Fréttatíminn - 30.01.2015, Blaðsíða 70
vetrarhátíð 5.-8. febrúar 20156
Magnús Árnason og Davíð Arnar Oddgeirsson standa fyrir snjóbrettapartýi við Arnarhól á Vetrarhátíð. Ljósmynd/Hari
Listasafn Reykjavíkur býður gestum
Safnanætur í opnunarpartí sýningar-
innar Nýmálað 1 þann 6. febrúar.
Listasafn Reykjavíkur
býður í partí á Safnanótt
Safnanótt verður föstudaginn 6. febrúar en hún er hluti af Vetrarhátíð. Listasafn Reykjavíkur, sem
samanstendur af Hafnarhúsinu, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni, stendur fyrir margs konar við-
burðum á Safnanótt þar sem myndlist og tónlist er blandað saman á líflegan og skemmtilegan hátt.
Á Kjarvalsstöðum verður ör-námskeið í listmálun fyrir 14 ára og eldri. Yfirskrift
námskeiðsins er Varúð: Nýmálað
og mun myndlistarmaðurinn Þor-
valdur Jónsson leiðbeina þátttak-
endum, en hann tekur þátt í sam-
sýningunni Nýmálað 1 sem sett
verður upp í Hafnarhúsi og á Kjar-
valsstöðum í vetur. Um er að ræða
svokallað örnámskeið, en það fer
fram milli klukkan 19 og 21 á Safna-
nótt. Varúð: Nýmálað er fyrsta ör-
námskeiðið af mörgum sem verða
í boði í vetur.
Kjarval á pólsku og tónleikar
Tríós Reykjavíkur
Wiola Ujazdowska, listfræðingur
frá Póllandi sem búsett er á Íslandi,
stýrir leiðsögn á pólsku um sýning-
arnar á Kjarvalsstöðum og segir
frá sögu Listasafns Reykjavíkur. Á
Kjarvalsstöðum má sjá sýningarnar
Einar Hákonarson: Púls Tímans og
sýninguna Ljóðrænt litaspjald, með
verkum úr safneign Kjarvals. Leið-
sögnin fer fram milli klukkan 21.30
og 22.30. Tríó Reykjavíkur mun svo
halda kvöldtónleika innan um verk
Kjarvals og hefjast þeir klukkan
átta. Tríóið er skipað Guðnýju Guð-
mundsdóttur fiðluleikara, Gunnari
Kvaran sellóleikara og Peter Máté
píanóleikara.
Gleymdar langanir og tón-
leikar á Ásmundarsafni
Kathy Clark fjallar um verk sitt á
ensku, á sýningunni A posteriori:
Hús, höggmynd. Kathy býr til inn-
setningar sínar úr tilbúnum hlutum,
fundnum hlutum og orðum og hún
notar hluti og tákn til að sýna til-
finningalegar eða sálrænar upplif-
anir sem algengar eru í nútímasam-
félögum. Leiðsögnin mun fara fram
milli klukkan 19 og 20. Klukkan 21
hefjast svo tónleikar með Duo Harp-
verk, en dúettinn var stofnaður árið
2007 af hörpuleikaranum Katie
Buckley og slagverksleikaranum
Frank Aarnink.
Opnunarpartí sýningarinnar
Nýmálað 1
Stærst i v iðburður Listasafns
Reykjavíkur á Safnanótt er án efa
opnun sýningarinnar Nýmálað 1.
Á síðustu árum hefur verið mikil
gróska í málaralist víða um heim.
Til að gefa yfirlit um stöðu mál-
verksins á Íslandi efnir safnið til
tveggja sýninga í Hafnarhúsi og á
Kjarvalsstöðum þar sem verk 85
starfandi listmálara eru sýnd. Svo
víðtæk úttekt á íslensku samtíma-
málverki hefur ekki verið gerð
áður. Sýningarstjórar eru Hafþór
Yngvason og Kristján Steingrímur
Jónsson. Opnunin fer fram í Hafn-
arhúsinu á Safnanótt milli klukkan
20 og 24. Efnt verður til heljarinn-
ar veislu og mun plötusnúðurinn
Crystal Karma halda uppi fjörinu
frá klukkan 20.30 til miðnættis.
Berghildur Erla Bernharðsdóttir,
kynningar-og markaðsstjóri Lista-
safns Reykjavíkur, segir að lögð sé
áhersla á að bjóða upp á skemmtilega
og líflega dagskrá en auk hennar eru
alls sex sýningar í gangi í Listasafni
Reykjavíkur. Ungir sem aldnir eiga
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi
á Safnanótt Vetrarhátíðar.
Unnið í samstarfi við
Listasafn Reykjavíkur
Snjórinn spilar
stórt hlutverk
á Vetrarhátíð
Sérstök snjódagskrá er nýjung á dagskrá Vetrarhátíðar í ár. Snjó-
brettapartý verður á Arnarhóli á opnunarkvöldi hátíðarinnar, 5.
febrúar, og á lokadeginum, 8. febrúar, verður fjölskyldudagur í
Bláfjöllum.
