Fréttatíminn - 08.02.2013, Síða 16
M
aður veit bara að ef maður
segir nei, þá getur maður
verið barinn og manni
nauðgað. Þess vegna er
betra að segja bara já,“
segir fjórtán ára stúlka sem ekki vill koma
fram undir nafni en er ein af fjölmörgum
stúlkum sem Fréttatíminn talaði við og hafa
verið virkar í neyslu áfengis og vímuefna.
Allar eiga það sameiginlegt að hafa strokið
frá heimilum sínum í lengri eða skemmri
tíma og eftir mörgum þeirra hefur verið lýst
í fjölmiðlum. Þetta eru „týndu börnin“.
Tekið skal fram að ekki eru öll þeirra
barna sem lýst eftir, í neyslu. Sum eiga við
hegðunarvanda að stríða eða annars konar
vanlíðan og strjúka að heiman af þeim
sökum.
Stúlkurnar, sem eru í neyslu, greiða marg-
ar hverjar fyrir áfengi og vímuefni með því
að veita afnot af líkama sínum. Aðrar segjast
hafa sloppið við það því þær eigi vini sem
haldi yfir þeim hlífðarhendi.
Í augum stúlknanna sjálfra, sem „sofa hjá“
fyrir dóp, eru þær hins vegar ekki að selja
sig. „Við veljum bara gaura sem við getum
hugsað okkur að sofa hjá. Ef tveir eru sam-
an, annar ljótur og hinn sætur, hangir maður
bara utan í þessum sæta til að sleppa við að
þurfa að sofa hjá þessum ljóta. En það hefur
alveg gerst að maður hefur þurft að sofa hjá
þessum ljóta,“ segir sama stúlka. „Stundum
er maður alveg: „Oj, hvað var ég að pæla.
Ég er fjórtán og hann þrítugur. Það er ekki
alveg eðlilegt. En svo fær maður sér bara
aftur í nefið og gleymir því,“ segir önnur.
Þær taka fram að þeim hafi ekki verið
nauðgað þótt þær þekki stelpur sem hafi
orðið fyrir því. Og þær þekkja stráka sem
nauðga. Þá reyna þær að forðast. „Ég veit
náttúrulega ekkert hvað hefur gerst þegar
ég er í „black-outi“ og hvort mér hafi verið
nauðgað þá. Það skiptir mig hins vegar ekki
máli því ég veit ekki af því,“ segir hún. Þær
nefna nokkur nöfn á mönnum sem þær reyna
að forðast. Einn þeirra sem þær nefna er
margdæmdur ofbeldishrotti og var síðast
handtekinn í desember fyrir grófa líkams-
árás gegn 18 ára stúlku og hafði mánuðina
á undan ítrekað verið handtekinn vegna of-
beldisbrota sem einkum beindust að ungum
stúlkum. „Það er fullt af svona ógeðslegum
gæjum,“ segir ein. Ein stúlkan lýsir reynslu
sinni af því að vakna á Landspítalanum, nef-
brotin og illa farin eftir barsmíðar og ofbeldi.
„Ég veit ekkert hvað gerðist,“ segir hún.
Segjast ekki fíklar
Týndu stúlkurnar líta ekki á sig sem fíkla.
Þær eru bara „á djamminu“ og langar ekki
að hætta. Foreldrar margra þeirra eru ráð-
þrota og hafa í samvinnu við barnaverndar-
yfirvöld sent dætur sínar í meðferðarúrræði
á Stuðlum og til fósturfjölskyldna úti á landi
Týndu Börnin
1. hluti Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Föst í dópheimi
Margar þeirra ungu stúlkna sem lýst
er eftir í fjölmiðlum sjá sér fyrir dópi,
fæði og húsaskjóli með því að veita
mun eldri karlmönnum afnot af líkama
sínum. Stúlkum, allt niður í fjórtán ára
aldur, finnst þær ekki vera að selja sig
en vita að ef þær segja nei verði þeim
nauðgað og þeim jafnvel misþyrmt.
Þetta eru týndu stúlkurnar.
Ég veit náttúrulega ekkert
hvað hefur gerst þegar ég er
í „black-outi“ og hvort mér
hafi verið nauðgað þá. Það
skiptir mig hins vegar ekki
máli því ég veit ekki af því.
Framhald á næstu opnu L
jó
sm
yn
d/
N
or
di
s
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
16 úttekt Helgin 8.-10. febrúar 2013