Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 73
vetrarhátíð5.-8. febrúar 2015 9
17:30–17:50
Vasaljósasögustundir
Sagðar verða myrkar sögur í barnadeild-
inni á 2. hæð aðalsafns Borgarbókasafns
18:00–18:20
Vasaljósasögustundir
Sagðar verða myrkar sögur í barnadeild-
inni á 2. hæð aðalsafns Borgarbókasafns
20:30–22:30
Ljóðaslamm Borgarbókasafns
Keppni í orðlist með frjálsri aðferð fyrir
ungt fólk á aldrinum 15-25 ára. Þema
kvöldsins er SYKUR.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Grófarhúsi
Tryggvagata 15
21:00–21:40
Trausti Laufdal leikur eigin tónlist
Trausti Laufdal spilar blússkotið popp/
rokk í bland við dægurlaga- og sálartónlist.
Trausti sendi frá sér sína fyrstu plötu árið
2013. Platan, sem heitir eftir listamann-
inum sjálfum, hlaut góðar viðtökur gagn-
rýnenda sem og tónlistarunnenda. Trausti
vinnur nú að gerð nýrrar plötu.
19:30–21:30
Allt sem við týnum er á vísum stað
Borgarskjalasafn Reykjavíkur sýnir
kvikmyndina Magnús frá árinu 1989 með
leyfi Þráins Bertelssonar. Magnús vakti
mikla athygli á sínum tíma og var hluti
myndarinnar tekinn upp í þáverandi skjala-
geymslum safnsins.
19:00–21:00
Ástin í fyrirrúmi - Gerðu Valent-
ínusarkort
Borgarskjalasafn býður fólki að koma og
gera Valentínusarkort eins og sköpunargleð-
in blæs þeim í brjóst en Valentínusardagur
er 14. febrúar. Leiðbeinandi í kortagerð er
Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður og
safnið býður upp á föndurefni.
19:00–23:59
Opið hús á Borgarskjalasafni á
Safnanótt
Boðið verður upp á sýningu á skjölum, að
föndra eigin Valentínusarkort, tónlistarat-
riði, kvikmyndasýningu og fleira.
Grafíksafn Íslands Íslensk grafík
Hafnarhúsinu hafnarmegin
Tryggvagata 17
19:00–23:59
Listamaður Grafíkvina 2015
Listamaður Grafíkvina 2015 er Aðalheiður
Valgeirsdóttir. Í sal verður sýning á verkum
hennar og útgáfa grafíkvinamyndarinnar
“Brot” kynnt.
Hallgrímskirkja
Eiríksgata
19:30–23:59
Ljósvarða
Hallgrímskirkju verður umbreytt með
ljósainnsetningu sem þekur yfirborð þessa
þekkta kennileitis í kraftmikilli sjónrænni
upplifun.
Ingólfstorg
Aðalstræti
11:00–11:30 og 13:00–13:30
Nornasögustund
Myrkra- og galdrasögur í sögubílnum
Æringjar á Ingólfstorgi.
Landnámssýningin í Aðalstræti
Aðalstræti 16
19:00–23:59
Hrafnagaldur og hnefatafl
Meðlimir Hrafnagaldurs munu flytja
kyngimagnaða þjóðlagatónlist á Land-
námssýningunni í Aðalstræti á Safnanótt.
Hægt verður að tefla hnefatafl og fara í
fleiri forna leiki. Frítt er inn á safnið og allir
velkomnir.
Listasafn ASÍ
Freyjugata 42
19:00–19:45
#KOMASVOASÍMARAÞONIÐ
- VERÐLAUNAAFHENDING #KO-
MASVO LJÓSMYNDA KEPPNINNAR
Afhend verða verðlaun fyrir sigurvegara
#KOMASVO ljósmynda keppninnar við
formlega athöfn á listasafni ASÍ.
20:00–20:45
#KOMASVOASÍMARAÞONIÐ - UM-
RÆÐUR UM #KOMASVO KEPPNINA
#KOMASVO hópurinn leiðir umræður og
svarar spurningum um hugmyndafræði
#KOMASVO like-keppninar. Hvernig fær
maður sem flest like? Er hægt að kaupa
like og frá hverjum?
21:00–23:45
#KOMASVOASÍMARAÞON - ÓKEYP-
IS VÖNDUÐ MARAÞON VINNSLA
MEÐ NOKKRUM LEYNI LEIÐURUM
Teiknimaraþon leiðsagnarmaraþon
videomaraþon gjörningamaraþon og
leikurinn í beinni! Pylsur hamborgarar
nammi og gos! Allir velkomnir hvenær
sem er. Leikurinn í beinni! Leynigestir
óvissuferð og margt margt fleira. Leikurinn
í beinni! Vinnsla sem fáir mega missa af!
