Fréttatíminn - 30.01.2015, Síða 72
vetrarhátíð 5.-8. febrúar 20158
Safnanótt
6. febrúar 2015
Álftanes
Bókasafn Garðabæjar -
Álftanesútibú
Breiðamýri / aðkoma í safnið Eyvindar-
staðamegin /norðan við Álftanesskóla
20:00–20:30
Gælur, fælur og þvælur - Ragn-
heiður Gröndal og Guðmundur
Pétursson
Sönglög fyrir alla fjölskylduna. Ljóð
eftir Þórarinn Eldjárn og lög eftir Jóhann
Helgason í flutningi Ragnheiðar Gröndal og
Guðmundar Péturssonar.
19:00–19:45
Dægradvöl - íslensk klassík - Guð-
mundur Andri Thorsson
Ein rómaðasta sjálfsævisaga íslenskra
bókmennta. Guðmundur Andri Thorsson
fjallar um bókina Dægradvöl eftir Benedikt
Gröndal skáld og rithöfund (1826-1907).
Garðabær
Bókasafn Garðabæjar
Garðatorg 7
19:00–19:30
Gælur, fælur og þvælur - Ragn-
heiður Gröndal og Guðmundur
Pétursson
Sönglög fyrir alla fjölskylduna. Ljóð
eftir Þórarinn Eldjárn og lög eftir Jóhann
Helgason í flutningi Ragnheiðar Gröndal
og Guðmundar Péturssonar.
20:00–23:59
Gleymt og geymt
Gamalt bréf, jólakort, eldspýta, ljós-
mynd eða tannstöngull. Sýning á munum
sem hafa gleymst inni í bókum safnsins í
gegnum árin og fundist fyrir tilviljun síðaŕ ,
stundum löngu síðar. Bryndís Björgvins-
dóttir rithöfundur flytur hugleiðingu við
opnun sýningarinnar kl.20:00
Hönnunarsafn Íslands
Garðatorg 7
20:30–21:15
Dægradvöl - íslensk klassík - Guð-
mundur Andri Thorsson
Ein rómaðasta sjálfsævisaga íslenskra
bókmennta. Guðmundur Andri Thorsson
rithöfundur fjallar um bókina Dægradvöl
eftir Benedikt Gröndal skáld og rithöfund
(1826-1907).
19:00–23:59
Ný sýning: Un peu plus - Teikn-
ingar og skissur Helgu Björnsson
tískuhönnuðar
Opnun á nýrri sýningu Un peu plus -
Teikningar og skissur Helgu Björnsson
tískuhönnuðar í Hönnunarsafni Íslands.
20:00–20:30
Un peu plus - Teikningar og skissur
Helgu Björnsson tískuhönnuðar.
Leiðsögn um Un peu plus - Teikningar og
skissur Helgu Björnsson tískuhönnuðar
20:00–20:30
Orðið í fötunum - leiðsögn
Leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin frú
forseti? Áhersla verður lögð á „orðið í föt-
unum“ og hvernig klæðnaður er notaður til
að tjá líðan eða jafnvel pólitískar skoðanir.
22:00–22:30
Un peu plus - Teikningar og skissur
Helgu Björnsson tískuhönnuðar.
Leiðsögn um Un peu plus - Teikningar og
skissur Helgu Björnsson tískuhönnuðar
22:30–23:30
Ertu tilbúin frú forseti? - leiðsögn
Leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin frú
forseti? Áhersla verður lögð á „orðið í föt-
unum“ og hvernig klæðnaður er notaður til
að tjá líðan eða jafnvel pólitískar skoðanir.
Krókur á Garðaholti í Garðabæ
Garðavegur
19:00–23:59
Opið hús í Króki á Garðaholti
Krókur er lítill bárujárnsklæddur bursta-
bær sem var endurbyggður úr torfbæ árið
1923. Í Króki eru varðveitt gömul hús-
gögn og munir sem voru í eigu hjónanna
Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og
Vilmundar Gíslasonar.
Hafnarfjörður
Bókasafn Hafnarfjarðar
Strandgata 1
19:00–00:00
Ratleikur um Bókasafn Hafnar-
fjarðar
Frábær skemmtun fyrir alla. Dregið
verður úr réttum lausnum þriðjudaginn 10.
febrúar 2015. Þrír heppnir hljóta vinninga í
boði Góu Gló og Eymundsson.
