Fréttatíminn - 08.02.2013, Qupperneq 22
Stjórnandinn
eBOX eimSkip Býður nýjung á flutningamarkaði
Ásdís les vefmiðla og tölvupósta meðan hún
drekkur fyrsta kaffibolla dagsins. Ljósmynd/Hari
Borðar hafragraut að hætti húsbóndans
nafn: Ásdís Kristjánsdóttir
Starf: Forstöðumaður Greiningar-
deildar Arion banka.
aldur: 34 ára.
menntun: Bsc í verkfræði og Msc
í hagfræði.
fyrri störf: Sérfræðingur á
efnahagsskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins.
maki: Agnar Tómas Möller verk-
fræðingur.
Börn: Thelma Sigríður og Tómas
sem eru fjögurra ára og Kristján
sem er rúmlega eins árs.
Morgunstund
Við fjölskyldan borðum saman
hafragraut að hætti húsbóndans.
Við reynum að eiga notalega
morgunstund áður en vinna,
leikskóli og dagmömmur taka
við. Dagurinn í vinnunni hefst á
morgunfundi með starfsfélögum
þar sem við förum yfir málefni
líðandi stundar.
Græjan
MacBook Air.
Hefðir
Fyrsti kaffibolli dagsins sam-
hliða því sem ég renni yfir vef-
miðla og les tölvupósta.
Minn tími
Lesa góða bók og hlusta á tónlist.
Klæðaburður
Ég tel mig vera með nokkuð
venjulegan fatasmekk. Á virkum
dögum er ég í vinnudressi sem
samanstendur af dragtarjakka,
kjól eða buxum. Um helgar
skipta þægindin meira máli.
Boðskapur
Ísland þarf að vera eftirsóknar-
verður fjárfestingarkostur. Við
þurfum að ná stöðugleika í hag-
kerfinu og raunhæfa áætlun um
hvernig hægt er að opna landið
á nýjan leik. Þá er mikilvægt
að draga úr sköttum sem eru
íþyngjandi fyrir atvinnulífið og
heimilin.
Hagnaður Össurar 4,8
milljarðar
Hagnaður stoðtækjaframleiðandans Öss-
urar nam 38 milljörðum dollara eða sem
svarar um 4,8 milljörðum króna á árinu
2012. Það er aukning um 9% frá árinu á
undan. Sala jókst um 3% og var tæplega
400 milljónir dollara. Ný framleiðslueining
í Mexíkó hafði jákvæð áhrif en slök sala í
Bandaríkjunum neikvæð. Framlegð nam
248 milljón dollurum eða 62% af sölu, sem
er sama hlutfall og árið 2011. Hagnaður
fyrir skatta og afskriftir (EBITDA) nam 70
milljónum dollara. EBITDA hlutfallið fór út
18,2% árið 2011 í 17,5% á árinu 2012. - jh
Hugmyndahandbók á
Viðskiptaþingi
Á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs,
sem fram fer 13. febrúar á Hilton Reykjavík
Nordica, verða kynntar í formi Hug-
myndahandbókar 13 tillögur sem ætlaðar
eru til að ýta undir framleiðni í hagkerfinu.
Til hliðsjónar eru meginskilaboðin í skýrslu
McKinsey & Company frá því á síðasta ári,
en tillögurnar varða innlenda þjónustu,
auðlindatengda starfsemi og alþjóðlega
starfsemi.
Yfirskrift Viðskiptaþings 2013 er
„Stillum saman strengi: hagkvæmni til
heilla“.- jh
Hagnaður Marel árið 2012
nam 35,6 milljónum evra, eða
sem svarar 6,1 milljarði króna,
en hann var 34,5 milljónir
evra árið 2011, að því er fram
kemur í tilkynningu til Kaup-
hallarinnar. Tekjur ársins 2012
námu 714,0 milljónum evra, sem
er 6,8% aukning samanborið við
tekjur árið áður. EBITDA var
86,0 milljónir evra, sem er 12,0%
af tekjum samanborið við 87,0
milljónir evra árið 2011.
Rekstrarhagnaður (EBIT) var
61,1 milljón evra, sem er 8,6% af
tekjum samanborið við 62,2 millj-
ónir evra árið 2011. Hagnaður
á hlut nam 4,88 evrusentum.
Vaxtaberandi skuldir í lok árs
námu 243,2 milljónum evra.
„Heilbrigður 6,8% vöxtur er
afrek við krefjandi markaðsað-
stæður. Marel hefur vaxið gríðar-
lega á síðustu fjórum árum,“
segir Theo Hoen, forstjóri. „Við
gerum ráð fyrir hóflegum vexti
árið 2013 að því gefnu að helstu
markaðir okkar rétti úr kútnum
á seinni hluta ársins, sérstaklega
Bandaríkin sem hafa verið í lægð
síðustu tvö árin. Við munum
leggja áherslu á kostnaðaraðhald
og stöðlun vara til að auka arð-
semina.“ - jh
uppgjör afkOma árSinS 2012
Hagnaður Marel 6,1 milljarður
Aukin þörf fyrir ein-
falda og hraða þjónustu
Aukin áhersla á lausnir með stuttum fyrirvara og minna lagerhald. Hægt er að fara inn á eBOX
á netinu hvenær sem er sólarhringsins, reikna út flutningskostnað og bóka sendingar frá öllum
helstu stöðum í Evrópu.