Listasafn Einars Jónssonar
Eiríksgata 8
20:30–22:00
KRAKKKBOT - BLAK MUSK - ÚT-
GÁFUTÓNLEIKAR
Raftónlistarmaðurinn KRAKKKBOT flytur
tónlist af nýlegri plötu sinni BLAK MUSK í
styttugarði Listasafns Einars Jónssonar.
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegur 7
19:00–20:00
Leiðsögn um slóðir íslenskra lista-
manna í Þingholtunum
Leiðsögn fyrir nýja íslendinga um slóðir
Ásgríms Jónssonar, Ásmundar Sveins-
sonar og Einars Jónssonar og söfn þeirra í
Þingholtunum. Stoppað við söfnin en gestir
geta síðan heimsótt þau að göngu lokinni.
Gangan hefst í Hannesarholti og lýkur í
garði safns Einars Jónssonar.
20:00–21:00
Gönguferð um slóðir íslenskra
listamanna í Þingholtunum
Leiðsögn fyrir nýja Íslendinga um slóðir
Ásgríms Jónssonar, Ásmundar Sveins-
sonar og Einars Jónssonar og söfn þeirra
í Þingholtunum. Stoppað við söfnin en
gestir geta síðan heimsótt þau að göngu
lokinni. Gangan hefst í Hannesarholti og
lýkur í garði safns Einars Jónssonar.
Listasafn Reykjavíkur
- Ásmundarsafn
Sigtún
13:00–17:00
A posteriori: Hús höggmynd
Samsýning átta listamanna en verk þeirra
eru unnin ýmist út frá raunverulegri eða
ímyndaðri byggingarlist sem endurspegla
liðna tíð. Sjálft Ásmundarsafn er hluti af
sýningunni bæði sem hús og höggmynd.
19:00–20:00
Leiðsögn á Ensku: Kathy Clark
Kathy Clark fjallar um verk sitt á
sýningunni A posteriori: Hús höggmynd.
Kathy býr til innsetningar sínar úr tilbúnum
hlutum, fundnum hlutum og orðum og
hún notar hluti og tákn til að sýna til-
finningalegar eða sálrænar upplifanir sem
algengar eru í nútímasamfélögum.
21:00–22:30
Tónleikar Duo Harpverk
Tónleikar Duo Harpverk en sveitina skipa
hörpuleikarinn Katie Buckley og slagverks-
leikarinn Frank Aarnink.
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús
Tryggvagata 17
10:00–17:00
Cory Arcangel: Margt smálegt
Sýning á verkum eftir listamanninn Cory
Arcangel sem hefur skapað sér nafn sem
frumkvöðull í því að leiða saman stafræna
tækni og list.
20:00–23:59
Opnun á sýningunni Nýmálað I
Sýningin er yfirlit um stöðu málverksins á
Íslandi en í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum
verða sýnd verk 85 starfandi listmálara.
Krystal Carma (Arnljótur Sigurðsson) spilar
fyrir gesti frá kl. 20.30 til miðnættis.
Listasafn Reykjavíkur -
Kjarvalsstaðir
Flókagata
10:00–17:00
Einars Hákonarson: Púls tímans
Yfirlitsýning á verkum Einars Hákonarson-
ar sem ná yfir rúmlega 50 ára feril lista-
mannsins allt frá æsku- og skólaverkum og
til ársins 2014.
10:00–17:00
Ljóðrænt litaspjald úr safneign
Kjarvals
Sýning á verkum úr safneign Kjarvals en
hann skildi eftir sig mikið lífsverk sem
verður að teljast einn af mikilvægari
þáttum menningararfs íslensku þjóðar-
innar.
19:00–21:00
Varúð: Nýmálað!
Námskeið í listmálun fyrir 14 ára og eldri
í Hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum.
Leiðbeinandi er Myndlistarmaðurinn
Þorvaldur Jónsson.
20:00–21:00
Tónleikar Tríós Reykjavíkur
Kvöldtónleikar Tríó Reykjavíkur innan um
verk Kjarvals.
21:30–22:30
Leiðsögn á pólsku um sýningarnar
á Kjarvalsstöðum
Wiola Ujazdowska listfræðingur frá
Póllandi, sem búsett er á Íslandi, stýrir
leiðsögn á pólsku um sýningarnar á Kjar-
valsstöðum og segir frá sögu Listasafns
Reykjavíkur.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugarnestangi
20:00–20:30
Johannes Larsen sýning í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Leiðsögn Vibeke Nørgaard Nielsen um
sýningu á verkum danska listmálarans
Johannes Larsen. Johannes Larsen kom
tvisvar til Íslands í þeim tilgangi að veita
dönskum lesendum innsýn í atburðasvið
Íslendingasagna. Vibeke Nørgaard Nielsen
er sýningastjóri sýningarinnar og mikill
Íslandsvinur.