19:00–23:59
Ókeypis bækur
Við gefum afskrifaðar bækur og gjafa-
bækur. Margar fróðlegar og skemmtilegar
bækur í leit að nýjum eigendum.
19:00–23:59
Dýrahjálp Íslands
Fulltrúar frá Dýrahjálp Íslands mæta og
kynna starfsemi sína. Hægt verður að skoða
myndir af dýrum í heimilisleit og farsælar
sögur af dýrum sem fundið hafa framtíðar-
heimili fyrir tilstuðlan samtakanna.
19:00–23:59
Bókakaffi
Við sköpum kaffihúsastemningu á fyrstu
hæð Bókasafns Hafnarfjarðar í samstarfi
við Súfistann sem selur veitingar. Gestir
geta fengið sér drykki áfenga sem óáfenga
og góðgæti yfir skemmtiatriðunum sem í
boði verða á Safnanótt.
19:00–23:59
Ljósálfar og dökkálfar
Hafnarfjörður hefur oft verið nefndur
álfabærinn. Til eru álfakort þar sem
álfabyggðir bæjarins eru kortlagðar. Á
Safnanótt verður barna- og unglingadeild
Bókasafns Hafnarfjarðar yfirtekin af
ljósálfum og dökkálfum.
19:00–23:59
Töfraheimur Harry Potter
Í anddyri Bókasafns Hafnarfjarðar stendur
yfir sýning á ýmsum munum tengdum
galdrastráknum Harry Potter. Sjón er sögu
ríkari!
19:00–19:30
Þýsk-íslenska tenglsanetið
Þýsk-íslenska tengslanetið verður með
kynningu á starfsemi sinni. Tengslanetið
er fyrir alla sem áhuga hafa á þýskri
menningu og samskiptum þjóðanna.
Tengslanetið er með þýskt barnastarf á
laugardögum á Bókasafni Hafnarfjarðar og
skipuleggur luktargöngu á Marteinsmessu
í nóvember ár hvert.
19:00–23:59
Veldu þér bókamerki
Við eigum stórt safn af bókamerkjum sem
hafa verið í óskilum hjá okkur lengi og
langar að komast á nýtt heimili. Komdu við
og skoðaðu úrvalið.
19:00–19:45
Harry Potter fjölþjóðlegur upplestur
Við efnum til upplesturs á völdum kafla úr
Harry Potter á fjölda tungumála. Íslenskum
og enskum texta verður varpað á skjá svo
allir geti fylgst með textanum.
19:00–23:59
Úr fjarlægð – málverk eftir Ingu
Maju
Myndirnar sem eru hér til sýnis málaði
Inga Maja á síðustu tveimur árum. Þær
eru unnar með akrýllitum og er kven-
mannslíkaminn og sterkir litir áberandi auk
þess sem íslensk náttúra kemur við sögu í
sumum myndanna.
19:30–21:00
Bíó í bókasafni - Les Choristes
Bókasafn Hafnarfjarðar sýnir frönsku
myndina Les Choristes. Myndin fjallar um
nýjan kennara í ströngum heimavistarskóla
fyrir drengi. Hann breytir lífi þeirra með því
að kynna þá fyrir tónlist og stofna kór við
skólann. Mynd frá 2004. Leikstjóri: Chri-
stophe Barratier. Á frönsku íslenskur texti.
21:00–21:30
Konubörn
Sýnt verður brot úr leikritinu Konubörn
sem frumsýnt var í Gaflaraleikhúsinu í
janúar 2015. Leikritið fjallar á gaman-
saman hátt um vandræðin sem fylgja því
að vera hvorki barn né fullorðinn, hvorki
stelpa né kona.
21:30–23:30
Bíó í bókasafni - Fack ju Göhte
Bókasafn Hafnarfjarðar sýnir þýsku mynd-
ina Fack ju Göhte. Þetta er gamanmynd
sem fjallar um fyrrum fanga sem fær vinnu
í skóla sem byggður var yfir gamla þýfið
hans. Myndin er frá 2013. Leikstjóri: Bora
Dagtekin. Þýskt tal og enskur texti.