V etrarhátíð hefur hingað til lagt áherslu á listir og sund og okkur fannst vanta við-
burð sem einkennir veturinn á Ís-
landi. Þá kom snjór að sjálfsögðu
fyrst upp í hugann og til varð sú hug-
mynd að gera einfalda brettaaðstöðu
í Reykjavík,“ segir Magnús Árnason
sem situr í stjórn Vetrarhátíðar og er
framkvæmdastjóri skíðasvæðanna á
höfuðborgarsvæðinu.
Snjóbrettapallur við Arnarhól
Hugmyndin vatt svo upp á sig og
var Davíð Arnar Oddgeirsson sem
starfar hjá sprotafyrirtækinu Mint
Snow fenginn til liðs við hátíðina,
en hann sér meðal annars um gerð
sérstaks snjóbrettapalls sem verður
settur upp við Arnarhól. „Á opnun-
arkvöldi Vetrarhátíðar sem fer fram
5. febrúar munu færustu snjóbretta-
menn sýna listir sínar eins og þeim
einum er lagið á snjóbrettapallin-
um við Arnarhól undir taktföstum
skífu þeytingi plötusnúðs,“ segir
Magnús. Dagskráin hefst klukkan
20 og lýkur klukkan 21:30. Gest-
ir Vetrarhátíðar eru hvattir til að
mæta með sín eigin snjóbretti eða
free style skíði og leika listir sínar.
Magnús vonast til að veðurguðirn-
ir muni hugsa til þeirra en ef þarf
verður snjórinn einfaldlega fluttur
úr Bláfjöllum. „Það þarf alltaf að
vera með eitthvað varaplan á svona
viðburðum.“
Fjölskyldudagur í Bláfjöllum
Sunnudaginn 8. febrúar verður
svo fjölskyldudagur í Bláfjöllum.
„Þar munum við fagna snjónum og
birtunni í sannkallaðri fjölskyldu-
stemningu. Afsláttur verður veitt-
ur af skíðum og brettum í leigu
og ókeypis verður fyrir 15 ára og
yngri,“ segir Magnús. Einnig stend-
ur til að bjóða upp á alls konar tón-
listaratriði í Bláfjöllum þennan dag.
Skíðasvæðið verður opið frá klukk-
an 10 til 17.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
T vær sýningar standa nú yfir í Hafnarborg. Sýning-in Neisti fer fram í Sverris-
sal, en þar eru sýnd málverk og
teikningar eftir Hönnu Davíðsson
(1888–1966), sem bjó í Hafnarfirði
og nánast allt sitt líf og lagði stund
á myndlist mótaða af aðstæðum
kvenna við upphaf tuttugustu aldar.
Á Safnanótt mun Ólöf K. Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður Hafnarborg-
ar, leiða gesti um sýninguna. Leið-
sögnin hefst klukkan 20.45.
Klukkan 21.15 hefst listamanna-
spjall með Heklu Dögg Jónsdótt-
ur myndlistarmanni þar sem hún
ræðir við gesti um þá svarthvítu
veröld sem hún hefur skapað fyrir
sýninguna Framköllun. Sýningin
er sjálfstæður svarthvítur heimur
þar sem sköpun, úrvinnsla, miðlun
og viðtaka listaverks eiga sér stað í
sama rými.
Áslaug Íris Friðjónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Hafnarborgar, segir að
líta megi á listakonurnar tvær sem
fulltrúa ólíkra tíma bæði hvað varðar
þá hugmynda- og aðferðafræði sem
einkenna vinnu listamannsins og þá
stöðu sem konur taka sér í samfé-
laginu og innan listheimsins. „Í ár eru
auk þess liðin 100 ár frá því að konur
fengu kosningarétt og það er áhuga-
vert að horfa á sýningarnar tvær með
það í huga,“ bætir Áslaug við.
Á Safnanótt mun listfræðingur-
inn Karolina Boguslawska bjóða
upp á leiðsögn á pólsku um sýning-
arnar tvær. Þetta er því tilvalin leið
fyrir pólskumælandi listunnendur
til þess að kynnast listasafninu
og starfsemi þess betur. Ýmislegt
annað verður í boði fyrir gesti Safn-
anætur í Hafnarborg. Hægt verður
að skyggnast á bak við tjöldin, en
gestum er boðið að skoða þau undur
sem leynast í geymslum safnsins í
fylgd starfsmanna. Í Portrettsmiðju
fyrir fjölskyldur fá börn og foreldr-
ar þeirra tækifæri til að leyfa sköp-
unargleðinni að leika lausum hala
og gera andlitsmyndir af hvor öðru.
Dagskráinni lýkur á hláturjóga
með Sölva Avo Péturssyni, hlátur-
jógaleiðbeinanda. Hláturjóga er
blanda af hláturæfingum og jóga-
öndun og hefur þann tilgang að efla
og styrkja líkama og sál. „Það er því
tilvalið að enda kvöldið með brosi á
vör og kátum hlátri,“ segir Áslaug,
en hún og aðrir starfsmenn Hafnar-
borgar munu taka vel á móti gestum
Safnanætur næstkomandi föstudag.
Unnið í samstarfi við
Hafnarborg
Listamannaspjall og
hláturjóga í Hafnarborg
Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, mun taka
þátt í Safnanótt á Vetrarhátíð og verður dagskráin fjölbreytt og
skemmtileg.