21:30–22:00
Johannes Larsen sýning í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Leiðsögn Vibeke Nørgaard Nielsen um
sýningu á verkum danska listmálarans
Johannes Larsen. Johannes Larsen kom
tvisvar til Íslands í þeim tilgangi að veita
dönskum lesendum innsýn í atburðasvið
Íslendingasagna. Vibeke Nørgaard Nielsen
er sýningastjóri sýningarinnar og mikill
íslandsvinur.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Tryggvagata 15
19:00–23:59
Rockabilly með Smutty Smiff og
leiðsögn með Braga Þór Jósefssyni
ljósmyndara
Bragi Þór Jósefsson leiðir fólk um sýningu
sína Varnarliðið og segir frá myndunum
sem teknar voru af yfirgefnu svæði varnar-
liðsins í Keflavík. Í kjölfarið mun Smutty
Smiff spila fyrir okkur rockabilly tónlist og
dansarar taka sveiflu. Reimið því á ykkur
dansskóna og sveiflið ykkur með!
Myntsafn Seðlabanka og Þjóð-
minjasafns, Seðlabanki Íslands
Kalkofnsvegur
19:00–23:59
Seðlar og mynt, nóbelsverðlaun og
höggmyndir, kvikmyndasýning og
tónlist.
Fróðleg og skemmtileg kvöldstund fyrir
alla. Leiðsögn um myntsafnið, högg-
myndagarður opinn, getraun, tónlist og
gaman.
Norræna húsið
Sturlugata
12:00–23:00
700IS Myndbreyting
700IS Hreindýraland er nú haldið í tíunda
og síðasta skiptið. 700IS Hreindýraland
hefur frá upphafi gefið listamönnum það
rými sem þarf til að prófa sig áfram og
gera tilraunir.Á Safnanótt lifnar sýningin
við listamenn spjalla við gesti og gangandi
og segja frá verkum sýnum.
Nýlistasafnið
Völvufell 21
20:00–21:00
Hópsýning
Örn Alexander Ámundason verður með
leiðsögn um sýninguna Hópsýning milli
kl 20:00 og 21:00. Þetta er jafnframt
lokadagur sýningarinnar.
Safn Ásgríms Jónssonar
Bergstaðastræti 74
20:30–21:00
Safnanótt í safni Ásgríms Jóns-
sonar
Rakel Pétursdóttir verður með leiðsögn um
sýningu safnsins. Heitt á könnunni.
Sjóminjasafnið íReykjavík
Grandagarður 1
19:00–23:59
Safnanótt - Tónleikar í varðskipinu
Óðni og sjóræningjar
Tónleikar með Cryptochrome Sometime
og Hljómsveitt í varðskipinu Óðni. Inni
á safni verður sjóræningjadagskrá
með ratleik og föndri fyrir fjölskylduna
og starfsmenn allir uppáklæddir sem
sjóræningjar.
Sögusafnið
Grandagarður 2
17:00–23:59
VÍGALEGIR VÍKINGAR
Óútreiknanlegir víkingar frá víkingafélag-
inu Rimmugýgi heimsækja Sögusafnið á
safnanótt þar sem þeir munu sýna vopn
sín og fatnað. Þeir munu spjalla við gesti
og gangandi og skemmta eins og þeim er
einum lagið.
Verkstæði Íslensk Grafík Hafnar-
húsinu hafnarmegin
Tryggvagata 17
20:00–21:00
NEONderthals-grafík
Á verkstæði félagsins verður NEONdert-
hals-grafík framin í anda magnaðs myrkurs
með hjálp Safnanæturgesta.
Þjóðminjasafn Íslands
Suðurgata 41
19:00–19:40
Draugagangur á Þjóðminjasafninu
– Stranglega bannað fullorðnum
Leiðsögn um íslenska drauga sérstaklega
ætluð börnum.
20:00–20:30
Óvænt uppákoma
Óvænt uppákoma í grunnsýningu Þjóð-
minjasafns Íslands. Látið ykkur ekki vanta!
21:00–22:30
Húsið
Kvikmyndasýning í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands. Sýnd verður
kvikmyndin Húsið.
23:00–23:40
Draugagangur á Þjóðminjasafninu
– Ekki fyrir viðkvæma
Draugaleiðsögn um sýningarsali Þjóð-
minjasafnsins fyrir þá sem þora.
Þjóðskjalasafn Íslands
Laugavegur 162
19:00–23:59
Skjalasýning
Sýnishorn skjala sem tengjast viðfangsefni
kvöldsins.
19:00–23:59
Öl er innri maður
Í ár eru 100 ár liðin frá því að áfengisbann
tók gildi á Íslandi og 80 ár frá því var aflétt
að mestu. Dagskrá Þjóðskjalasafns Íslands
er helguð þessum tímamótum.