Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.02.2013, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 08.02.2013, Qupperneq 38
S koda hefur verið í mikilli sókn á síðustu árum. Ís- lendingar hafa öðlast trú á framleiðandanum þrátt fyrir frekar neikvæða ímynd hans áður fyrr. Skoda Oktavia var mest seldi bíll ársins 2012 á Íslandi. Á næstunni verður þriðja kynslóð þessa bíls kynnt til sögunnar. Skoda umboðið bauð fjórum blaðamönnum frá Íslandi til Algarve í Portúgal til þess að reynsluaka bílnum. Sniðugar og einfaldar lausnir Bíllinn er mjög þægilegur í akstri. Hann er léttur og meðfærilegur þrátt fyrir stærð- ina. Útlitið er sportlegt og hann stendur framar eldri kynslóðum Oktavíu. Það er líka sérstaklega þægilegt að vera farþegi í bílnum. Í aftursætinu er mikið pláss í allar áttir og því ætti að fara vel um alla. Aftursætið liggur hærra en framsætið svo farþegar, sem ekki eru háir í loftinu ættu að geta fylgst með útsýninu án nokkura vandkvæða. Farangursrýmið í nýju Oktavíunni rennir frekari stoðum undir einkunnarorð Skoda, Simply clever. Einfaldar lausnir eru í fyrirrúmi, eins og til dæmis, motta með tvær mismunandi hliðar sem auðvelt er að snúa við eftir hentugleika. Önnur hliðin er með vatnsheldum gúmmíbotni en hin hefðbundin. Í hlið farangursrýmis- ins er spjald með frönskum rennilási sem hægt er að festa við efnisbotninn. Með þessu móti er hægt að tryggja að kassar eða aðrir þungir hlutir renni til. Nógu af kössum ætti að vera hægt að koma fyrir í skottinu því þar rúmast tæpir 600 lítrar sem er mun meira en gengur og gerist í þessum flokki bíla. Nýjungar sem koma sér vel Skoda býður upp á marg- ar nýjungar sem flestar eiga það sameiginlegt að vera einfaldar og snjallar. Margar þeirra koma þó væntanlega til með að flokkast sem aukahlutir og verða seldar sem slíkir. Auk hefðbundinna fjarlægðar- skynjara og snertiskjás er boðið upp á aðstoð við að slökkva háu ljósin í tíma til öryggis og þæginda fyrir aðra ökumenn. Sjálfur hef ég átt það til að gleyma háu ljósunum, sérstaklega ef ökumaðurinn í farþegasætinu er ekki innanborðs. Þetta ætti því að koma sér vel. Myndavél sem fest er á spegilinn nemur umferðina fram undan og deyfir ljósin eftir þörfum. Þessi búnaður aðstoðar einnig ökumann við að greina umferðarskilti sem fram undan eru og birtast þau í mælaborðinu jafnóðum. Stærri – en léttari Ég hef keyrt töluvert gömlu gerðina af Skoda Oktavíu sem var mest seldi bíll á Ís- landi í fyrra. Mjög góður bíll sem stendur sannarlega fyrir sínu. Mér hefur þó alltaf fundist hann frekar þungur í akstri innan- bæjar. Nýja kynslóð Oktavíu er léttari en sú gamla og munar rúmlega 100 kílóum. Bíllinn er auk þess nokkru lengri og með meira hjólahaf sem bætir aksturseiginleika hans til muna. Skoda Octavia er því sér- staklega þægilegur í akstri og það var lítið vandamál að þræða þrönga vegi milli smá- bæja í Algarve. Þegar maður situr í svona bíl reikar hugurinn og maður hugsar til þess að í honum væri hægt að eyða löngum tíma, jafnvel aka yfir heilu heimsálfurnar. Það væri ég til í að gera á Oktavíu, bæði sem ökumaður en einnig sem farþegi og ég myndi síður en svo fúlsa við aftursætinu. 38 bílar Helgin 8.-10. febrúar 2013 Rúmgóður, sparneytinn og vel búinn Malibu er stór, fimm manna fólksbíll, 4,86 metrar á lengd. Dísilbíllinn er sjálfskiptur og hlaðinn aukabúnaði. Bílabúð Benna hefur hafið sölu á Chevrolet Malibu með 2,0 lítra dísilvél sem afkastar 160 hestöflum og hefur 350 Nm hámarkstog. Bíllinn er boðinn sjálfskiptur og hlaðinn staðalbúnaði, að því er fram kemur í tilkynningu umboðsins. „Margir hafa beðið eftir að Malibu byðist hér með dísilvél enda státar hann í þeirri gerð af einkar lágri eldsneytiseyðslu sem samkvæmt Evrópustöðlum er 6 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri. Malibu er stór, fimm manna fólksbíll, 4,86 metrar á lengd. Hann býður upp á mikið farangurs- rými sem með sæti í uppréttri stöðu er 545 lítrar. Útlitshönnun Malibu byggir að hluta til á hinum goðsagnakennda Camaro sem margir bílaáhugamenn þekkja. Þetta er rúmgóður bíll og yfirbygging hans ein- kennist af kraftalegum formlínum. Í staðalgerð kemur hann hlaðinn búnaði. Þar má nefna hluti eins og lyklalaust aðgengi og ræsihnapp, leðurklædd sæti, raf- knúna topplúgu, rafknúin sæti með minni, bakk skynjara, Xenon aðalljós, 18“ álfelgur, hita í framsætum, regnskynjara og margt fleira. Malibu kemur með þriggja rima leðurstýri með aðdrætti og veltu, stjórnrofum fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi og sérstaklega formuðu stýri sem stuðlar að nákvæmari stýringu. Malibu státar einnig af bestu hljóðeinangruninni í stærðarflokknum. Upplýsinga- afþreyingarkerfi bílsins fylgir 7“ snertiskjár í lit, níu hátalarar, Bluetooth tenging ásamt tengingum fyrir Aux, SD og USB. Sportlega formuð leður- sætin eru þægileg fyrir líkamann,“ segir í tilkynningunni. Chevrolet Malibu kostar 5.490.000 krónurí bensínútfærslu. Dísilgerð bílsins er kynnt þessa dagana hjá Bílabúð Benna og kostar hann í þeirri gerð 5.990.000 krónur.  ReynSluakStuR Skoda oktavia Skoda fer stöðugt fram Tékkneski bílaframleiðandinn Skoda kynnti þriðju kynslóð Octavia á dögunum. Fréttatíminn tók bílinn til kostanna í Portúgal á dögunum. Útlit Octavia er sportlegt og þægilegt að aka bílnum. Þegar maður situr í svona bíl reikar hugurinn og maður hugsar til þess að í honum væri hægt að eyða löngum tíma, jafn- vel aka yfir heilu heimsálf- urnar. Bjarni Pétur Jónsson ritstjorn@frettatiminn.is Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ 69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.