22:00–22:30
Ósk & Brynja - Tónleikar
Ósk og Brynja er dúett sem samanstendur
af vinkonunum Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur
og Brynju Bjarnadóttur. Þær hafa báðar
verið duglegar við að semja eigin tónlist
sem einkennist af rólegum folk/accoustic
áhrifum og síðastliðin tvö ár hafa þær spilað
víða um Evrópu en einnig hér heima.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Vesturgata
19:00–23:59
Ljúft og lágstemmt
Ljúft og lágstemmt er þema Byggðasafns
Hafnarfjarðar. Þar sem Pakkhúsið er lokað
vegna viðgerða býður Byggðasafnið upp á
ljúfa og lágstemmda upplifun í Sívertsens-
húsi og Beggubúð.
Hafnarborg
Strandgata 34
19:00–21:00
Hver erum við? - Portrettsmiðja
fyrir fjölskyldur
Listasmiðja í portrettgerð fyrir börn og
foreldra þeirra með Sigurrósu Svövu Ólafs-
dóttur myndlistarmanni.
20:00–22:00
Á bak við tjöldin - Heimsókn í
geymslur safnsins
Gestum er boðið að skyggnast á bak við
tjöldin í Hafnarborg og skoða þau undur
sem leynast í geymslum safnsins í fylgd
starfsmanna safnsins.
20:00–21:00
Tímaflakk um 100 ár – Leiðsögn á
pólsku með Karolinu Boguslawska
Karolina Boguslawska listfræðingur leiðir
gesti á pólsku um sýningar Hafnarborgar.
20:45–21:15
Leiðangur um sýninguna Neisti
Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður
Hafnarborgar, leiðir gesti um sýninguna
Neisti í Sverrissal þar sem sýnd eru mál-
verk og teikningar eftir Hönnu Davíðsson
(1888-1966).
21:15–22:00
Svarthvít veröld - Framköllun
Listamannsspjall
Listamannsspjall með Heklu Dögg Jóns-
dóttur myndlistarmanni þar sem hún ræðir
við gesti um þá svarthvítu veröld sem hún
hefur skapað fyrir sýninguna Framköllun í
Hafnarborg.
21:30–22:15
Hó Hó Ha Ha - Hláturjóga með Sölva
Hláturjóga með Sölva Avo Péturssyni hlát-
urjógaleiðbeinanda og næringarþerapista.
Hláturjóga er blanda af hláturæfingum og
jógaöndun og hefur þann tilgang að efla og
styrkja líkama og sál.
22:00–22:30
Lifandi tónlist - Ljúfir tónar á Gló
Endaðu Safnanótt á Gló í ljúfri stemn-
ingu með lifandi tónlist í lok dagskrár
Hafnarborgar
KópavoGur
Bókasafn Kópavogs
Hamraborg 6A
19:00–22:30
Origami
Ertu klaufabárður eða föndurmeistari?
Það er eitthvað fyrir alla í origami-smiðju
Önnu Maríu
19:00–23:30
Ratleikur
Komdu á þeysireið um Safnahús þar sem
þekking, útsjónarsemi og snerpa koma í
góðar þarfir
19:30–20:00
Einar einstaki
Einar Einstaki töframaður leikur listir sínar
í barnadeildinni á 3ju hæð safnsins.
20:00–22:00
Sirrý spá
Sirrý spá skyggnist inn í framtíðina
fyrir gesti safnanætur í Heita pottinum á
annarri hæð Bókasafns Kópavogs.
21:00–21:30
Einar einstaki
Einar Einstaki töframaður leikur listir sínar
í barnadeildinni á þriðju hæð safnsins.
21:30–22:30
Vélmennin Dash og Dot
Forvitnir fiktarar athugið! Vélmennin
Dash og Dot verða ásamt vinum sínum
Ollie Sphero og Makey Makey í Bókasafni
Kópavogs og taka vel á móti ykkur!
22:00–23:00
Í myrkri við man spjalla: Spjall um
ástir Íslendinga að fornu
Gunnar Karlsson prófessor emeritus
í sagnfræði heldur erindi um ástir í
íslendinga sögunum.
20:00–21:00
Ævar vísindamaður
Ævar vísindamaður er sköpunarverk
Ævars Þórs Benediktssonar leikara. Tvær
þáttaraðir hafa verið framleiddar um hinn
vísindamanninn fróðleiksfúsa fyrir RÚV.