Með skrifstofum Eimskips erlendis og öflugu neti samstarfsaðila fyrirtækisins þar eru í boði hagkvæmar lausnir alla leið frá send-
anda til móttakanda. eBOX reiknivélin gerir viðskiptavinum kleift að reikna út á netinu verð á sendingum alla leið á augabragði.
n ý þjónusta hjá Eimskip, eBOX, býður upp á einfaldar lausnir til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. „Skipaflutningar hafa
lítið breyst á undanförnum árum eða frá gámavæðing-
unni á áttunda áratug síðustu aldar. Á sama tíma hafa
þarfir viðskiptavina okkar þróast í áranna rás og nú
finnum við að þörfin fyrir einfalda og hraða þjónustu
fyrir smærri sendingar hefur verið að aukast jafnt og
þétt,“ segir Matthías Matthíasson á síðu félagsins en
hann er framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptaþjónustu
hjá Eimskip.
Matthías segir ástæðurnar meðal annars þær að auk-
in áhersla sé á lausnir með stuttum fyrirvara og minna
lagerhald. „Það er oft hagkvæmara að panta minna í
einu en oftar. Með því sparast t.d. fjármagnskostnaður
sem fyrirtæki og einstaklingar horfa í auknum mæli á.
Það má segja að eBOX sé okkar leið til að mæta þessari
þróun. Hægt er að fara inn á eBOX á netinu hvenær
sem er sólarhringsins, reikna út flutningskostnað og
bóka sendingar frá öllum helstu stöðum í Evrópu á
einfaldan og fljótlegan hátt,“ segir Matthías.
Eimskip er með fjögur skip í áætlunarsiglingum
á milli Íslands og Evrópu og býður því upp á mjög
góðar tengingar við öll helstu viðskiptalönd Íslend-
inga í Evrópu. Flutningstíminn frá helstu höfnum í
Evrópu er frá 3-5 virkum dögum frá því skipið leggur
úr höfn í þar til varan er komin heim að dyrum á Ís-
landi. „Við leggjum áherslu að eBOX gámarnir séu
með þeim síðustu um borð í erlendu höfnunum og
þannig þeir fyrstu í land á Íslandi. Viðskiptavinum
stendur að sjálfsögðu einnig til boða að láta okkur sjá
um tollafgreiðslu og heimakstur á sendingunum. Með
því tryggjum við hraða og örugga þjónustu á eBOX
sendingunum alla leið heim að dyrum sem er einfalt
og þægilegt,“ segir Matthías.
Matthías segir að helstu breytingarnar sem orðið
hafa í þjónustunni á undanförnum árum séu þær
sem snúa að aukinni netvæðingu. „Það eru auknar
kröfur um að geta stundað sín viðskipti á einfaldan
og fljótvirkan hátt á netinu. Þar hefur þjónustuvefur
ePort Eimskips komið sterkt inn með sínum ítarlegu
upplýsingum um viðskipti fyrirtækja,“ segir Matth-
ías, „og nú er tekið stórt skref til viðbótar með því að
gera viðskiptavinum kleift að reikna út verð og bóka
flutning á netinu.“
Jónas Haraldsson
jo nas@frettatiminn.is
Stór og fjölbreyttur
tölvugeiri kynntur
UTmessan 2013 verður haldin í
Hörpu í dag og á morgun, föstudag
og laugardag 8. og 9. febrúar. Hún
felur í sér marga viðburði sem all-
ir styðja við það markmið að sýna
hve stór og fjölbreyttur tölvugeir-
inn á Íslandi er með það að mark-
miði að fjölga þeim sem velja sér
tölvu- og tæknigreinar sem fram-
tíðarstarfsvettvang.
Í dag, föstudag verður ráðstefna
fyrir fagfólk og aðra áhugamenn
um upplýsingatækni. Á ráðstefn-
unni verða 8 þemalínur í 4 sölum
Hörpu. Erlendir og innlendir fyrir-
lesarar stíga á stokk. Fjöldi fyrir-
tækja hefur skráð sig á sýningar-
svæðið í opnu rými á fyrstu hæð
Hörpunnar og verður það opið ráð-
stefnugestum allan daginn.
Á morgun, laugardag, verður
sýning tölvu- og tæknifyrirtækja
opin allan daginn og kostar ekk-
ert inn. Örkynningar og fræðsla
í gangi í sölum á 1. hæð í Hörpu
um ýmislegt sem tengist daglegu
lífi og upplýsingatækni. Einnig
verða alls kyns getraunir og leikir
í gangi og hægt að fá aðstoð tækni-
manna við ýmis vandamál sem
tengjast upplýsingatækni. Hægt
verður að prófa tölvuleiki eins og
nýjasta leik CCP, DUST 514, fylgj-
ast með ungum forriturum leysa
verkefni í „hackathon“, prófa að
forrita með leiðsögn tölvufólks
og margt fleira verður í boði til að
svipta af hulunni af dulúð tölvu-
heimsins, bæði fyrir börn og full-
orðna. - jh
upplýSingatækni á utmeSSunni í Hörpu
Tölvu- og tæknigreinar eru spennandi starfsvettvangur.
Sýning fyrir almenning í Hörpu á morgun.
Hægt verður að prófa tölvuleiki eins
og nýjasta leik CCP, DUST 514.
22 viðskipti Helgin 8.-10. febrúar 2013