Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.02.2013, Page 25

Fréttatíminn - 08.02.2013, Page 25
*P ró fu n á há rn æ rin gu 1 2- 20 11 (Þ ýs ka la nd ). n= 12 7 ko nu r, st að fe st in ga rh lu tfa ll: N íu a f h ve rju m tí u. Úfnir apakettir eða litlar prinsessur - litlar stelpur elska að leika sér með hárið og breyta um greiðslur. Sally Brooks er með góðar hugmyndir fyrir þig þegar kemur að skemmtilegum greiðslum fyrir krakka. Fáðu nýjar hugmyndir að hár - greiðslum fyrir apaketti og litlar prinsessur með því að skanna QR-kóðann. „Raki í hári er ómissandi fyrir börn og full - orðna. Það sem á við um líkamann frá toppi til táar á einnig við um hárið frá rót til hár- enda. Snerting hársins verður silki mjúk og óvið jafnan leg þegar jafnvægi er á raka þess. NIVEA hleypir nú af stokkunum NIVEA Hydro Care en með því fær hár þitt og þinna nánustu allan þann raka sem nauðsynlegur er á hverjum degi. Hámarks raki fyrir hárið þitt og nógu milt fyrir börnin þín. Hvílíkur hentugleiki!“ Silkimjúkt hár fyrir alla! Í NIVEA Hydro Care sjampóinu er einstök blanda af aloe vera, fljótandi keratíni og vatnaliljusafa. Aloe vera er auðugt af náttúrulegum bindiefnum með háu vatnsinnihaldi. Hér færðu óviðjafnanlega og öfluga rakaaukningu! Eftir hárþvott kemur síðasta stig raka- umönnunar með NIVEA Hydro Care hárnæringunni. Hún annast hár þitt með aloe vera, fljótandi keratíni og vatnaliljusafa. Hárið verður vel rakafyllt – án þess þó að þyngja það. Þú upp lifir fallegt, silkimjúkt hárið og nýtur ferska ilmsins. SILKIMJÚKT HÁR ER FJÖLSKYLDUMÁL SALLY BROOKS, ALÞJÓÐLEGUR HÁRSNYRTIR NIVEA Færustu húðlæknar höfðu umsjón með þróun NIVEA Hydro Care. Það er svo milt að þú getur óhikað deilt því með börnunum þínum. Þessi einstaka gæðablanda úr aloe vera, fljótandi keratíni og vatnaliljusafa nærir og viðheldur raka í þurru og þyrstu hári. Með nýju Hydro Care hárnæringunni er sérstaklega auðvelt að ná fram silkiáferð hársins og það er auðveldara að greiða það. Hárið verður svo mjúkt og slétt að greiðan mun aldrei aftur framkalla tár. Níu af hverjum tíu konum sem voru spurðar, sögðust óhikað mæla með vörunni við vini sína.* MILD OG VÖNDUÐ RAKAUMÖNNUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SKEMMTILEG HÁRGREIÐSLA FYRIR KÁTA KRAKKA HORFÐU Á MYNDBANDIÐ Þ að var ákveðið strax í byrjun, þegar við vorum að taka upp plötuna í fyrra, að við myndum prófa að gera enska útgáfu af lögunum. Það var bara frábært að fá áhuga erlendis frá svona fljótt,“ segir Ásgeir Trausti Einarsson tónlistarmaður. Ásgeir hefur gert útgáfusamn- ing við breska útgáfufyrirtækið One Little Indian. Fyrirtækið mun gefa út plötu hans, Dýrð í dauða- þögn, um allan heim innan tíðar. Ekki fæst uppgefið nákvæmlega hvað felst í samningnum við One Little Indian enda liggur það ekki endanlega fyrir. Var svolítið hræddur við meikið í fyrstu One Little Indian ætti að vera Ís- lendingum að góðu kunnt, enda hefur það gefið út plötur Sykur- molanna, Bjarkar og fyrstu plötur Sigur Rósar. Derek Birkett, fram- kvæmdastjóri One Little Indian, var bent á Ásgeir Trausta síðasta haust og setti sig í samband. Hann kom hingað til lands og hitti Ás- geir og hans fólk og hlutirnir fóru að rúlla. Birkett kom aftur á Ice- land Airwaves og síðan hafa samn- ingaviðræður staðið yfir. „Honum leist rosa vel á tónlistina og spurði hvort við myndum ekki gera enska útgáfu til að ná til fleira fólks,“ segir Ásgeir um fyrstu fundina með Birkett. „Ég er búinn að hitta hann núna nokkrum sinnum. Þetta er æðis- legur kall og flott fyrirtæki sem virðist einhvern veginn vera pers- ónulegt. Þetta er virt fyrirtæki en samt ekki risi. Það heldur vel utan um sitt fólk. Maður áttaði sig fljótt á því að maður væri í góðum höndum,“ segir Ásgeir ennfremur. Aðspurður segir hann að fleiri plötufyrirtæki hafi sýnt sér áhuga en One Little Indian hafi frá upp- hafi verið mest spennandi. Hann viðurkennir reyndar að þetta hafi aðeins staðið í honum, meikið. „Mér fannst þetta svolítið stórt fyrst að vera að fara að semja. Ég var svolítið hræddur fyrst. Mér fannst þetta vissulega mikill heiður en get ekki neitað því að ég var frekar smeykur. En þegar ég hugsaði um það sá ég að maður verður að grípa tækifærið þegar það gefst. Maður veit ekkert hvort það kemur aftur.“ Frábært samstarf með John Grant Plata Ásgeirs Trausta kemur út á íslensku á vegum One Little Indian á næstu dögum. Ásgeir er tilnefndur til Norrænu tónlistar- verðlaunanna og sú útgáfa er fyrst um fremst hugsuð sem kynning í tengslum við það. Þessa dagana er aftur á móti verið að leggja loka- hönd á enska útgáfu plötunnar. Út- lit er fyrir að ekkert verði hróflað við lögunum sjálfum en textarnir verða á ensku. Það er tónlistar- maðurinn John Grant sem þýðir íslensku textana yfir á ensku. John Grant hefur sem kunnugt er verið búsettur hér á landi síðasta árið og unnið að annarri sólóplötu sinni. Grant þykir glúrinn tungumála- maður og hefur náð góðu valdi á íslensku. Hann tók því þessari áskorun fagnandi. „Þetta kom allt í gegnum Steina bróður minn, hann þekkti John eitthvað,“ segir Ásgeir um upp- haf þessa samstarfs. „Við vorum að spá í hver ætti að semja enska texta fyrir plötuna eða þýða okkar texta. John semur rosalega góða texta og er góður tónlistarmaður í alla staði. Hann hafði aldrei gert neitt svona áður og fannst spennandi að takast á við þetta. John hreifst af textunum og við ákváðum að hann myndi þýða textana í stað þess að gera nýja. Allar þýðingarnar eru klárar og nú Framhald á næstu opnu Sumargestur Fuglinn minn úr fjarska ber fögnuð vorsins handa mér. Yfir höfin ægibreið ævinlega flýgur rétta leið. Fús ég þakka fuglinn minn fyrir gleðiboðskapinn þessa ljúfu tæru tóna, tóna Höfundur: Einar Georg Einarsson. Sumargestur verður Bird Bird My bird flies home from afar brings the joy of spring to me over the ocean’s endless blue he never fails, his path is clear and true From my heart I thank you friend for this precious melody for these sweet and pure tones, sweet and pure tones Þýðing: John Grant. viðtal 25 Helgin 8.-10. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.