Héraðsskjalasafn Kópavogs
Digranesvegur 7
19:00–23:59
Saga Kópavogs á Safnanótt
Opnun sýningar um sögu Kópavogs á 60
ára afmælisári bæjarins.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Hamraborg 4
19:00–23:59
Mysteríum - vörpunarstúdíó
(vinnustofa fyrir 16+)
Björk Viggósdóttir myndlistarmaður og
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir fjöllistamað-
ur leiða tilraunakennda vinnustofu fyrir
ungt fólk (16+) þar sem unnið verður með
ljós, speglanir, videovörpun og tónlist.
19:00–23:30
Pop-up eldhús Gerðarsafns
Gerðarsafn opnar pop-up eldhús í safninu
á Safnanótt og bíður upp á léttar veitingar.
19:00–22:00
Stúdíó Gerðar – skapandi vinnu-
smiðjur
Guðrún Benónýsdóttir myndlistarmaður
og listgreinakennari leiðir sjálfstæðar
vinnusmiðjur fyrir ólíka aldurshópa í
tengslum við fræðslu- og upplifunarsýn-
inguna Stúdíó Gerðar Helgadóttir.
20:00–21:30
Leiðsögn í listaverkageymslu
Gerðarsafns
Það er fátítt að gestum og gangandi sé
hleypt í geymslur og bakland safnsins. Hér
gefst einstakt tækifæri til að skyggnast
á bak við tjöldin. Leiðsögn hefst á 30
mínútna fresti frá kl. 20:00 og komast tíu
manns í hvern hóp. Skráning fer fram á
staðnum.
Molinn ungmennahús Kópavogi
Hábraut 2
20:00–23:59
Slagbrandur
Viðburður þar sem ungmenni miðla menn-
ingu sinni og fær útrás í formi tónlistar,
myndlistar ljóðlistar og hönnun.
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Hamraborg 6A
19:00–23:00
Stoppað upp á staðnum
Hvernig eru dýr stoppuð upp? Brynja
Davíðsdóttir hamskeri og snillingur kynnir
þetta afar vandasama handverk fyrir
gestum Safnanætur.
20:00–21:00
Hvað getur gerst í virkustu eld-
stöðvakerfum Íslands?
Bergrún Arna Óladóttir gjóskulaga-
fræðingur og nýdoktor við Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands heldur fyrirlestur
um fjögur virkustu eldstöðvakerfi landsins.
Sérstök áhersla verður á Bárðarbungu-
kerfið þar sem yfirstandandi eldgos í
Nornahrauni á sér stað.
Salurinn Tónlistarhús Kópavogs
Hamraborg 6
20:00–22:00
Lifandi tónlist og opinn bar í forsal
Salarins á Safnanótt
Á safnanótt verða tónleikar milli klukkan
20 – 22 í forsal Salarins með píanóleikar-
anum Árna Heiðari Karlssyni. Kaffihúsa-
stemning í Salnum með lifandi tónlist í
fallegu umhverfi.
Tónlistarsafn Íslands
Hábraut 2
10:22–12:17
Dans á eftir
Föstudagurinn 8. febrúar verður síðasti
formlegi sýningardagurinn á sýningunni
Dans á eftir.
Mosfellsbær
Gljúfrasteinn - hús skáldsins
Þingvallavegur
21:00–21:45
Tónleikar Pascal Pinon á Safnanótt
Hljómsveitin Pascal Pinon heldur tónleika
á Gljúfrasteini.
reyKjavíK
Árbæjarsafn
Kistuhylur 4
19:00–23:59
Draugaganga um dimma stíga Ár-
bæjarsafns og þorratónleikar með
tríóinu Ljóm
Gengið um dimma stíga Árbæjarsafns
með kertaluktir og sagðar draugasögur
frá liðinni tíð. Inni í Lækjargötunni verða
klassískir tónleikar með tríóinu Ljóm með
þorraívafi. Gestir fá fróðlegt erindi um
þorrann fyrir tónleika og smá smakk af
bragðsterkum þorramat.
Borgarbókasafnið í Grófinni
Tryggvagata 15
17:00–22:30
Vasaljós í myrkri
Önnur hæð bókasafnsins verður myrkvuð
og gestir fá vasaljós til að rata um hill-
urnar.
17:00–17:20
Vasaljósasögustundir
Sagðar verða myrkar sögur í barnadeild-
inni á 2. hæð aðalsafns Borgarbókasafns