Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.02.2013, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 08.02.2013, Blaðsíða 60
 Í takt við tÍmann UnnUr EggErtsdóttir Dansar á b5 þar til súrefnið klárast Unnur Eggertsdóttir er tvítugur stúdent úr Verzló sem sló í gegn í Söngvakeppni Sjónvarpsins um síðustu helgi. Unnur vinnur á auglýsingastofu, kennir dans og treður upp í hlutverki Sollu stirðu í Latabæ. Hún keyrir um á gulllituðum Volkswagen Golf sem á ekki langt eftir. Staðalbúnaður Fatastíllinn minn er mjög stelpulegur og þægilegur. Ég á eftir að læra að meta dýrar og vandaðar flíkur þannig öll mín föt eru úr H&M eða „second hand“ búðum. Ég þroskast kannski seinna upp í þetta „gæði ofar magni“ mottó sem þykir svo smart. Ég á reyndar mjög vandað úr sem amma og afi gáfu mér í fermingargjöf sem ég er með á hverjum degi og svo fékk ég fal- legan hring frá Nemendafélagi Verzló fyrir að hafa setið í stjórn í fyrra. Ei- lífðarverzlingurinn sem ég er mun aldrei taka hann af. Hugbúnaður Ég bý í Skerjafirðinum og vinn á aug- lýsingastofunni Jónsson & Le’macks sem er niðri í bæ þannig ég fer sjaldn- ast út úr 101 Reykjavík. Nema til að kenna dans eða fara á æfingu, þá fer ég upp í World Class í Laugum. Ég hef sjaldn- ast tíma eða nennu til að horfa á heila bíómynd þannig ég er mikil þáttamanneskja. Uppá- halds þættirnir mínir eru Girls, Parks and Recreation og bandaríska Office. Við vinkonurnar erum duglegar að hittast á kaffihúsum og þá verður Laundromat oftast fyrir valinu eða Prikið. Sushi samba er líka æði þegar við viljum gera vel við okkur. Vélbúnaður Ég Apple-væddist á síðasta ári og er með iPhone 4s og Macbook Air. Held að ég fari aldrei aftur í Windows eða Nokia eftir að hafa orðið háð þessari snilld. Uppáhalds appið mitt er að sjálf- sögðu Facebook og Instagram. Svo er Endomondo algjör snilld á sumrin þeg- ar ég reyni að vera dugleg að hlaupa. Það mælir vegalengd og hraða og svo get ég fylgst með hvað vinir mínir eru að hlaupa mikið. Þá fæ ég samt oftast minnimáttarkennd. Ég prófaði að vera á Twitter á sínum tíma en fannst svo erfitt að fylgjast með öllu þannig ég gafst upp. Svo elska ég að skoða gif-síð- ur og finnst Berglind Festival klárlega það fyndnasta sem til er á netinu. Aukabúnaður Þegar kemur að snyrtivörum á ég líka eftir að læra að nota dýrt og vandað. Ég keypti minn fyrsta Mac augnskugga um daginn, annars samanstendur snyrtidótið mitt af ýmsu sem konan í apótekinu mælti með. „Body lotionið“ mitt er þó heilagt og nota ég aðeins Coconut Passion frá Victoria’s Secret. Þá finnst mér ég vera jafn fín og brasil- ísku „Englarnir“. Aðal áhugamálin mín eru að syngja, dansa og leika. Bæði að leika upp á sviði eða bara við vini mína. Ég á lítinn, þreyttan, gulllitaðan Golf sem fer alveg að gefast upp á mér en þraukar enn. Það verður sorgardagur þegar hann kveður þennan heim. Þeg- ar ég fer í bæinn finnst mér skemmti- legast að fara eitthvert þar sem við stelpurnar getum dansað frá okkur allt vit. Því verður b5 oftast fyrir valinu, en bara fyrir klukkan 2 því annars verður maður undir í troðningi og fer að þjást af súrefnisskorti. Þá færum við okkur yfir á Prikið eða Faktorý. Svo hitti ég líka Dóra frænda svo oft á b5 að ég þarf að fara að hætta að fara þangað. Unnur Eggertsdóttir kaupir föt í H&M og „second hand“ búðum. Uppáhalds kaffihúsin hennar eru Laundramat og Prikið. Ljósmynd/Hari 8 ára reynsla í meðgöngu- og brjóstagjafafatnaði! Holtasmára 1 S. 517 8500 Nýjasti meðlimur í Tvö líf væntanlegur Vor og sumarvörur streyma inn Útsölulok aðeins 4 verð 1000 - 2000 - 3000 - 4000 www.tvolif.is  Átta liða úrslit Í gEttU bEtUr MR gegn MA í kvöld Á tta liða úrslit í Gettu betur hefjast í Sjónvarpinu klukkan 20 í kvöld. Það eru lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans á Akureyri sem mætast að þessu sinni. Höfundar spurninga og dóm- arar eru þau Þórhildur Ólafsdóttir og Atli Freyr Steinþórsson. Spyrill keppninnar er Edda Hermanns- dóttir. Fréttatíminn tók púlsinn á kepp- endum liðanna í vikunni og fékk að hlera hvaða lög þeir hlusta á til að koma sér í rétta gírinn fyrir keppnina í kvöld. Frá vinstri Örn Dúi, Jóhann Viðar og Jóhann Ólafur. Frá vinstri eru þeir Grétar Þór, Þorsteinn Gunnar og Grétar Guðmundur. Lið MR Grétar Þór Sigurðsson: Æri-Tobbi með Þursaflokknum Grétar Guðmundur Sæmundsson: Homeward Bound með Simon & Garfunkel. Þorsteinn Gunnar Jónsson: Hate Being Sober með Chief Keef. Lið MA Örn Dúi Kristjánsson: Valkyrjureiðin eftir Wagner. Jóhann Viðar Hjaltason: Sledge Hammer með DJ Gabriel. Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson: Unwritten með Natasha Bedingfield. 60 dægurmál Helgin 8.-10. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.