskirkju og þekur yfirborð þessa þekkta kennileitis í kraftmikilli
sjónrænni upplifun. Sama kvöld mun hinn margrómaði ljósalista-
maður Jakob Kvist sýna verk sitt „Hvaða lit sem þú vilt“ á Austurvelli.
Verkið samanstendur af 60 flúrlýstum túbum, raðað hlið við hlið í
sexhyrndu formi. Áhrifavaldur verksins er litahjólið úr bokinni „Theory
of Colours“ eftir Johann Wolfgang von Goethes.
Félagar úr Ljóstæknifélagi Íslands munu setja upp Skuggaspil í
Perlunni og mun gestum gefast kostur á að leika sér við skuggann
sinn í margbreytilegum litum og lögun. Gosbrunninum í Perlunni
verður einnig umbreytt, en hann mun þeytast upp úr dulúðlegum
kjallaranum í mettum ljóslitum. Aðalinngangur Perlunnar verður
einnig með breyttu sniði. Lifandi ljós í litum og hreyfingu mun leika
um bogadregið glerþak inngangsins, auk þess sem trick lampar munu
gefa ákveðin form sem gestir fylgja á leið sinni inn í húsið. Dagskráin í
Perlunni hefst strax á fyrsta degi Vetrarhátíðar.
Glerhjúpur Hörpu verður lýstur upp með Vetrarhátíðarverki sem
Ólafur Elíasson hannaði sérstaklega fyrir Vetrarhátíð í fyrra og heitir
„Holding hands with Reykjavík.“ Gestir Vetrarhátíðar geta séð þetta
ljóslistaverk Ólafs Elíassonar þá daga sem hátíðin stendur yfir, en
síðan verður því skipt aftur út fyrir hefðbundar ljósaraðir frá Ólafi sem
eru í eigu Hörpu.
MeginViðburðir VetrarhÁtíðar
V etrarhátíð er haldin á stór Reykja-víkursvæðinu og munu öll bæjar-félög taka þátt. Stærstu viðburðir hátíðarinnar eru Sundlauganótt
og Safnanótt ásamt ljóslistaverkum sem
munu lýsa upp skammdegið á ævintýra-
legan hátt. Aðrir skemmtilegir viðburðir há-
tíðarinnar eru Edmonton Calling tónleikar
og ljóðakvöld og Heimsdagur barna. Einnig
verður boðið upp á sérstaka snjódagskrá
fyrir áhugafólk um vetraríþróttir.
Undirbúningur fyrir Vetrarhátíð hefur
staðið yfir síðan í október og heldur starfs-
fólk Höfuðborgarstofu utan um framkvæmd
hátíðarinnar. „Megintilgangur Vetrarhá-
tíðar er að skapa skemmtun í skammdeg-
inu,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir,
kynningarstjóri Vetrarhátíðar. Á Vetrarhátíð
er unnið með myrkrið þar sem ljóslistaverk
fá að njóta sín og fólki er gefinn kostur á að
njóta menningar og skemmtunar á þessum
dimmu og löngu vetrardögum. Vetrarhátíð
samanstendur af sex meginviðburðum og
þar undir eru samanlagt yfir 200 viðburðir.
„Það ættu því allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi, hvort sem það er fjölskyld-
an, saumaklúbburinn, vinahópurinn eða
annað.“
Sigríður Dögg segir sérstöðu Vetrarhá-
tíðar felast í að hún fer fram í öllum sveitar-
félögum höfuðborgarsvæðisins. „Markmið-
ið er að allir íbúar á höfuðborgarsvæðinu
geti sótt viðburði í sínu nágrenni.“ Af nógu
verður að taka á þessum dimmu vetrardög-
um þar sem magnað myrkur fær að njóta
sín. Allir viðburðir hátíðarinnar eru gestum
að kostnaðarlausu og er þar með séð til þess
að allir íbúar höfuðborgarsvæðisins geti
notið kraftmikils menningarlífs og góðrar
samveru yfir alla hátíðina. Hefðbundnir
sem óhefðbundnir listunnendur ættu því að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hægt er
að kynna sér betur dagskrána á heimasíðu
Vetrarhátíðar, www.vetrarhatid.is
Magnað myrkur
í bland við ljós-
listaverk á
Vetrarhátíð
Verk eftir Marcos Zotes